Hetjan missti tönn: „Ég elska Bandaríkin“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. febrúar 2026 23:18 Jack Hughes var sáttur eftir úrslitaleikinn í dag, þrátt fyrir að framtönnin hafi brotnað. getty/Andrea Branca Jack Hughes var einni tönn fátækari en einum gullverðlaunum ríkari eftir úrslitaleikinn í íshokkí karla á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina.
Hughes skoraði sigurmark Bandaríkjanna í úrslitaleiknum gegn Kanada og tryggði bandaríska liðinu því sitt fyrsta Ólympíugull í íshokkí karla í 46 ár. Síðast unnu Bandaríkjamenn gullið 1980, þegar þeir lögðu ofurlið Sovétmanna í leik sem er jafnan kallaður Kraftaverkið á ísnum. Bandaríska liðið varð einnig Ólympíumeistari 1960 en vann í dag gullið í fyrsta sinn utan Bandaríkjanna. Í 3. leikhluta missti Hughes framtönn eftir viðskipti við Sam Bennett sem var sendur í kælingu. „Fyrsta hugsun var að ná í brot. Reyndar horfði ég fyrst á ísinn og sá tönnina,“ sagði Hughes. Hann lét tannleysið ekki á sig fá og skoraði sigurmarkið eftir eina mínútu og 41 sekúndu í framlengingunni, 2-1. „Fleiri munu horfa á medalíuna hans en tönnina,“ sagði Matt Boldy, samherji Hughes, í léttum dúr, í leikslok. Stoltur Bandaríkjamaður Hughes var fullur þjóðarstolts eftir úrslitaleikinn í Mílanó. „Þetta snerist allt um landið okkar. Ég elska Bandaríkin. Ég elska liðsfélaga mína. Ég er svo stoltur af því að vera Bandaríkjamaður í dag,“ sagði Hughes sem skoraði alls fjögur mörk á Vetrarólympíuleikunum. Hinn 24 ára Hughes leikur með New Jersey Devils í NHL-deildinni og hefur gert frá því liðið valdi hann með fyrsta valrétti í nýliðavalinu 2019. Bandaríkin unnu alla sex leiki sína á Vetrarólympíuleikunum sem lauk í dag. Fjórir sigranna komu í venjulegum leiktíma og tveir í framlengingu. Bandaríska skoraði 26 mörk og fékk á sig níu á leikunum í Mílanó og Cortina.
Íshokkí Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira