Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra segist stolt af skipun sinni í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Verkfræðingafélagið hefur gert athugasemdir við að enginn með sérfræðiþekkingu í málaflokknum sitji í stjórninni en Inga segist hafa valið hæfasta fólkið. Innlent 4. maí 2025 14:10
Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Þuríður Sigurðardóttir söngkona kallar eftir því að Laugarnes í Reykjavík verði friðlýst sem búsetu- og menningarlandslag. Hún býður upp á sögugöngu um Laugarnes klukkan þrjú á morgun, sunnudag, þar sem hún ætlar meðal annars að fjalla um þá kenningu að landnámsbær Ingólfs hafi verið í Laugarnesi. Innlent 3. maí 2025 22:30
„Í markaðshagkerfi þurfa menn bara að synda“ Fjármála- og efnahagsráðherra segist ekki hafa áhyggjur af íslenskum framleiðendum sem selja vörur til Fríhafnarinnar. Þeir hafa lýst miklum áhyggjum vegna nýs rekstraraðila, sem hefur krafið framleiðendur um að lækka vöruverð. Ráðherra segir að í markaðshagkerfi þurfi menn bara að synda. Viðskipti innlent 3. maí 2025 18:33
Samfylkingin með 29 prósenta fylgi Samfylkingin hefur aukið fylgi sitt umtalsvert og mælist nú með ríflega 29 prósent. Framsóknarflokkurinn dalar. Innlent 3. maí 2025 12:26
Hefur áhyggjur af arftaka sínum A-hluti Reykjavíkurborgar skilaði tæplega fimm milljarða króna afgangi í fyrra. Um er að ræða tæplega tíu milljarða viðsnúning frá 2023. Borgarstjóri segist bjartsýn á framhaldið en fyrrverandi borgarstjóri segir óttast að árangurinn verði horfinn undir lok árs. Innlent 2. maí 2025 19:04
Ríkisstjórn sem skeytir engu Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2026 til 2030 er áformað að taka upp auðlindagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum landsins. Horft er til þess að gjaldið greiðist af þeim sem heimsækja ferðamannastaði í eigu ríkisins og á það að gilda jafnt um erlenda ferðamenn og þá sem búsettir eru hér á landi. Þá kemur fram að unnið sé að útfærslu á gjaldinu og að stefnt sé að gildistöku um mitt ár 2026. Skoðun 2. maí 2025 15:00
„Mér finnst þetta ómöguleg framkoma“ Hjónin Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og Bryndís Schram eiginkona hans voru meðal mótmælenda fyrir utan ríkisstjórnarfund í dag. Þau kröfðust þess að hinum 17 ára gamla Oscar Andre Bocanegra Florez yrði veitt dvalarleyfi. Innlent 2. maí 2025 13:34
Í leyfi frá þingstörfum og flytur til New York Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, ætlar að flytja til New York í haust. Hún fer í níu mánaða leyfi frá þingmennsku. Áslaug Arna beið naumlega lægri hlut í baráttu um formennsku í Sjálfstæðisflokknum í febrúar. Innlent 2. maí 2025 12:41
Borgarstjóri sé brennuvargur en Framsókn í slökkviliðinu Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarmanna í borginni og fyrrverandi borgarstjóri, ætlar greinilega ekki að láta fólk gleyma því hver stýrði borginni á síðasta ári. Tíu milljarða viðsnúningur varð á A-hluta borgarinnar á milli ára. Hann segir núverandi borgarstjóra vera „brennuvarg“ í fjármálum borgarinnar. Innlent 2. maí 2025 12:22
Bókhaldstækni og aukin skattheimta skýri afganginn Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn gefur lítið fyrir nýjan ársreikning Reykjavíkurborgar, sem sýnir fram á 4,7 milljarða króna afgang af rekstri samstæðu borgarinnar. Innlent 2. maí 2025 11:55
