Stemning í Mosfellsbænum - myndir Það var flott stemning í íþróttahúsinu að Varmá í kvöld þegar Afturelding tók á móti ÍR í N1-deild karla í handbolta. Handbolti 24. september 2012 22:02
Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikirnir á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í N1-deild karla samtímis. Handbolti 24. september 2012 19:00
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - ÍR 25-28 ÍR-ingar komu sáu og sigruðu í Mosfellsbænum í kvöld þegar þeir unnu Aftureldingu, 28-25, í N1-deild karla en gestirnir léku sinn fyrsta leik í efstu deild í nokkur ár. Handbolti 24. september 2012 15:25
Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - FH 23-23 Það var boðið upp á fínasta handbolta og góða stemmingu á Akureyri í kvöld þegar heimamenn tóku á móti FH. Gestirnir mættu norður án þess að taka með sér Ólaf Gústafsson sem er að slást við meiðsli í ökkla og Baldvin Þorsteinsson sem var fjarverandi vegna vinnu en þetta eru tveir mjög svo mikilvægir leikmenn í liði FH. Handbolti 24. september 2012 15:21
Íslenski handboltinn verður á RÚV næstu fimm árin Handknattleikssamband Íslands gerði í gær nýjan samning við RÚV um sýningarrétt frá íslenskum handknattleik. Samningurinn er til næstu fimm ára og tryggir RÚV sýningarrétt á öllum leikjum Íslands- og bikarkeppna karla og kvenna sem og landsleikja Íslands hér á landi. Handbolti 21. september 2012 09:45
Umfjöllun og viðtöl: HK - Haukar 29-23 | Meistarakeppni HSÍ Íslandsmeistarar og fallkandídatar HK blésu á allar spár með því að sigra Íslandsmeistaraefnum Hauka 29-23 í Meistarakeppni HSí í kvöld. HK var yfir allan seinni hálfleikinn og vann verðskuldaðan sigur með því að skora sjö af átta síðustu mörkum leiksins. Handbolti 19. september 2012 19:30
Aron: Erum ekki með neitt yfirburðalið Landsliðsþjálfarinn mun stýra Haukaliðinu í vetur en síðan segja skilið við félagið. Í bili að minnsta kosti. Lærisveinum Arons er spáð yfirburðasigri í N1-deildinni í vetur. Handbolti 19. september 2012 15:00
Meisturunum spáð falli | Haukum og Val spáð titlinum Kynningarfundur N1-deildanna fór fram í hádeginu í dag. Á fundinum var kynnt spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna fyrir veturinn. Handbolti 19. september 2012 12:52
FH og Fram unnu leiki sína á fyrsta degi Subways-mótsins FH vann eins marks sigur á Aftureldingu og Fram vann fjögurra marka sigur á Gróttu á fyrsta degi Subways-æfingamótsins í handbolta karla. Ólafur Gústafsson skoraði níu mörk í sigri FH-inga og Sigurður Þorsteinsson skoraði 9 mörk í sigri Fram. Handbolti 13. september 2012 22:44
Bjarki hafði betur gegn Patreki í kvöld - myndir Landsliðsgoðsagnirnar Bjarki Sigurðsson og Patrekur Jóhannesson mættust í kvöld með lið sín í óopinberum úrslitaleik Reykjavíkurmóts karla í handbolta. Strákarnir hans Bjarka í ÍR höfðu betur í leiknum en þeir unnu Val 26-22 og tryggðu sér Reykjavíkurmeistaratitilinn. Handbolti 13. september 2012 22:15
ÍR-ingar Reykjavíkurmeistarar í handbolta karla ÍR-ingar unnu í kvöld fyrsta titilinn í karlahandboltanum í vetur þegar þeir tryggðu sér Reykjavíkurmeistaratitilinn með fjögurra marka sigri á Val í Vodafone-höllinni. ÍR-ingar unnu alla fimm leiki sína í mótinu í ár en þeir eru að koma upp í N1 deild karla að nýja og hafa endurheimt marga uppalda ÍR-inga. Handbolti 13. september 2012 21:37
Haukar unnu Hafnarfjarðamótið - fjórir Mosfellingar í úrvalsliðinu Haukar tryggðu sér sigur á Hafnarfjarðarmótinu í handbolta í gær eftir 17-11 sigur á nágrönnum sínum í FH en spilað var á Strandgötunni. Haukar unnu alla leiki sína á mótinu því höfðu áður unnið 28-27 sigur á Aftureldingu og 35-11 sigur á Fram. Handbolti 1. september 2012 15:15
Afturelding og Valur með sigra í handboltanum Karlalið Aftureldingar og kvennalið Vals unnu sigra á æfingamótum í handbolta sem lauk um helgina. Handbolti 27. ágúst 2012 15:45
Aron ráðinn þjálfari til ársins 2015 | Þjálfar líka Hauka í vetur Aron Kristjánsson var í hádeginu ráðinn landsliðsþjálfari A-landsliðs karla til ársins 2012. Aron mun einnig þjálfa Haukaliðið í vetur en hætta næsta sumar og einbeita sér alfarið að vinnu sinni fyrir HSÍ. Handbolti 22. ágúst 2012 11:42
Arftaki Guðmundar tilkynntur í hádeginu HSÍ hefur boðað til blaðamannafundar í hádeginu en þar verður tilkynnt um nýjan landsliðsþjálfara í handknattleik en eins og kunnugt er þá lét Guðmundur Guðmundsson af starfi sínu eftir Ólympíuleikana. Handbolti 22. ágúst 2012 09:33
