

Olís-deild karla
Leikirnir

Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið
Valsmenn áttu ekki í miklum vandræðum með HK-inga í Olís deild karla í handbolta í kvöld.

Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin
Afturelding náði FH á stigum á toppi Olís deildar karla í handbolta en þurfti að hafa mikið fyrir sigri sínum á móti Fjölni. Stjarnan vann öruggan sigur á ÍR á sama tíma.

Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu
Haukar voru í miklum ham gegn Gróttu í kvöld en lokatölur voru 25-42 fyrir Hafnarfjarðarliðinu.

FH-ingar í fínum gír án Arons
FH-ingar áttu ekki í miklum vandræðum með að tryggja stöðu sína á toppi Olís deildar karla í handbolta í kvöld en þeir unnu þá öruggan 36-25 sigur á KA-mönnum.

Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum
Rúnar Kárason átti stórleik þegar Fram sótti tvö stig út í Vestmannaeyjar í Olís deild karla í handbolta í kvöld.

Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni
Baldur Fritz Bjarnason, leikmaður ÍR, er markahæsti leikmaður Olís deildar karla í handbolta nú þegar deildin er komin í landsleikjafrí.

„Svona högg gerir okkur sterkari“
Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, segir að úrslit dagsins, sex marka tap gegn FH, séu vissulega vonbrigði. Hann hafi strax fundið það að verkefni dagsins yrði erfitt.

„Menn hafa sýnt mikla fagmennsku í því hvernig þeir hugsa um sig“
Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var að vonum ánægður með glæsilegan 35-29 sigur sinna manna gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ.

Uppgjörið: Afturelding - FH 29-35 | Ríkjandi meistarar kunna vel við sig í Mosó
Afturelding tók á móti FH í sannkölluðum toppslag í Olís deild karla í handbolta. Svo fór að lokum að FH fór með afar sannfærandi sex marka sigur af hólmi. Lokatölur 29-35 fyrir gestina sem jafna Aftureldingu að stigum en liðin deila nú toppsætinu þegar níu umferðum er lokið.

Sigurmark þremur sekúndum fyrir leikslok á Nesinu
Eftir að hafa verið undir nær allan leikinn vann Valur Gróttu, 21-22, á Seltjarnarnesi í Olís-deild karla í kvöld. Bjarni í Selvindi skoraði sigurmark Valsmanna þegar þrjár sekúndur voru eftir.

ÍBV með stórsigur gegn ÍR meðan KA og Stjarnan skildu jöfn
ÍBV heimsótti ÍR og vann 41-31 stórsigur í Olís deild karla. KA tók á móti Stjörnunni og kastaði frá sér sigri, 27-27 lokaniðurstaðan.

KA enn á botninum eftir tap í Eyjum
ÍBV vann sterkan fimm marka sigur er liðið tók á móti botnliði KA í Olís-deild karla í handbolta í dag, 36-31.

Valsmenn náðu að jafna í lokin
Fram og Valur gerðu 31-31 jafntefli í Reykjavíkurslag í Olís deild karla í handbolta í kvöld.

Afturelding á toppinn og Grótta tapar enn
Afturelding komst á toppinn í Olís deild karla í handbolta í kvöld eftir sjö marka sigur á Stjörnunni í Garðabænum.

Uppgjörið: HK - ÍR 37-31| HK vann botnslaginn
HK fór með sigur af hólmi gegn ÍR í Olís-deild karla í handbolta í kvöld er liðin mættust í Kórnum.

Þakklátir fyrir en sjá á eftir Aroni: „Útskýrði vel fyrir liðinu hvað væri í gangi“
Karlalið FH í handbolta tekur á móti sænsku meisturunum í Savehof í 3.umferð Evrópudeildarinnar í Kaplakrika í kvöld. Um er að ræða fyrsta leik FH liðsins eftir brotthvarf stórstjörnunnar Arons Pálmarssonar. Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, segir alla í FH liðinu sýna Aroni skilning með ákvörðun hans og samgleðjast honum. Fram undan sé hins vegar mikil vinna sem felst í því að reyna fylla í hans skarð.

