Magnús Stefánsson til ÍBV Magnús Stefánsson, sem leikið hefur með Fram undanfarin ár, hefur ákveðið að söðla um og ganga til liðs við 1. deildarlið ÍBV. Handbolti 14. maí 2011 12:45
Aron segist ekki tekinn við Haukaliðinu Handboltaþjálfarinn Aron Kristjánsson segist ekki vera tekinn aftur við Haukum eins og fullyrt er á fréttamiðlinum sport.is í dag. Haukar eru að leita sér að nýjum þjálfara eftir að hafa misst af úrslitakeppni N1 deildar karla í vetur. Handbolti 12. maí 2011 12:30
Ernir Hrafn til reynslu hjá Düsseldorf Valsarinn, Ernir Hrafn Arnarson, er þessa daganna á reynslu hjá handknattleiksliðinu HSG Düsseldorf en liðið leikur í 2. deild. Handbolti 11. maí 2011 16:45
Hreinn Þór hættur í handbolta Hreinn Þór Hauksson, leikmaður Akureyrar, er mjög líklega hættur í handbolta en hann mun fljótlega halda í nám í Svíþjóð. Handbolti 9. maí 2011 16:25
Framarar harma ummæli Reynis Stjórn handknattleiksdeildar Fram hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem ummæli fráfarandi þjálfara, Reynis Þórs Reynissonar, eru hörmuð. Þeim var þó ekki svarað með beinum hætti. Handbolti 9. maí 2011 11:24
Ætla ekki að munnhöggvast við Reyni Reynir Þór Reynisson, sem hætti sem þjálfari Fram í gær, segir að taka þurfi til í leikmannamálum félagsins og bar leikmennina þungum sökunum í viðtali við Fréttablaðið. Handbolti 7. maí 2011 09:30
Leikmenn með slæmt hugarfar Reynir Þór Reynisson, sem þjálfaði meistaraflokk karla hjá Fram í vetur, er hættur hjá félaginu eftir að hafa komist að samkomulagi þess efnis við stjórn handknattleiksdeildar Fram. "Það má segja að leið mín og leikmanna hafi ekki legið saman,“ segir Reynir í samtali við Fréttablaðið. Handbolti 7. maí 2011 09:00
Reynir: Þarf að hreinsa til í leikmannahópi Fram Reynir Þór Reynisson segir að samstarfserfiðleikar við leikmenn Fram hafi verið helsta ástæðan fyrir því að hann hætti sem þjálfari liðsins, sem tilkynnt var í dag. Handbolti 6. maí 2011 17:31
Reynir Þór hættur hjá Fram Handknattleiksdeild Fram hefur komist að samkomulagi við Reyni Þór Reynisson, þjálfara meistaraflokks karla, að hann láti af störfum hjá félaginu. Handbolti 6. maí 2011 15:27
Ásbjörn skoraði flest mörk í úrslitaeinvíginu FH-ingurinn Ásbjörn Friðriksson var markahæsti leikmaðurinn í úrslitaeinvígi FH og Akureyrar í N1 deild karla í handbolta sem lauk með sigri FH í gær. Ásbjörn skoraði einu marki meira en Ólafur Guðmundsson og Akureyringurinn Oddur Grétarsson. Handbolti 5. maí 2011 14:15
Myndasyrpa af fögnuði FH-inga FH varð í gærkvöldi Íslandsmeistari í handbolta karla í fyrsta sinn í nítján ár eftir 3-1 sigur á Akureyri í úrslitarimmu liðanna í úrslitakeppni N1-deild karla. Handbolti 5. maí 2011 08:30
Eyðimerkurgöngu FH-inga lokið Einbeittir, grimmir og sterkir FH-ingar lögðu Akureyri, 28-24, í fjórða leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. FH vann rimmuna 3-1 og er vel að titlinum komið. Handbolti 5. maí 2011 08:00
Atli: Ég er stoltur af strákunum „Þetta er mjög sárt. Sérstaklega þar sem við vorum alltaf inni í leiknum og mér fannst við síst vera lakara liðið,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, og vonbrigðin leyndu sér ekki á andliti hans. Handbolti 5. maí 2011 07:30
Ólafur: Þetta var fullkomið Stórskyttan unga í liði FH, Ólafur Guðmundsson, fór mikinn í liði FH í gær og ljóst var að hann vildi klára dæmið á heimavelli. Ólafur var að leika sinn síðasta leik fyrir FH í bili en hann spilaði sem lánsmaður frá danska liðinu AGK, sem keypti hann síðasta sumar. Handbolti 5. maí 2011 07:00
Einar Andri: Við erum besta lið á Íslandi "Það er vonlaust að lýsa því. Það er frábært að ná að vinna þetta eftir nítján ár,“ sagði Einar Andri Einarsson, annar þjálfara FH, eftir að hans lið vann Akureyri 3-1 í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Handbolti 4. maí 2011 22:24
Baldvin: Næsta sem ég geri er að klára ginflöskuna Baldvin Þorsteinsson, leikmaður FH, var kampakátur eftir að liðið hampaði Íslandsmeistaratitlinum í handbolta. Handbolti 4. maí 2011 21:55
