Tók saman kort með andlátum ferðamanna á Íslandi undanfarin ár Kristján Hlynur Ingólfsson hefur undanfarin tvö ár tekið saman upplýsingar um dauðsföll ferðamanna á Íslandi og er núna búinn að búa til kortasjá sem sýnir hvar á landinu ferðamenn hafa dáið. Hann segir þrjá staði á Suður- og Suðvesturlandi vera stærstu álagssvæðin. Innlent 18. júlí 2022 15:40
Ókunnugt fólk skrái sig ítrekað til heimilis hjá honum Íbúi í Vík í Mýrdal hefur lent í því þrisvar upp á síðkastið að ókunnugt fólk skrái sig til heimilis í þinglýstri eign hans, án hans samþykkis. Hann gagnrýnir Þjóðskrá fyrir að leyfa hverjum sem er að skrá heimilisfangið sitt hvar sem er, án leyfis eiganda eignarinnar. Innlent 15. júlí 2022 18:33
Söguleg stund þegar fyrsti bjórinn var seldur úr húsi Þau voru sannarlega langþráð, viðskiptin sem urðu að veruleika í brugghúsinu Smiðjunni á Vík í dag þegar brugghúsið varð það fyrsta í sögu landsins til að selja bjór frá framleiðslustað. Innlent 14. júlí 2022 12:47
Skjálftar í Mýrdalsjökli Sex skjálftar mældust rétt fyrir klukkan fimm í dag í Mýrdalsjökli. Stærstu skjálftarnir voru 3,0 og 2,7 að stærð en hinir skjálftarnir voru minni. Innlent 10. júlí 2022 17:43
Einvígi aldarinnar 50 ára – Afmælinu fagnað í Vík í Mýrdal Kötlusetur í Vík í Mýrdal mun fagna því á morgun, 9. júlí að 50 ár eru liðin frá einvígi aldarinnar í skák með skáksýningu og hraðskákmóti í setrinu. Innlent 8. júlí 2022 11:15
Gul viðvörun gefin út fyrir Suðausturland Gul viðvörun verður í gildi á Suðausturlandi frá klukkan 11 til klukkan 23 á morgun, fimmtudag. Veður 6. júlí 2022 11:14
Hitaveita á köldum svæðum álitlegri með tækniframförum í jarðhitaleit Ísafjörður, Patreksfjörður og Grundarfjörður eru í flokki álitlegustu þéttbýlisstaða á Íslandi til að fá hitaveitu, að mati jarðfræðings hjá ÍSOR, sem segir tækniframfarir í jarðhitaleit kalla á endurmat á svokölluðum köldum svæðum hérlendis. Innlent 28. júní 2022 22:44
Grænt ljós á aðvörunarljós í Reynisfjöru sem fara upp á næstunni Unnið er að því að setja upp aðvörunarljós í Reynisfjöru. Reiknað er með því að ljósin verði kominn upp í næsta mánuði. Innlent 28. júní 2022 14:24
„Það sér það hver maður að við landeigendur erum ekki að fara að greiða úr eigin vasa“ Samráðsfundur stjórnvalda með landeigendum í Reynisfjöru var haldinn í gærkvöldi. Einn landeigenda segir mjög gott hljóð vera í hópnum og fundinn hafa gengið vel. Strax á föstudag hefst formlegt samstarf um að efla öryggi ferðamanna í Reynisfjöru. Innlent 22. júní 2022 14:35
Sammála um að ljúka uppsetningu viðvörunarkerfis í Reynisfjöru Samráðsfundur stjórnvalda með landeigendum í Reynisfjöru var haldinn í kvöld. Þeir sem sóttu fundinn voru sammála um að ljúka ætti uppsetningu viðvörunarkerfis í fjörunni. Samráðshópur hefur fengið það verkefni að útbúa tímasetta aðgerðaráætlun til að efla öryggi á svæðinu. Innlent 21. júní 2022 21:53
Erlendur ferðamaður lést í slysinu við Vík Ökumaður fólksbifreiðar, erlendur karlmaður á sjötugsaldri, lést í bílslysinu sem varð austan við Vík í Mýrdal í dag. Eiginkona hans var flutt alvarlega slösuð með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann. Innlent 16. júní 2022 22:51
Einn fluttur með þyrlu Gæslunnar á Landspítalann Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við Landspítalann með mann sem slasaðist í alvarlegu umferðarslysi austan við Vík í Mýrdal nú um klukkan 18:00. Bifreiðar úr gangstæðri átt skullu saman á þjóðvegi 1 við Kúðafljót. Innlent 16. júní 2022 18:11
Fylgjast með innlyksa fólki í Reynisfjöru Lögreglu- og björgunarsveitarfólk fylgist nú með tveimur ferðamönnum sem urðu innlyksa í Reynisfjöru á flóði. Búist er við að hægt verði að koma þeim til hjálpar þegar fjarar út í kvöld. Innlent 14. júní 2022 19:00
„Getum ekki horft á þessa stöðu mikið lengur“ „Við getum ekki horft á þessa stöðu mikið lengur,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála, um ástandið í Reynisfjöru þegar kemur að öryggi ferðamanna. Hún hyggst ræða við landeigendur og fulltrúa ferðaþjónustunnar um málið í næstu viku og kveðst opin fyrir því að loka ströndinni tímabundið þegar sjávarföll eru talin lífshættuleg. Innlent 14. júní 2022 14:47
Skrifræði ríkisins hafi aftrað úrbótum í Reynisfjöru Talsmaður hóps landeigenda að Reynisfjöru segir að inngrip hins opinbera hafi aftrað úrbótum á öryggismálum í Reynisfjöru. Það sé sárt að heyra því haldið fram að það séu landeigendurnir sem vilji ekki bæta öryggi í fjörunni. Innlent 13. júní 2022 20:00