Tæplega tíu milljarða viðsnúningur A-hluti Reykjavíkurborgar skilaði 4,7 milljarða króna afgangi í fyrra, sem er 9,7 milljarða króna viðsnúningur frá fyrra ári. Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 var jákvæð um 10,7 milljarða króna, sem er 14,1 milljarði betri niðurstaða en árið áður. Innlent 2. maí 2025 11:43
Bein útsending: Kynna ársreikning Reykjavíkurborgar Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri kynnir ársreikning Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 á blaðamannafundi klukkan 11:30. Sýnt verður beint frá fundinum hér á Vísi. Innlent 2. maí 2025 11:25
„Við gerum ekki svona við börn“ „Ég er gáttaður á því hvernig þetta samfélag kýs að koma fram við börn,“ segir tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson. Hann er meðal þeirra sem mótmæltu fyrirhugaðri brottvísun hins 17 ára Oscars við fundarstað ríkisstjórnar í dag. Innlent 2. maí 2025 10:37
Mótmælt við ríkisstjórnarfund: „Oscar á heima hér“ Mótmæli standa nú yfir fyrir utan fundarstað ríkisstjórnarinnar á Hverfisgötu. Mótmælendur krefjast þess að stjórnvöld dragi til baka brottvísun hins kólumbíska Oscar Andre Bocanegra Florez. Innlent 2. maí 2025 09:33
Sósíalistar á vaktinni í átta ár Sósíalistaflokkur Íslands var stofnaður fyrir átta árum, á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí 2017. Að loknum stofnfundi gekk ég út í rigninguna með grunnstefnuna í hendi sem inniheldur skýr orð um auðvaldið sem andstæðing og að Sósíalistaflokkurinn leggi áherslu á það sem sameinar fólkið í landinu; óréttlætið sem það mætir og viljann til að losna undan því. Skoðun 2. maí 2025 07:45
Styðjum þá sem bjarga okkur Ríkisstjórnin, og þá sérstaklega Viðreisn sem fer með dómsmálaráðuneytið, hefur lagt mikla áherslu á að fjölga lögreglumönnum um fimmtíu strax á þessu ári. Skoðun 2. maí 2025 07:32
Opið bréf til hæstvirts innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, um íslensku og ábyrgð Við hlustun á viðtal við þig hæstvirtan innviðaráðherra, Eyjólf Ármannsson,í Bítinuþar sem ný leigubílalög voru til umræðu, gat ég ekki orða bundist. Ég er sammála þér að fólk eigi að geta talað íslensku og þá sérstaklega í þjónustustörfum. En það sem ég er ósammála er þegar tungumál er notað sem lás í staðinn fyrir lykil að samfélagi. Skoðun 1. maí 2025 22:00
Vilja móta samfélagið í þágu vinnandi fólks Forsætisráðherra lagði áherslu á samvinnu stjórnvalda og verkalýðshreyfingarinnar í ávarpi sínu á Verkalýðsdaginn. Flokkar líkt og Samfylkingin þurfi áframhaldandi stuðning til að starfa í þágu vinnandi fólks. Innlent 1. maí 2025 18:31
Breytt veiðigjaldafrumvarp lagt fram Frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um hækkun veiðigjalda hefur verið lagt fram á Alþingi eftir að hafa tekið breytingum í kjölfar samráðs. Brugðist hafi verið við ákalli sveitarfélaga um að gæta að áhrifum á litlar útgerðir og ábendingum um skort á mati á áhrifum. Innlent 1. maí 2025 15:56
Kaffistofa leigubílstjóra orðin „nyrsta moska í heimi“ Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að kaffiskúr leigubílstjóra á Keflavíkurflugvelli sé orðinn „nyrsta moska í heimi.“ Hann segist gruna að Isavia þori ekki að taka á málinu en að það sé þeirra að svara fyrir. Innlent 1. maí 2025 15:26
