Rann á blásara utangátta starfsmanns Sindri Sverrisson skrifar 19. febrúar 2026 14:17 Benjamin Loomis komst í loftið þrátt fyrir að hafa klesst utan í blásara á leiðinni. Getty/Maddie Meyer Mildi þótti að ekki færi verr þegar hinn bandaríski Ben Loomis renndi sér af stað í skíðastökki, á Vetrarólympíuleikunum, og á snjóblásara starfsmanns sem ekki fylgdist nægilega vel með.
Mikil snjókoma hafði áhrif á norrænu tvíkeppnina í dag og brugðu mótshaldarar á það ráð að láta hóp starfsmanna blása nýföllnum snjó af skíðastökksbrekkunni, á milli þess sem keppendur stukku. Einn starfsmaður gleymdi sér hins vegar við blásturinn þannig að Loomis rann á blásarann en náði engu að síður ágætu stökki eins og sjá má. 🫣 On a frôlé la catastrophe : quand Ben Loomis touche la souffleuse à neige sur le concours de saut du combiné nordique 😅Suivez les Jeux Olympiques en intégralité sur Eurosport et HBO Max pic.twitter.com/MpHqkkpD6l— Eurosport France (@Eurosport_FR) February 19, 2026 „Ég hef aldrei upplifað eitthvað þessu líkt. Sem betur fer gerðist þetta efst og ég reyndi bara að tala við sjálfan mig um að ná góðu stökki,“ sagði Loomis við NRK. „Þegar ég fór af stað hugsaði ég með mér hvor hann myndi ekki færa sig. Þetta var ekki vont en það sá á fötunum mínum. Sem betur fer fór þetta bara í öxlina mína. Ef þetta hefði farið í andlitið mitt þá hefði niðurstaðan getað orðið allt önnur,“ sagði Loomis. Hann náði um 116 metra stökki og til greina kom að fara fram á nýtt stökk en vegna þess hve snjókoman var mikil töldu Bandaríkjamennirnir það ekki þess virði. Lasse Ottesen, brautarstjóri alþjóðaskíðasambandsins, segir manninn sem gleymdi sér hafa beðist afsökunar. „Aðstæðurnar voru mjög krefjandi. Teymið stóð sig frábærlega. Mjög óheppilegt það sem kom fyrir með Loomis. Það var gott að það skyldi ekkert meira gerast en svona á ekki að gerast,“ sagði Ottesen.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Sjá meira