Umfjöllun: Bið FH-inga á enda FH-ingar urðu í kvöld Íslandsmeistarar í handbolta í fyrsta skipti í 19 ár þegar þeir unnu sigur á Akureyri, 28-24, í hreint út sagt frábærum handboltaleik fyrir framan 3.000 áhorfendur í Kaplakrika. FH vann úrslitarimmu liðanna 3-1. Handbolti 4. maí 2011 21:06
Framkvæmdastjóri FH: Bærinn er á hvolfi Það verður mikið um dýrðir í Kaplakrika í kvöld þegar fjórði leikur FH og Akureyrar um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta fer fram. Handbolti 4. maí 2011 14:45
Áhorfendametið í Krikanum á 19 ára afmæli í dag FH-ingar vonast til þess að slá áhorfendametið í Kaplakrikanum þegar fjórði úrslitaleikur FH og Akureyrar fer þar fram í kvöld. FH-ingar eru 2-1 yfir í úrslitaeinvíginu og geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í þessum leik sem hefst klukkan 19.30. Handbolti 4. maí 2011 14:15
Guðlaugur: Sveinbjörn var frábær Guðlaugur Arnarsson var sem klettur í vörn Akureyrar í dag er liðið vann FH 23-22 í æsispennandi leik. Akureyri er 2-1 undir í einvíginu en lék betur í dag en í hinum tveimur leikjunum. Handbolti 1. maí 2011 18:32
Pálmar: Datt þeirra megin í dag Húsvíkingurinn Pálmar Pétursson var eðlilega hundsvekktur með tapið gegn Akureyri í dag. FH fór tómhent heim að norðan eftir 23-22 sigur Deildarmeistaranna í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Handbolti 1. maí 2011 18:28
Heimir og Baldvin: Ræðst á lokaskotinu Æskufélagarnir Heimir Örn Árnason og Baldvin Þorsteinsson skiptust á léttum skotum eftir sigur Akureyrar á FH í dag, 23-22. Heimir segir að úrslitin í einvíginu ráðist ekki fyrr en á lokaskoti þess, á föstudaginn. Handbolti 1. maí 2011 18:20
Umfjöllun: Enn er líf í Akureyringum Akureyri vann nauman sigur á FH í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í dag. Akureyri vann leikinn 23-22 og því er staðan í einvígi liðanna um titilinn 2-1 fyrir FH. Næst er leikið á miðvikudag. Handbolti 1. maí 2011 16:35
Heimir: Það vill enginn fara í sumarfrí Heimir Örn Árnason, leikmaður Akureyrar, ætlar sér alls ekki að fara í sumarfrí í dag og telur að lið sitt geti hæglega unnið FH í Höllinni á Akureyri kl 16:00 nú síðdegis. Handbolti 1. maí 2011 14:03
Jóhann Gunnar spáir í þriðja leik Akureyrar og FH Jóhann Gunnar Einarsson, leikmaður Fram, hefur verið einn af öflugustu leikmönnum Safamýrapilta í vetur og fékk Vísir hann til að spá fyrir um þriðja leik Akureyrar og FH í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Handbolti 1. maí 2011 13:45
Ársþing HSÍ: Fleiri leikir í úrslitakeppninni næsta vetur Ársþing HSÍ var haldið í dag og bar helst til tíðinda að lítilsháttar breytingar voru gerðar á úrslitakeppni deildanna. Handbolti 30. apríl 2011 20:00
FH einum sigri frá fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í 19 ár - myndir FH-ingar geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla með sigri á Akureyri í þriðja úrslitaleik liðanna á Akureyri á morgun. FH vann 28-26 sigur í öðrum leiknum í Kaplakrika í gær en hafði unnið fyrsta leikinn með einu marki á Akureyri. Handbolti 30. apríl 2011 10:00
Einar Andri: Gerum allt til að landa titlinum „Þetta er góð staða sem við erum komnir í og liðið hefur sýnt flottan karakter í þessum fyrstu leikjum,“ sagði Einar Andri Einarsson, annar þjálfari FH, eftir sigurinn í kvöld. Handbolti 29. apríl 2011 23:18
Ásbjörn: Þægilegt, en alls ekki búið „Það er virkilega þægilegt að vera komnir í 2-0 í einvíginu,“ sagði Ásbjörn Friðriksson, leikmaður FH, eftir sigurinn í kvöld. FH vann Akureyri, 28-26, í öðrum leik liðanna sem fram fór í Kaplakrika. Handbolti 29. apríl 2011 23:07
Atli: Ég verð að fara í gamlar æfingabækur "Þetta er alls ekki staðan sem við vildum vera í eftir tvo leiki,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, eftir tapið gegn FH í kvöld. Handbolti 29. apríl 2011 22:53
Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 122-115 | Háspenna lífshætta í ótrúlegum sigri Grindvíkinga Körfubolti