Akureyri með tvo erlenda markverði í vetur Akureyri Handboltafélag hefur fengið markvörðinn Tomas Olason til liðs við sig. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins. Tomas kemur frá danska b-deildarliðinu Odder en hann á íslenskan föður. Handbolti 16. ágúst 2012 12:00
Arftaki Guðmundar kynntur í næstu viku Einar Einarsson, formaður landsliðsnefndar HSÍ, staðfesti við Fréttablaðið í gær að nýr landsliðsþjálfari karlalandsliðsins yrði tilkynntur í næstu viku. Handbolti 16. ágúst 2012 07:00
Vilhelm Gauti ráðinn spilandi aðstoðarþjálfari Íslandsmeistaranna Vilhelm Gauti Bergsveinsson, fyrirliði Íslandsmeistara HK, fékk meiri ábyrgðarstöðu hjá félaginu í dag þegar hann var ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins. Handbolti 9. ágúst 2012 17:00
Haukar til Svartfjallalands - ferð til Úkraínu í boði Haukar verða með í EHF-keppni karla í handbolta og í dag kom í ljós að liðið mætir HC Mojkovac frá Svartfjallalandi í fyrstu umferð keppninnar. Takist Haukum að slá út Svartfellingana þá bíður liðsins leikir á móti Zaporoshye frá Úkraníu í annari umferð. Handbolti 25. júlí 2012 16:27
Serbneskur markvörður til Akureyrar Akureyri, sem leikur í efstu deild karla í handbolta, hefur gengið frá samningi við sebneska markvörðinn Jovan Kukobat. Hann skrifaði undir tveggja ára samning en greint er frá tíðindunum á heimasíðu félagsins. Handbolti 11. júlí 2012 08:30
Kári Kristján vann einvígi ársins Landsliðsmaðurinn í handknattleik, Kári Kristján Kristjánsson, hafði betur gegn besta körfuboltamanni Vestmannaeyja, Daða Guðjónssyni, í "Einvígi ársins" eins og það var kallað í Eyjum. Handbolti 23. júní 2012 23:30
Helga fyrsta konan sem er kjörin í framkvæmdastjórn EHF Helga Magnúsdóttir var í dag kjörinn í framkvæmdastjórn evrópska handknattleikssambandsins, EHF. Tíu voru í kjöri en aðeins þrjú sæti í boði. Handbolti 22. júní 2012 13:52
Kári Kristján í körfuboltaeinvígi í Vestmannaeyjum Landsliðsmaðurinn í handknattleik, Kári Kristján Kristjánsson, og körfuboltamaður Vestmannaeyja árið 2011, Daði Guðjónsson, mætast í miklu körfuboltaeinvígi í Eyjum í kvöld. Handbolti 22. júní 2012 11:45
U-20 ára hópurinn sem fer á EM í Tyrklandi Þeir Geir Sveinsson og Kristján Halldórsson, þjálfarar U-20 árs liðs karla í handknattleik, hafa valið lokahópinn sem tekur þátt í lokakeppni EM í Tyrklandi frá 3. til 15. júlí. Handbolti 21. júní 2012 12:20
Mikilvægt fyrir þjóðina að sagan sé skráð „Það er ekki bara mikilvægt fyrir HSÍ heldur fyrir Ísland sem þjóð að skrá þessa merku sögu. Handboltinn er svo greiptur í þjóðarsálina hjá okkur og gaman að geta gengið að sögunni frá upphafi fram á síðustu daga sem eru glæstir," segir Knútur Hauksson formaður Handknattleikssambands Íslands en saga íþróttarinnar á Íslandi síðustu 90 árin er komin á prent. Handbolti 13. júní 2012 06:30
Björgvin spilar með ÍR - ÍR-ingar streyma heim í Breiðholtið Handknattleiksmaðurinn Björgvin Hólmgeirsson hefur gert tveggja ára samning við ÍR og mun spila með nýliðunum í N1 deild karla næsta vetur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍR. Handbolti 10. júní 2012 19:00
Akureyringar spenntir fyrir serbneskum markverði | Ekkert frágengið Bjarni Fritzson, annar þjálfara handboltaliðs Akureyrar, segist vonast til þess að félagið semji við serbneskan markvörð sem hefur verið á reynslu hjá félaginu. Handbolti 8. júní 2012 10:17
Guðmundur: Búinn að vera stórkostlegur tími Það styttist í kveðjustund Guðmundar Guðmundssonar með landsliðið. Það var tilkynnt um helgina að Guðmundur hætti með liðið eftir ÓL í sumar. Hann hefur náð einstökum árangri með landsliðið. Eftir rúmlega fjögur farsæl ár í starfi landsliðsþjálfara styttist í að Guðmundur Guðmundsson láti af störfum. Það gerir hann í ágúst að loknum Ólympíuleikunum. Handbolti 4. júní 2012 07:00
Guðmundur hættir eftir Ólympíuleikana Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik, mun láta af störfum sem landsliðsþjálfari eftir Ólympíuleikana í London. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HSÍ í dag. Handbolti 2. júní 2012 16:35
Íslandsmeistararnir missa Atla Ævar til Danmerkur Atli Ævar Ingólfsson, línumaður Íslandsmeistaraliðs HK, hefur ákveðið að söðla um og spila með danska úrvalsdeildarliðinu SønderjyskE á næstu leiktíð. Handbolti 31. maí 2012 18:34