Skynsamleg orkunýting Umræðan um orkuskort hefur verið hávær að undanförnu, sér í lagi í kjölfar raforkuspár Landsnets sem nýlega kom út. Skoðun 10. október 2024 18:00
Tímamót fyrir kvenheilsu Októbermánuður er tileinkaður vitundarvakningu um brjóstakrabbamein en það er algengasta krabbameinið meðal íslenskra kvennaog um 200 ný tilfelli greinast á hverju ári. Brjóstaskimun gegnir lykilhlutverki í forvörnum og baráttunni gegn sjúkdómnum, þar sem hún eykur verulega líkurnar á árangursríkari meðferð og bata. Skoðun 10. október 2024 17:01
Fjármálaráðherra búinn að endurskoða þjóðlendukröfur Fjármála- og efnahagsráðherra hefur fyrir hönd íslenska ríkisins afhent óbyggðanefnd endurskoðaðar þjóðlendukröfur vegna eyja og skerja umhverfis landið. Óbyggðanefnd kallar eftir kröfum þeirra sem kunna að eiga öndverðra hagsmuna að gæta og hefur nú framlengt kröfulýsingarfrest þeirra til 13. janúar 2025. Innlent 10. október 2024 16:42
Óþarfa steinar í götunni Reynslusögur og umkvartanir einstaklinga og fyrirtækja af takmörkuðum fyrirsjáanleika við leyfisveitingarferli hins opinbera eru ekki nýjar af nálinn og mýmargar. Í skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2022 kemur fram að löng málsmeðferð sé algengasta ástæða kvartana til embættisins. Skoðun 10. október 2024 16:33
Sigmundur komst á forsíðuna en ekki Messi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, telur furðulegt að hann hafi verið settur á forsíðu þýsks blaðs þar sem fjallað var um Panamaskjölin en ekki aðrir hærra settir í samfélaginu, þeirra á meðal heimsfrægir íþróttamenn og aðrir stjórnmálaleiðtogar. Enginn íslenskur stjórnmálamaður hafi jafnoft þurft að þola það að reynt sé að bola honum úr starfi á þessari öld. Innlent 10. október 2024 15:47
Reyna aftur að leggja niður Ríkisútvarpið ohf. Hópur þingmanna Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á rekstrarumhverfi fjölmiðla. Verði frumvarpið samþykkt verður Ríkisútvarpið ohf. lagt niður og Ríkisútvarpið gert að ríkisstofnun. Frumvarpið var fyrst lagt fram á síðasta löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu. Innlent 10. október 2024 15:04
Skrepp í skimun, október tími umhugsunar Forvarnir og skimun gegn krabbameinum er eitt stærsta lýðheilsuverkefni sem sett hefur verið á laggirnar hérlendis. Nýgengi krabbameina hefur aukist frá því skráningar hófust fyrir 70 árum. Ýmsar skýringar liggja þar að baki, meðal annars aukinn mannfjöldi, aukin krabbameinsáhætta, hækkandi meðalaldur þjóðar, skimanir og bætt greiningartækni. Tilgangur skimunar fyrir krabbameini er að bjarga mannslífum, draga úr nýgengi (tíðni) og dánartíðni af völdum ákveðinna tegunda krabbameina. Skoðun 10. október 2024 13:03
Er ekki bara best að hætta þessu bulli og kjósa? Ég fagna ályktun hreyfingarinnar (áður þekkt sem Vinstrihreyfingin grænt framboð) að slíta stjórnarsamstarfinu og boða til kosninga í vor. Ég var hluti að ályktun sem að miðstjórn Ungs jafnaðarfólks sendi frá sér, þar sem kallað var eftir kosningum í apríl síðastliðnum þegar að fyrrum forsætisráðherra ákvað að hoppa frá borði og fara frekar í forsetaframboð. Ekki hefur verið fallið frá þeirri kröfu. Skoðun 10. október 2024 12:33
Óeðlilegt að Guðmundur Ingi hafi hringt í ríkislögreglustjóra Forsætisráðherra segir mjög óeðlilegt að ráðherra hringi beint í undirmann annars ráðherra líkt og Guðmundur Ingi Guðbrandsson gerði til þess að fresta mætti brottvísun Yasans Tamini. Innlent 10. október 2024 12:07
Komugjald í brjóstaskimun lækkar gríðarlega Frá og með mánudeginum 14. október þurfa konur sem fara í skimun fyrir brjóstakrabbameini einungis að greiða fimm hundruð krónur í komugjald fyrir skimunina. Önnur gjöld fyrir hana, sem kostaði áður sex þúsund krónur, verða felld niður. Innlent 10. október 2024 11:16
Riddari kannana mætir í Samtalið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins mætir í Samtalið með Heimi Má í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2-Vísi klukkan 14:00. Flokkur hans tapaði miklu fylgi í kosningunum 2021 en fer nú með himinskautum í könnunum. Innlent 10. október 2024 10:05
Sameiginlegt verkefni okkar allra Í vikunni lagði undirrituð fram tillögu til þingsályktunar um rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana. Þetta er í annað sinn sem tillagan er lögð fram, nú með nokkrum breytingum sem byggðar eru á góðri þróun, þar sem starfshópur á vegum Lífsbrúar hjá embætti landlæknis hefur tekið til starfa. Skoðun 10. október 2024 10:01
Dökk heimsmynd Jóhanns Páls Í ræðustól Alþingis á dögunum stóð Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, og hélt því blákalt fram að ríkisstjórnarflokkarnir héldu samstarfi sínu gangandi einvörðungu til að tryggja sér háa styrki úr vösum skattgreiðenda, sem koma til greiðslu í janúar. Góðar samsæriskenningar geta verið safaríkar og spennandi en verra er þegar þær standast ekki minnstu skoðun. Skoðun 10. október 2024 08:33
Vilja 62 milljónir til að tryggja vopnabirgðir lögreglu og sérsveitar Embætti ríkislögreglustjóra telur að auka þurfi fjárveitingar um 62 milljónir árlega til embættisins til að tryggja nauðsynlegar vopnabirgðir og íhluti lögreglunnar. Embættið segir að ekki hafi verið nægilega vel tekið tillit til breytts starfsumhverfis og krefjandi aðstæðna löggæslu í fjárlagafrumvarpinu. Þetta kemur fram í umsögn embættisins um fjárlagafrumvarp næsta árs, 2025. Innlent 10. október 2024 08:01
Ísland í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna Ísland var í dag kjörið til setu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Atkvæði voru greidd á allsherjarþinginu í New York en nítján ríki voru í framboði fyrir átján sæti í mannréttindaráðinu. Innlent 9. október 2024 21:26
Vísa á bug kenningu um að stjórnarsamstarfið tóri á styrkveitingum Þingflokksformenn VG og Sjálfstæðisflokks þverneita að fjárstyrkir til stjórnmálaflokkanna séu ástæða þess að ríkisstjórnin ætli að þrauka út kjörtímabilið. Flokkarnir eiga von á tugum, og jafnvel hundruð, milljóna styrkveitingu í lok janúar. Innlent 9. október 2024 21:03
Hættið að hæða lýðræðið - Slítið stjórnarsamstarfinu! Landsmenn hafa horft upp á langvinnt dauðastríð ríkisstjórnarinnar síðustu misseri. Hver dagur sem stjórnin situr er þjóðinni rándýr. Á meðan á dauðastríðinu hefur staðið hafa mikilvæg mál rekið á reiðanum. Ríkisstjórnin er fyrir löngu orðin hol likt og yfirgefið geitungabú. Hver höndin er upp á móti annarri og ráðherrar ganga fram í algeru getuleysi og vinna skaða með verkum sínum. Verður nú getið helstu afreka þeirra: Skoðun 9. október 2024 18:02
Hagstofan biðst velvirðingar og tekur talnaefnið úr birtingu Hagstofa Íslands hefur tekið úr birtingu talnaefni um fjölda starfandi eftir rekstarformi eftir að kom í ljós að opinberar hagtölur um fjölda starfandi ríkisstarfsmanna voru ofmetnar. Gögnin voru unnin fyrir forsætisráðuneytið. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði í dag slíkar villur hið versta mál. Innlent 9. október 2024 17:08
Hingað og ekki lengra. En hvað svo? Þingmaður sjálfstæðisflokksins birti grein í Morgunblaðinu í dag undir fyrirsögninni „Hingað og ekki lengra“. Þar fer hann ófögrum orðum um að langlundargeð hans sé endanlega þrotið gagnvart ríkisstjórnarsamstarfinu. Að framganga VG sé með þeim hætti að útilokað sé að réttlæta samstarf við þá í ríkisstjórn. Skoðun 9. október 2024 14:01