Aron orðinn leikmaður Veszprém á ný
Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, er genginn til liðs við ungverska stórveldið Veszprém og hefur því leikið sinn síðasta leik fyrir FH á þessu tímabili.

Grótta náði í stig gegn meisturum FH
Gróttumenn halda áfram að gera góða hluti í Olís-deild karla í handbolta og þeir komu í veg fyrir að Íslandsmeistarar FH kæmust á toppinn í kvöld, þegar liðin gerðu 24-24 jafntefli á Seltjarnarnesi.

Fjölnir nálægt því sem Porto tókst ekki en Valskonur á siglingu
Kvenna- og karlalið Vals voru bæði í eldlínunni í kvöld í Olís-deildunum í handbolta. Valskonur unnu Gróttu af öryggi, 38-30, og hafa unnið alla leiki sína til þessa, en karlalið Vals lenti í hremmingum gegn nýliðum Fjölnis í Grafarvogi.

KA og ÍR fögnuðu eftir spennu
ÍR-ingar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Fram að velli í Breiðholti í kvöld, 35-34, eftir spennuleik í Olís-deild karla í handbolta. KA-menn unnu HK-inga með sömu tölum á Akureyri og hafa því líkt og ÍR-ingar unnið tvo leiki af sjö.

Kristján rifbeinsbrotnaði: „Fannst þetta klárt rautt spjald“
„Frábær leikur í alla staði. Fyrri hálfleikurinn stórkostlegur, tíu mörkum yfir í hálfleik og það er líka ákveðin kúnst að vera tíu mörkum yfir í hálfleik,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, eftir að lið hans burstaði ÍBV í Olís-deild karla. Lokatölur 38-27.

Aron aftur til Veszprém eftir stormasaman viðskilnað
Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, mun yfirgefa FH og spila með ungverska stórliðinu Veszprém á nýjan leik, út yfirstandandi leiktíð.

Uppgjörið: Afturelding - ÍBV 38-27 | Mosfellingar á toppinn með stórsigri
Afturelding hefur unnið fimm af fyrstu sjö leikjum sínum í Olís-deild karla í handbolta, eftir að liðið tók Eyjamenn í bakaríið í kvöld og fagnaði 38-27 sigri.

Aron Dagur í Kópavoginn
Aron Dagur Pálsson hefur samið við HK út yfirstandandi tímabil í Olís-deild karla í handbolta. Hann kemur frá Val þar sem samningur hans rann út í sumar.

Allt jafnt á Ásvöllum
Haukar og Stjarnan gerðu jafntefli í Olís-deild karla í handbolta. Hvorugu liðinu tókst að skora sigurmarkið en staðan var jöfn 20-20 þegar rúmlega tvær mínútur voru til leiksloka, reyndust það lokatölur.

Tveir Valsmenn valdir í færeyska landsliðið
Valsmenn eiga tvo fulltrúa í nýjasta landsliðshópi Færeyinga í handboltanum en á dagskránni eru mikivægir leikir í undankeppni EM.

Aronslausir FH-ingar unnu nýliðana
Íslandsmeistarar FH unnu nokkuð þægilegan sigur á Fjölni þegar liðin mættust í Kaplakrika í Olís-deildinni í kvöld.

Valsmenn rufu fjörutíu marka múrinn
Valsmenn fögnuðu í kvöld sínum þriðja sigri í röð í Olís deild karla í handbolta þegar liðið vann fimm marka sigur á ÍR-ingum á Hlíðarenda.

Framarar áfram á sigurbraut í Lambhagahöllinni
Framarar unnið þriðja heimaleik sinn í röð í Olís deild karla í handbolta í kvöld þegar KA-menn komu í heimsókn í kvöld.

Toppliðið tapaði og Afturelding fór á toppinn
Stjarnan vann góðan 30-29 sigur á toppliði Gróttu í Olís-deild karla í kvöld, 30-29. Á sama tíma lagði Afturelding öruggan 32-24 sigur á HK og tylla sér því á topp deildarinnar í bili.