Keyptu Brauðhúsið til að fara ekki á hausinn Eigandi bakarísins Hygge hefur beðið í yfir tvö hundruð daga eftir að fá leyfi til að opna það á nýjum stað í húsnæði við Barónsstíg 6. Hann kvartar undan óskilvirku kerfi í kringum starfsleyfisveitingar og segist hafa orðið fyrir stórtjóni í hinni löngu bið eftir starfsleyfi. Eigendur neyddust til að kaupa bakarí í Grímsbæ til að fyrirtækið færi ekki á hausinn. Viðskipti innlent 9. júní 2025 23:06
Leita týnds göngumanns Björgunarsveitir höfuðborgarsvæðisins hafa verið kallaðar út til að leita týnds göngumanns við Esju. Innlent 9. júní 2025 22:34
Nemar á Landspítalanum klæddust „Öldrunarbúningi“ Um 400 lækna- og hjúkrunarnemar munu vinna á Landspítalanum í sumar en áður en vinnan hófst var haldin svokallaður „tækjadagur“ á spítalanum þar sem ýmis tæki og tól voru til sýnis fyrir sumarstarfsmenn. Það sem vakti þó hvað mesta athygli var „Öldrunarbúningur“, sem nemarnir fengu að prófa. Innlent 9. júní 2025 20:03
Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd Tveir sjúkrabílar eru á vettvangi á gatnamótum Stekkjarbakka og Breiðholtsbrautar eftir að tveir bílar skullu saman. Innlent 9. júní 2025 16:24
Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Konukot hefur síðustu tuttugu árin verið rekið hér í Eskihlíðinni en eftir margra mánaða leit að nýju húsnæði stendur til að flytja í nýtt húsnæði í Ármúla í ágúst eða september. Deildarstjóri málaflokks heimilislausra segir flutninginn mikið framfaraskref. Þau skilji áhyggjur nýrra nágranna en vilji vera í góðu samstarfi. Innlent 8. júní 2025 23:20
Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur miklar áhyggjur af hugmyndum um uppbyggingu 300 íbúða á svokölluðum framtíðarreit við 27. holu á golfvellinum við Korpúlfsstaði í Grafarvogi. Hann gagnrýnir skort á samráði við Golfklúbb Reykjavíkur en samkvæmt upplýsingagátt borgarinnar er ekkert fast í hendi. Innlent 8. júní 2025 21:28
Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einstakling í hverfi 104 sem grunaður er um vændiskaup. Er maðurinn var handtekinn kom í ljós að hann var einnig eftirlýstur og hefur nú verið handtekinn. Innlent 8. júní 2025 17:44
Þétting á 27. brautinni Uppfærð húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar til næstu níu ára var samþykkt á borgarstjórnarfundi í vikunni sem leið. Þar kemur fram að markmið borgarinnar sé að byggja allt að 16.000 íbúðir á næstu tíu árum, sem er metnaðarfullt markmið, sérstaklega í ljósi þess að síðustu þrjú ár hefur fjöldi byggðra íbúða á ári ekki farið yfir eitt þúsund. Meðaltal síðustu tíu ára er 884 íbúðir á ári. Skoðun 8. júní 2025 15:30
Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Laugarnesvinir óttast að óafturkræfar skemmdir hafi verið unnar á fornminjum á Laugarnesi í framkvæmdum Veitna. Til stendur að leggja þar lagnastokk en að sögn Veitna er grafið á grunnu dýpi og minjar því ekki í hættu. Innlent 7. júní 2025 19:21
Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um umferðarslys þar sem ekið var á gangandi vegfarenda. Ökumaðurinn stöðvaði ekki á slysstað heldur keyrði á brott. Innlent 7. júní 2025 17:20
118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Ljósmyndaverslun Hans Petersen við Grensásveg 12 í Reykjavík verður skellt í lás næstkomandi föstudag. Um er að ræða einu verslun Hans Petersen og er þar með ljóst að 118 ára sögu fyrirtækisins er lokið. Viðskipti innlent 7. júní 2025 10:18
Þéttur eða þríklofinn Sjálfstæðisflokkur Umræða og atkvæðagreiðsla um húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar var í borgarstjórn Reykjavíkur í vikunni. Sjálfstæðisflokkurinn í borginni kaus gegn henni. Þau eru á móti húsnæðisuppbyggingu, á móti borgarlínu, á móti þéttingu byggðar og vilja ekki að samfélagið greiði niður húsnæði fyrir þau sem þess þurfa. Skoðun 6. júní 2025 16:00
Bras og brall við gerð Brákarborgar „Brákarborg hefur – ótrúlegt en satt – lent í neikvæðri umræðu í pólitíkinni því þar keyptum við gamla hjálpartækjaverslun og breyttum í einhvern fallegasta og vandaðasta leikskóla sem ég hef séð. Framkvæmdin var umhverfisvottuð og fékk hönnunarverðlaunin Grænu skófluna.“ Þessi ummæli í fésbókarfærslu þáverandi borgarstjóra frá 21. mars 2023 eldast ekki vel. Skoðun 6. júní 2025 15:02
Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Reykjavíkurborg hefur selt húsið við Sóleyjargötu 27 til félags í gistiheimilarekstri á 310 milljónir króna. Um er að ræða um 360 fermetra eign, en ljóst er að ráðast þarf í viðamiklar endurbætur. Viðskipti innlent 6. júní 2025 14:12
Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Rakel María Hjaltadóttir, markaðsstjóri Saffran, hlaupadrottning og förðunarfræðingur, hefur sett fallega íbúð við Kötlufell í Breiðholti á sölu. Ásett verð er 49,9 milljónir. Lífið 6. júní 2025 11:54
Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“ Umtalað „djöflablístur“ eða „draugahljóð“ virðist leika íbúa fleiri hverfa en Laugarneshverfis grátt. Hljóðverkfræðingur segir hljóðið lýðheilsuógn og hvetur íbúasamtök til að leita réttar síns. Þreyttir foreldrar í Urriðaholti íhuga að gera nákvæmlega það. Innlent 6. júní 2025 11:42
Mörgu ábótavant við byggingu Brákarborgar Ný skýrsla sem kynnt var fyrir borgarráði í dag um framkvæmdir í leikskólanum Brákarborg sýnir að mörgu hafi verið ábótavant við framkvæmdirnar. Til að mynda hófust framkvæmdir á þaki hússins áður en teikningar frá hönnuði og burðarvirkishönnuði lágu fyrir frá byggingarfulltrúa. Innlent 5. júní 2025 23:40
Parísarhjólið rís á ný Reykjavíkurborg hyggst endurtaka leikinn frá síðasta sumri og semur við Taylor's Tivoli Iceland um uppsetningu á parísarhjóli í miðborginni. Innlent 5. júní 2025 17:41
Sérsveitin kölluð út vegna vopnaðs manns Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út til aðstoðar lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu við útkall á Frakkastíg við Hverfisgötu. Tilkynnt var um mann vopnaðan hníf. Hann hafði ekki uppi ógnandi framferði og engan sakaði. Innlent 5. júní 2025 16:39
Ferðamaður ók húsbíl niður göngustíg Ferðamaður ók húsbíl inn á göngustíg við gatnamót Laugavegs og Kringlumýrarbrautar eftir að hafa næstum ekið yfir gangandi vegfaranda á gangbraut gatnanna á milli. Útleigjandinn segir það ekki á ábyrgð bílaleiga að upplýsa leigjendur um að forðast eigi að aka á göngustígum. Innlent 5. júní 2025 16:16
Dómur yfir Erni Geirdal mildaður Landsréttur hefur dæmt Örn Geirdal Steinólfsson í fimm ára fangelsi fyrir manndrápstilraun í Vesturbæ Reykjavíkur í janúar í fyrra. Hann þarf að greiða karlmanni sem hann veitti lífshættulega áverka 2,2 milljónir króna í miskabætur. Innlent 5. júní 2025 15:20
Óskýrt hvort loftbyssuskot að hinsegin fólki hafi verið hatursglæpur Hópur hinsegin og trans fólks var að stíga út úr leigubíl á Laugaveginum í gær þegar skotið var að honum úr loftbyssu. Samskipta- og kynningarstýra Samtakanna 78 segir óskýrt hvort um hatursglæp hafi verið að ræða en tilkynnir málið engu að síður til lögreglu. Innlent 5. júní 2025 14:52
Strætó dældi milljónum í öryggisgæslu í Mjódd Strætó varði milljónum króna í öryggisgæslu í Mjódd síðustu mánuði þar sem vagnstjórar óttuðust um öryggi sitt við biðstöðina. Strætó hætti þessari auknu gæslu um mánaðamótin. Innlent 5. júní 2025 10:56
Banna lagningu bíla í beygjum í Álakvísl Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt bann við lagningu ökutækja í beygjum í Álakvísl í Ártúnsholti milli Álakvíslar 16 og 38 og milli Álakvíslar 15 og 136. Upphaflega var til skoðunar að banna lagningu í allri götunni en íbúar mótmæltu. Innlent 5. júní 2025 10:44
Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Fasteignafélagið Bergey hefur keypt herkastalann, eitt sögufrægasta hús landsins að Kirkjustræti 2. Félagið greiddi 865 milljónir fyrir eignina. Viðskipti innlent 5. júní 2025 10:41
Sári djúpt snortinn yfir stuðningi Sári Morg Gergó, ungverskur karlmaður sem slasaðist illa í brunanum á Hjarðarhaga fyrir tveimur vikum, er á góðum batavegi. Hann segir brunasár á líkamanum gróa vel. Síðustu tvær vikur hafi verið rússíbanareið. Innlent 5. júní 2025 10:13
Sundhöllinni lokað vegna reyks Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var að störfum í kjallara Sundhallar Reykjavíkur vegna reyks og brunalyktar fyrr í morgun. Ekki var talin hætta á ferð en lauginni hefur þó verið lokað um óákveðinn tíma. Innlent 5. júní 2025 10:07
Réttað yfir sakhæfum Ym fyrir luktum dyrum Aðalmeðferð í máli Yms Arts Runólfssonar, sem sætir ákæru fyrir að ráða móður sinni bana, hefst í dag. Hún fer fram fyrir luktum dyrum. Innlent 5. júní 2025 09:02
Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Löng röð myndaðist fyrir utan verslun Ormsson í Lágmúla í gærkvöldi þegar spenntir tölvuleikjaspilarar mættu til að sækja nýjar Nintendo Switch 2 leikjatölvur sem þeir höfðu pantað í forsölu. Viðskipti innlent 5. júní 2025 07:49
Skemmtiferðaskipi snúið vegna vinds Ítalska skemmtiferðaskipinu Costa Favolosa, sem var á leið frá Akureyri til Reykjavíkur, var snúið við fyrir utan Sundahöfn um þrjúleytið í dag vegna vinds. Innlent 4. júní 2025 17:16