Lýsti leik uppi á fjalli og milljónir fylgdust með Suma unga drengi dreymir um að spila fótbolta en aðra dreymir um að verða eins og Gummi Ben og lýsa fótboltaleikjum. Saga fimmtán ára drengs frá Suður-Perú hefur vakið heimsathygli en hann dreymir um að verða fótboltafréttamaður. Fótbolti 5.12.2025 07:03
Um hundrað slösuðust og tuttugu voru handtekin á mótmælum í Mexíkó Að minnsta kosti 120 manns, flestir lögreglumenn, slösuðust þegar þúsundir gengu fylktu liði um Mexíkóborg í gær til að mótmæla ríkisstjórn Claudiu Sheinbaum, forseta Mexíkó, og ofbeldisfullum glæpum. Tuttugu voru handtekin á mótmælunum fyrir rán og líkamsárás samkvæmt frétt BBC. Erlent 16.11.2025 09:15
Settu forsetann af vegna glæpaöldu í Perú Perúska þingið samþykkti að svipta Dinu Boluarte forseta landsins embætti í dag. Ástæðan er meint getuleysi ríkisstjórnar hennar í að taka á glæpaöldu sem gengur yfir landið. Þingforsetinn tekur við embætti forseta tímabundið í hennar stað. Erlent 10.10.2025 10:17
Varð fyrir eldingu í fótboltaleik en myndbandið er ekki fyrir viðkvæma Perúskur fótboltamaður lést á sunnudaginn eftir að hafa orðið fyrir eldingu í leik. Fótbolti 5. nóvember 2024 06:32
Fyrrverandi forseti í tuttugu ára fangelsi fyrir mútuþægni Dómstóll í Perú dæmdi Alejandro Toledo, fyrrverandi forseta landsins, í tuttugu og hálfs árs fangelsi fyrir mútuþægni í gær. Múturnar sem Toledo þáði tengdust stærsta spillingarmáli sem skekið hefur heimshlutann. Erlent 22. október 2024 11:30
Fujimori er látinn Alberto Fujimori, fyrrverandi forseti Perú, er látinn, 86 ára að aldri. Erlent 12. september 2024 07:59
Fékk rautt spjald fyrir að pissa Þau gerast varla sérstakari rauðu spjöldin en það sem fór á loft í leik perúsku bikarkeppninni um helgina. Fótbolti 19. ágúst 2024 06:30
Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Ríkissaksóknari í Perú lagði fram kæru til þingsins á hendur Dinu Boluarte, forseta landsins, fyrir mútuþægni í gær. Ásakanirnar tengjast lúxusúrum og skartgripum sem Boluarte ber. Erlent 28. maí 2024 09:35
Fjöldadauði sela rakinn til H5N1 Staðfest hefur verið að fjöldadauða sela og sæfíla í suður-Atlantshafi á eyjunni Suður-Gergíu má rekja til þess að þeir smituðust af H5N1. Erlent 11. janúar 2024 09:00
Fujimori laus úr fangelsi Alberto Fujimori, fyrrverandi forseta Perú, hefur verið sleppt eftir að hafa afplánað rúmlega fimmtán ár í fangelsi. Erlent 7. desember 2023 09:55
Stjórnvöld í Venesúela: Þeir rændu fótboltalandsliðinu okkar Perú og Venesúela gerðu 1-1 jafntefli í undankeppni HM í vikunni í leik sem fór fram í Lima í Perú. Venesúelamenn hafa nú sakað Perú um að ræna fótboltalandsliði þjóðarinnar. Fótbolti 24. nóvember 2023 08:00
Slökktu öll ljós á vellinum eftir að erkifjendurnir tryggðu sér titilinn Það er draumur margra félaga að tryggja sér meistaratitil á heimavelli erkifjendanna. Dæmi í Perú sýnir þó að ef slíkt gerist þá er von á öllu. Fótbolti 10. nóvember 2023 11:30
Átján ára gamalt sakamál loks að skýrast: Tvö morð með fimm ára millibili upp á dag Nærri tveimur áratugum eftir að hin átján ára Natalee Holloway hvarf sporlaust á eyjunni Aruba í Suður-Ameríku hefur karlmaður sem lengi lá undir grun um aðild að hvarfi hennar játað að hafa orðið henni að bana. Erlent 18. október 2023 23:53