Ríkisstarfsmenn ofmetnir um fimm þúsund Fimm þúsund manns skráðir í fæðingarorlof voru ranglega taldir sem ríkisstarfsmenn í opinberum gögnum Hagstofunnar. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir villur sem þessar í opinberum gögnum vera hið versta mál og vill bæta hagskýrslugerð. Innlent 9. október 2024 13:37
Kvótakerfi stjórnmálaflokkanna Kosningar síðustu ára hafa einkennst af aukningu atkvæða í tapi og sigri en aldrei í þeim mæli sem við sjáum í skoðanakönnunum í dag. Stjórnarflokkarnir eru með 20% fylgi samanlagt, Framsókn með 5%, Vinstri græn með 3% og Sjálfstæðisflokkurinn með 12%. Skoðun 9. október 2024 12:32
Telur að Óli Björn líti svo á að VG hafi kastað stríðshanskanum Þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur að framganga Vinstri grænna sé með þeim hætti að útilokað sé að réttlæta áframhaldandi samstarf við þá í ríkisstjórn og segir hingað og ekki lengra. Stjórnmálafræðiprófessor segir stjórnarflokkana líta svo á að samstarfinu sé efnislega lokið og að þeir séu hættir málamiðlunum. Innlent 9. október 2024 12:05
Vongóð um að Ísland fái sæti í mannréttindaráðinu Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra kveðst vongóð að Ísland nái sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna en kosning um hvaða ríki taka þar sæti fer fram síðar í dag. Innlent 9. október 2024 11:43
Telja óstaðbundin störf of kostnaðarsöm Mannauðsstjórar ríkisstofnana telja mikinn kostnað helsta ókost óstaðbundinna starfa og að hann geti dregið úr hvata til þess að auglýsa slík störf. Óstaðbundin störf geti aukið framboð umsækjenda fyrir stofnanir. Innlent 9. október 2024 11:05
Ríkisstjórnin á valdi „minnsta og veikasta“ flokksins „Framganga Vinstri grænna er með þeim hætti að útilokað er að réttlæta samstarf við þá í ríkisstjórn,“ segir Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Langlundargeð hans sé á þrotum. Innlent 9. október 2024 09:56
Öryrkjar eiga betra skilið Ár hvert eykst bilið á milli lágmarkslauna og tekna þeirra sem reiða sig á greiðslur frá Tryggingastofnun. Ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á að fylgja vísitölu neysluverðs við ákvörðun um uppfærslur fjárhæða almannatrygginga, þrátt fyrir að vísitala neysluverðs hækki almennt mun minna en launavísitölur. Skoðun 9. október 2024 09:02
Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Sigríður Hrönn Elíasdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri í Súðavík, er látin, 65 ára að aldri. Sigríður Hrönn var ráðin sveitarstjóri árið 1990 og gegndi starfinu þegar snjóflóðin féllu á bæinn í janúar 1995 og fjórtán fórust. Innlent 9. október 2024 08:35
Vatn rennur ekki upp í móti Það er skiljanlegt að fólk sé reitt, og jafnvel brjálað, yfir vaxtahækkun bankanna á verðtryggðu lánunum á dögunum. Þetta er enn eitt vaxtahöggið fyrir fjölskyldurnar. Kjaftshögg sem kostar fólk tugi þúsunda á mánuði. Fólki finnst ranglátt að á sama tíma og það flýr svimandi háar afborganir óverðtryggðra lána sé því strax refsað með græðgishækkun bankanna á verðtryggðu lánunum. Það er einfaldlega hvergi skjól að fá. Skoðun 9. október 2024 07:32
Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Íbúar í nágrenni við JL-húsið hafa áhyggjur af fyrirætlunum yfirvalda um úrræði fyrir allt að fjögur hundruð umsækjendur um alþjóðlega vernd. Ekkert samráð var haft við íbúa áður en fréttir voru sagðar af áformum þessum. Innlent 8. október 2024 19:24
Ekkert á hreinu um næstu kosningar Forsætisráðherra segir að ríkisstjórn sem ekki hafi burði til að ljúka málum, eigi að pakka saman. Formaður Vinstri grænna sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun að oddvitar stjórnarflokkanna ættu eftir að ræða forgangsröðun mála og tímasetningu kosninga. Innlent 8. október 2024 19:21