Ólympíuleikar

Ólympíuleikar

Fréttir af Ólympíuleikum, bæði sumar- og vetrarleikum.

Fréttamynd

Gómaður á ÓL eftir sex­tán ár á flótta

Maður á fimmtugsaldri frá Slóvakíu ætlaði sér að horfa á íshokkíleik Slóvakíu og Finnlands á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu en var handtekinn og fluttur í fangaklefa. Hann hafði verið sextán ár á flótta.

Sport
Fréttamynd

„Klúðraði þessu svo­lítið vel í dag“

„Ég var bara brjáluð,“ segir Kristrún Guðnadóttir um það hvernig var að átta sig á því að hún hefði gert afar dýrkeypt mistök á Vetrarólympíuleikunum í dag. Röng beygja þýddi að hún var dæmd úr keppni, í 10 kílómetra skíðagöngunni.

Sport
Fréttamynd

Krist­rún dæmd úr leik en Svíar áttu sviðið

Skíðagöngukonan Kristrún Guðnadóttir keppti í seinni grein sinni á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í dag, þegar hún keppti í 10 kílómetra göngu með frjálsri aðferð. Hún var hins vegar dæmd úr keppni.

Sport
Fréttamynd

Hent út af ÓL vegna hjálmsins

Mikil sorg ríkti við sleðabrautirnar í Cortina á Vetrarólympíuleikunum í dag, þegar tilkynnt var að búið væri að taka keppnisleyfið af hinum úkraínska Vladyslav Heraskevych. Hann hafði neitað að skipta út hjálmi sínum sem sýndi fórnarlömb stríðsins í heimalandinu.

Sport
Fréttamynd

Sturla bað allt liðið af­sökunar í kvöld­verði

Umdeildasti maður Ólympíuleikanna í Mílanó og Cortina, Sturla Holm Lægreid, til máls í kvöldverði með norska skíðaskotfimilandsliðinu í gærkvöldi og baðst afsökunar á viðtalinu fræga þar sem hann játaði framhjáhald í beinni útsendingu.

Sport
Fréttamynd

Vonn á bata­vegi eftir þriðju að­gerðina

Lindsey Vonn sendi fylgjendum sínum kveðju á samfélagsmiðlum og segist vera á batavegi en hún hefur gengist undir þrjár aðgerðir eftir að hafa fótbrotnað á Vetrarólympíuleikunum.

Sport
Fréttamynd

Snoop Dogg sagður fá 61 milljón króna í laun á dag

Bandaríski rapparinn og skemmtikrafturinn Snoop Dogg er staddur á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu þar sem hann er „aðalpeppari“ bandaríska landsliðsins, svokallaður heiðursþjálfari liðsins.

Sport
Fréttamynd

„Ég svaf ekki mikið í nótt“

Skíðakonan Sonja Lí Kristinsdóttir segist ekki hafa sofið mikið í nótt eftir að hafa fengið þau óvæntu tíðindi í gærkvöld að hún sé á leið á Vetrarólympíuleikana. Hún heldur utan með föður sínum sem er fyrrverandi Ólympíufari.

Sport
Fréttamynd

Krist­rún bætti sig um þrettán sæti

Kristrún Guðnadóttir átti flottan fyrri keppnisdag á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í dag, þegar hún keppti í sprettgöngu. Svíar sýndu hins vegar yfirburði sína í undankeppninni.

Sport
Fréttamynd

For­setinn telur íþrótta­fólkið best til þess fallið að meta eigin stöðu

For­seti Alþjóða skíða- og snjóbretta­sam­bandsins er á því að ákvörðun um þátt­töku á mótum eins og Vetrarólympíu­leikunum, þegar meiðsli hafi gert vart um sig í að­draganda móts, eigi að liggja hjá íþrótta­fólkinu sjálfu. Mikil um­ræða hefur sprottið upp eftir mál Linds­ey Vonn sem einnig er hægt að tengja við mál skíða­konunnar Hólm­fríðar Dóru Frið­geirs­dóttur hér heima.

Sport