Heimila þungunarrof 11 ára stúlku sem var nauðgað Ellefu ára stúlku í Perú hefur verið heimilað að undirgangast þungunarrof, en stjúpfaðir hennar hafði um langt skeið beitt hana kynferðislegu ofbeldi. Kaþólska kirkjan beitti sér gegn því að stúlkan fengi þungunarrof. Erlent 16. september 2023 19:31
Risavaxinn perúskur hvalur líklega þyngsta dýr allra tíma Bein sem fundust af Perucetus colossus, 39 milljón ára gömlum risahval, benda til þess að hann sé líklega þyngsta dýr allra tíma. Þyngri en steypireyðin sem er núverandi titilhafi. Erlent 2. ágúst 2023 17:00
Besti veitingastaður heims er í Perú Besti veitingastaður í heimi er í Perú. Þetta var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Valencia á Spáni í vikunni. Þetta er í 21. sinn sem besti veitingastaður heims er tilnefndur og í fyrsta sinn sem veitingastaður í Suður-Ameríku hlýtur nafnbótina. Erlent 25. júní 2023 14:30
Stálu tvö hundruð skóm en geta ólíklega notað þá Óprúttnir þjófar hlupu á sig er þeir stálu rúmlega tvö hundruð skóm í borginni Huancayo í Perú á dögunum. Tjónið er sagt vera mikið en það er þó ólíklegt að þjófarnir græði mikið á skónum sem þeir stálu. Erlent 8. maí 2023 11:33
Tugir látnir eftir eld í gullnámu í Perú Að minnsta kosti 27 eru látnir eftir að mikill eldur kom upp í gullnámu í Perú í gær. Um er að ræða mannskæðasta námuslysið í landinu í um tvo áratugi. Erlent 7. maí 2023 19:05
Gekk matarlaus og svefnlaus að Machu Picchu vegna mótmæla Machu Picchu, einum vinsælasta ferðamannastað Perú, var lokað um helgina vegna yfirstandandi mótmæla gegn nýjum forseta landsins. Íslendingur í Perú segir mótmælin hafa víðtæk áhrif og ljóst að mikill ójöfnuður ríki í landinu. Innlent 23. janúar 2023 23:19
Yfirvöld loka Machu Picchu vegna mótmælanna Stjórnvöld í Perú hafa lokað einum vinsælasta ferðamannastað landins, Machu Picchu, vegna yfirstandandi mótmæla gegn nýjum forseta landsins. Þau segja ákvörðunina tekna til að vernda ferðamenn og almenna borgara. Erlent 23. janúar 2023 09:12
Reka mexíkóska sendiherrann úr landi fyrir afskipti Stjórnvöld í Perú hafa gert mexíkóska sendiherranum að yfirgefa landið innan þriggja sólarhringa eftir að Mexíkó veitti fjölskyldu Pedro Castillo, fyrrverandi forseta, hæli. Castillo er sakaður um að hafa reynt að hefja uppreisn. Erlent 21. desember 2022 15:05
Lýsa yfir neyðarlögum vegna mótmælanna í Perú Ný ríkisstjórn Perú lýsti í dag yfir neyðarlögum vegna ofbeldisfullra mótmæla sem brutust út eftir að Pedro Castillo forseti var vikið úr embætti í síðustu viku. Lögregla fær auknar valdheimildir með lögunum og samkomufrelsi er afnumið. Erlent 14. desember 2022 20:16
Dina Boluarte nýr forseti Perú, fyrst kvenna Nýr forseti er tekinn við í Suður-Ameríkuríkinu Perú eftir að forsetinn fyrrverandi, Pedro Castillo var ákærður fyrir brot í starfi. Erlent 8. desember 2022 07:39
Forseti Perú ákærður fyrir spillingu Saksóknari í Perú hefur ákært forseta landsins, Pedro Castillo, fyrir spillingu. Samkvæmt ákærunni á forsetinn að tilheyra glæpasamtökum, en forsetinn sjálfur neitar sök í málinu. Erlent 12. október 2022 09:05
Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Innlent