Kalla saman ráðherranefnd svo rafmagnsleysi endurtaki sig ekki hér Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að verið se að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að upp komi umfangsmikið rafmagnsleysi hér á landi eins og varð á Íberíuskaga á mánudag. Innlent 1. maí 2025 14:01
Niðurstöðu um styrkjamálið megi vænta með vorinu Umfjöllun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um styrkjamálið svokallaða er komin langt á veg og búast má við niðurstöðu nefndarinnar með vorinu. Innlent 1. maí 2025 13:23
„Ég skipaði þá aðila sem ég taldi hæfasta“ Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra segist hafa skipað þá aðila sem hún taldi hæfasta í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þingmaður Miðflokksins gagnrýndi ráðherra fyrir að gæta ekki jafnréttislaga við skipun stjórnarinnar en áttatíu prósent nýrra stjórnarmanna eru karlmenn. Innlent 1. maí 2025 11:00
Janus og jakkalakkarnir Hvað er fólk að pæla? Mig langaði mest að kalla ráðherra drullusokk (en lét það vera) er ég heyrði af lokun eins fárra úrræða geðþjónustu einhverfra ungmenna, Janus endurhæfingu. Skoðun 1. maí 2025 08:45
Gætti trúnaðar eftir að erindi tengdamömmunnar barst Forsætisráðherra telur að rétt hafi verið að upplýsa þáverandi mennta- og barnamálaráðherra um að fyrrverandi tengdamóðir barnsföður hennar, hafi óskað eftir fundi. En eftir að hún vissi um hvað málið snerist hafi hún verið bundin trúnaði og því ekki rætt málið frekar við ráðherrann. Þingmaður Sjálfstæðisflokks furðar sig á að það hafi ekki verið gert. Innlent 30. apríl 2025 19:02
Frekari breytingar í Valhöll Sjálfstæðisflokkurinn hefur ráðið Bertu Gunnarsdóttur sem fjármálastjóra flokksins. Hún mun jafnframt gegna hlutverki staðgengils framkvæmdastjóra. Nýr framkvæmdastjóri tók við störfum um síðustu mánaðamót. Þá var ekki langt síðan nýr formaður tók við völdum í Valhöll. Innlent 30. apríl 2025 16:39
Tap á Vinnslustöðinni og fjárfestingar settar á ís Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum var rekin með hálfs milljarðs króna tapi í fyrra. Félagið hefur aðeins einu sinni áður verið rekið með tapi síðasta aldarfjórðung. Félagið hefur slegið nauðsynlegum fjárfestingum í skipakosti þess á frest vegna áforma stjórnvalda um veiðigjöld. Viðskipti innlent 30. apríl 2025 15:50
Skýrsla starfshóps um lagaumgjörð hvalveiða tilbúin Starfshópur um lagaumgjörð hvalveiða hefur lokið vinnu sinni við skýrslu sína og afhent ráðherra hana. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu verða niðurstöður skýrslunnar kynntar á komandi vikum. Innlent 30. apríl 2025 14:02
Jafnréttisstofa kallar eftir svörum frá Ingu vegna skipunar í stjórn HMS Jafnréttisstofa mun óska eftir útskýringum hjá félags- og húsnæðismálaráðherra á skipun hennar í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Áttatíu prósent stjórnarmanna eru karlmenn. Innlent 30. apríl 2025 12:30
Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Fannar Sveinsson, leikstjóri, sjónvarpsmaður og hlaðvarpsstjóri, segir Jon Øigarden stórkostlegan leikara. Fannar leikstýrði umdeildri auglýsingu SFS sem farið hefur fyrir brjóstið á mörgum manninum. Fannar hefur ekki sett sig inn í pólitíkina sem hefur blossað upp í tengslum við hana. Innlent 30. apríl 2025 11:49
Utanríkisráðherra Breta á Íslandi: „Gleður mig að Ísland vill vera með í bandalagi viljugra þjóða“ Innlent