Ferðamenn í sjálfheldu í Reynisfjöru Ferðamenn komust í sjálfheldu í flæðarmálinu í Reynisfjöru í dag, degi eftir að erlendur ferðamaður lést þar. Hópur fólks lenti í öldu í fjörunni en öllum tókst þó að komast aftur á þurrt. Innlent 11. júní 2022 15:56
„Ekki boðlegt að fólk sé að deyja þarna við þessar aðstæður“ Erlendur ferðamaður á áttræðisaldri lést í Reynisfjöru í gær. Viðvörunarskilti eru í fjörunni en nokkur banaslys hafa orðið þar á undanförnum árum. Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir erfitt að meta hvað annað væri hægt að gera en takmarka aðgengi að fjörunni til að koma í veg fyrir slys. Innlent 11. júní 2022 12:30
Banaslys í Reynisfjöru Erlendur ferðamaður, karlmaður á áttræðisaldri lést í gær þegar alda hreif hann með sér úr Reynisfjöru og út í sjó. Innlent 11. júní 2022 09:44
Þyrla Landshelgisgæslunnar náði manni úr sjónum við Reynisfjöru Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um fimmleytið í dag þar sem erlendur ferðamaður hafði lent í sjónum við Reynisfjöru. Þyrlan kom á vettvang tæpri klukkustund síðar og náði manninum úr sjónum. Innlent 10. júní 2022 18:56
Einar Freyr verður sveitarstjóri Mýrdalshrepps eftir sigur B-lista B-listi Framsóknar og óháðra tryggði sér þrjá fulltrúa í sveitarstjórn Mýrdalshrepps í kosningunum á laugardag og hélt þar með meirihluta sínum. A-listi Allra náði inn tveimur mönnum. Innlent 17. maí 2022 11:25
Konan sem storkaði dauðanum með bros á vör Ljósmyndarar Vísis sáu sér til skelfingar þegar brimið náði taki á konu nokkurri, bandarískum ferðamanni, en betur fór en á horfðist. Myndirnar sem þeir náðu af atvikinu eru einhvers staðar mitt á milli þess að geta talist stórfenglegar og skelfilegar. Innlent 16. mars 2022 11:05
Stórkostlegir litir á Sólheimajökli: „Miklu fallegri en ég bjóst við“ Í fyrsta þættinum af Okkar eigið Ísland heimsóttu Rakel og Garpur Sólheimajökull. Þau segja að gangan sé mjög byrjendavæn. Lífið 18. febrúar 2022 16:24
Allt á kafi í sandi í Vík Gríðarlegt sandfok varð við Vík í Mýrdal í óveðrinu sem gekk yfir landið í gær og í nótt með þeim afleiðingum að hluti bæjarins er á kafi í sandi. Innlent 8. febrúar 2022 13:01
Háskóli hluta Íslands Háskóli Íslands hefur lengi verið eftirbátur annarra skóla þegar kemur að framboði og gæðum fjarnáms. Það er ekki skoðun heldur staðreynd byggð á tölum um framboð fjarnáms. Skoðun 8. febrúar 2022 11:00
Jarðskjálfti í Kötlu: „Þetta virðist vera stærsti skjálfti síðan 2017“ Jarðskjálfti 4,0 að stærð mældist klukkan 19.10 í kvöld í norðausturrima öskju eldfjallsins Kötlu. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið en Veðurstofa segir ekki merki um gosóróa. Innlent 2. febrúar 2022 19:54
Mikil bjartsýni fyrir ferðasumrinu 2022 Mikill hugur er í þeim sem stunda ferðaþjónustu í Mýrdalshreppi fyrir sumrinu enda verið að skipuleggja sumarið á fullum krafti með fjölbreyttri dagskrá. Oddviti sveitarfélagsins spáir góðu sumri í ferðaþjónustu. Innlent 16. janúar 2022 15:30
Ekkert brunavarnarkerfi og engir reykskynjarar hjá slökkviliðinu í Vík Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur gert fjölmargar athugasemdir við aðbúnað slökkviliðsins í Vík í Mýrdal, meðal annars að það sé ekkert brunavarnarkerfi á slökkvistöðinni og engir reykskynjarar. Oddviti Mýrdalshrepps hefur ekki áhyggjur af athugasemdum og segir að þeim verði öllum kippt í liðinn. Innlent 9. janúar 2022 13:03
Umdeildur Íslandsþáttur Top Gear endaði á æsilegum kappakstri að barmi Rauðuskálar Íslandsþáttur breska bílaþáttanna ofurvinsælu Top Gear, sem tekinn var upp hér á landi í sumar var sýndur um liðna helgi í Bretlandi. Í þættinum má meðal annars sjá umdeildan utanvegaakstur á Hjörleifshöfða, auk þess sem að þátturinn fjallar að stórum hluta um æsilegan kappakstur um óbyggðir Íslands sem endar á barmi Rauðuskálar. Innlent 1. desember 2021 20:06
Talinn hafa axlarbrotnað er lítil rúta valt Talið er einn farþegi í lítilli rútu hafi beinbrotnað er rútan rann út af veginum og valt á þjóðvegi 1 skammt frá Vík í Mýrdal. Innlent 30. nóvember 2021 15:15
Byrja með „umfangsminni hugmyndir“ um hálendisþjóðgarð „Ef maður er hættur að komast áfram, getur verið ágætt að stíga aðeins aftur á bak.“ Þetta sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, um mögulegan hálendisþjóðgarð í ljósi þess að Sjálfstæðisflokkurinn væri að taka yfir umhverfisráðuneytið. Innlent 28. nóvember 2021 14:37