Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. júní 2026 19:42 Hrannar Guðmundsson og Ingimundur Ingimundarson munu þjálfa Aftureldingu. afturelding Ingimundur Ingimundarson og Hrannar Guðmundsson eru nýir þjálfarar karlaliðs Aftureldingar í handbolta.
Afturelding tilkynnir um ráðningu á samfélagsmiðlum félagsins. Stefán Árnason þjálfaði liðið á síðasta tímabili en hann entist aðeins í eitt ár eftir að hafa tekið við af Gunnari Magnússyni. Hrannar Guðmundsson hefur stýrt karlaliði Stjörnunnar síðustu þrjú tímabil en er uppalinn hjá Aftureldingu og snýr nú heim í Mosfellsbæinn. Ingimundur Ingimundarson var hluti af landsliði Íslands sem vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum 2008. Hann hefur þjálfað yngri flokka hjá Val undanfarin ár. Tilkynning Aftureldingar: Það gleður okkur að tilkynna að Handknattleiksdeild Aftureldingar hefur ráðið þá Hrannar Guðmundsson og Ingimund Ingimundarson sem þjálfara meistaraflokks karla í handbolta.Hrannar er Mosfellingum að góðu kunnur. Hann er uppalinn hjá Aftureldingu, lék með öllum yngri flokkum félagsins og steig sín fyrstu skref í þjálfun í Mosfellsbæ. Undanfarin ár hefur Hrannar byggt upp öflugan þjálfaraferil. Hann hefur starfað sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Aftureldingu og ÍR, auk þess að hafa verið aðalþjálfari meistaraflokks karla og kvenna hjá Stjörnunni. Þá er Hrannar hluti af þjálfarateymi A-landsliðs karla.Ingimundur Ingimundarson kemur inn í þjálfarateymið með Hrannari og færir félaginu mikla reynslu og þekkingu. Hann var lykilmaður í einu sigursælasta landsliði Íslands frá upphafi, vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum 2008 og bronsverðlaun á Evrópumótinu 2010, auk þess að leika 123 A-landsleiki fyrir Ísland.Sem leikmaður átti Ingimundur afar farsælan feril bæði hér heima og erlendis og lék meðal annars sem atvinnumaður í Sviss, Danmörku, Noregi og Þýskalandi. Hann var hluti af þjálfarateymi Akureyrar á árunum 2016–2018 og hefur síðan þá sinnt þjálfun yngri flokka með góðum árangri, síðast hjá Val.Við erum afar stolt af því að fá Hrannar og Ingimund til liðs við okkur. Hrannar þekkir félagið, menninguna og umhverfið í Mosfellsbæ út og inn, á meðan reynsla og þekking Ingimundar mun nýtast félaginu afar vel, ekki síst í áframhaldandi þróun ungra og efnilegra leikmanna Aftureldingar.Saman mynda þeir metnaðarfullt og öflugt þjálfarateymi sem mun leiða meistaraflokk karla inn í spennandi framtíð og áframhaldandi uppbyggingu á meðal fremstu liða landsins.
Olís-deild karla Afturelding Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Íslenski boltinn „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Raheem Sterling játar sök Enski boltinn Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira