Þrír í haldi vegna hnífstungu Þrír Íslendingar eru í haldi eftir að maður var stunginn í bakið með hníf nálægt Ingólfstorgi í miðbæ Reykjavíkur í gær. Eftir árásina upphófst leit lögreglu að sakamönnunum og bar hún árangur í morgun. Innlent 13. ágúst 2022 11:20
Nokkrum fjölskyldum vísað frá í gær Nokkrum erlendum fjölskyldum var vísað frá gönguleiðinni að eldgosasvæðinu í Meradölum í gær. Var það gert vegna ungs aldurs barna. Eftirlit er sagt hafa gengið vel en gangan mun hafa reynst mörgum erfið í nótt og þurftu margir aðstoð við að komast niður af fjallinu. Innlent 13. ágúst 2022 09:39
Leita manns eftir hnífstungu í miðbænum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar manns sem stakk annan mann í bakið í miðbænum í nótt. Maðurinn flúði eftir hnífstunguna og stendur leit yfir. Sá sem var stunginn var fluttur á sjúkrahús og var hann þá með meðvitund. Innlent 13. ágúst 2022 07:24
Fjórtán og fimmtán ára börn skáru niður regnbogafánana á Hellu Við rannsókn lögreglu á eignaspjöllum sem framin voru á Hellu aðfaranótt mánudags kom í ljós að það voru fjórtán og fimmtán ára börn sem báru ábyrgð á verknaðnum. Málið telst vera upplýst að sögn lögreglu. Innlent 12. ágúst 2022 17:55
Höfuð Þorsteins numið á brott úr Hallormsstaðaskógi Brjóstmynd af einu af þekktari ljóðskáldum þjóðarinnar, Þorsteini Valdimarssyni, sem staðið hefur í Trjásafninu í Hallormsstaðaskógi í áratugi, hefur verið brotin af stalli sínum og numin á brott. Innlent 12. ágúst 2022 16:18
„Ég er í engum vafa um að ég braut engin lög“ Ritstjóri Kjarnans segir yfirheyrslu yfir sér, sem fram fór í gær, fyrst og fremst hafa snúist um störf fjölmiðla og heimildamenn í tengslum við Samherjamálið. Ekki hafi verið spurt um meinta dreifingu á kynferðislegu efni, sem rannsóknin var áður sögð snúast um. Innlent 12. ágúst 2022 14:01
Beraði sig fyrir framan fólk í miðbænum Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Innlent 12. ágúst 2022 06:34
Blaðamennirnir boðaðir í yfirheyrslu á ný Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur boðað blaðamennina fjóra sem eru með réttarstöðu sakbornings eftir umfjöllun um „skæruliðadeild Samherja“, aftur í skýrslutöku. Innlent 11. ágúst 2022 18:17
Virðast hafa komið hingað til lands einungis til að svíkja fé Rannsókn lögreglu á fjársvikamáli sem viðskiptavinir Landsbankans urðu fyrir í síðasta mánuði miðar vel. Talið er að hópur brotamanna hafi verið að verki en framkvæmdar hafa verið bæði handtökur og húsleitir við rannsóknina. Innlent 11. ágúst 2022 17:20
Komust á brott með fokdýrar merkjavörur Bíræfnir innbrotsþjófar brutust inn í verslunina Attikk á Laugavegi í morgun. Framkvæmdastjórinn telur þjófana hafa stolið varningi, sem er í eigu þriðju aðila, að andvirði einnar milljónar króna. Innlent 11. ágúst 2022 11:20
Uppvís að gripdeild og reyndi að skalla lögreglumann Maður var handtekinn í gær eftir að hafa reynt að skalla lögreglumann sem hafði afskipi af honum vegna gripdeildar. Innlent 11. ágúst 2022 06:30
Látinn eftir umferðarslys á Akureyri Karlmaður á áttræðisaldri lést í umferðarslysi í miðbæ Akureyrar í gær. Maðurinn var að ganga yfir götu þegar keyrt var á hann. Innlent 10. ágúst 2022 20:09
Lögðu hald á tugi kílóa af fíkniefnum Lögreglan lagði hald á tugi kílóa af fíkniefnum í aðgerðum sínum sem greint var frá á föstudaginn í síðustu viku. Fjórir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins. Innlent 10. ágúst 2022 17:08
Hátt í tvö þúsund fóru að gosstöðvunum þrátt fyrir lokanir Hátt í tvö þúsund manns fóru að gosstöðvunum síðustu þrjá daga, þrátt fyrir að lokað hafi verið fyrir aðgengi að þeim þessa daga. Lögreglan segir að erlendir ferðamenn hafi streymt inn á svæðið þrátt fyrir lokanir. Innlent 10. ágúst 2022 12:23
Sjósundsmaðurinn fannst látinn Sjósundsmaður sem leitað var að út fyrir Langasandi við Akranes í gær fannst látinn. Þetta staðfestir lögreglan á Vesturlandi en maðurinn hafði verið ásamt öðrum við sjósund. Leit hófst eftir að hann skilaði sér ekki í land. Innlent 10. ágúst 2022 10:28
Opna fyrir aðgengi að gosstöðvunum á ný Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að opna aftur fyrir aðgengi almennings að gosstöðvunum í Meradölum. Innlent 10. ágúst 2022 09:37
Tveir handteknir vegna ráns í apóteki Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo aðila vegna ráns í apóteki í nótt. Málið er í rannsókn. Innlent 10. ágúst 2022 06:45
Heimilt að sekta fólk sem ekki virðir lokanir á gosstöðvum Lögreglan á Suðurnesjum hefur heimildir til að sekta fólk sem virðir ekki lokanir lögreglu við gosstöðvarnar í Meradölum. Það er þó ekki til skoðunar sem stendur. Svæðið er lokað öllum í dag, vegna veðurs, og verður framvegis alfarið lokað börnum yngri en tólf ára. Innlent 9. ágúst 2022 11:52
Eldgosið bannað börnum yngri en tólf ára Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að meina börnum yngri en tólf ára aðgangi að eldgosinu í Meradölum. Öflugri gæsla verður á svæðinu í dag en í gær. Innlent 9. ágúst 2022 10:55
„Ömurlegt að fá svona kvikindi inn í sín híbýli“ Einhver gæti kallað það glæp gegn mannkyni en þjófahyski gerði sér lítið fyrir og braust inn í geymslu Gunnars V. Andréssonar ljósmyndara og stálu myndavélum hans eins og þær lögðu sig. Innlent 8. ágúst 2022 10:35
Mikið um rafskútuslys í nótt Nokkuð rólegt virðist hafa verið hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt en þó var nokkuð mikið um að fólk dytti af rafskútum og slasaðist. Innlent 7. ágúst 2022 07:45
Ungi ökumaðurinn hafi fengið gott tiltal Þrettán ára gamall ökumaður var stöðvaður af lögreglu í Hafnarfirði laust eftir klukkan fjögur í nótt. Lögregla segir óalgengt að svo ungir ökumenn séu stöðvaðir af lögreglu en Barnavernd var gert viðvart um málið og það leyst með aðkomu foreldra. Innlent 6. ágúst 2022 11:53
Þrettán ára unglingur ætlaði að sækja félaga sinn Laust fyrir klukkan fjögur í nótt var ökumaður stöðvaður af lögreglu í Hafnarfirði. Sá reyndist aldrei hafa öðlast ökuréttindi enda aðeins þrettán ára gamall. Innlent 6. ágúst 2022 08:25
Ökuníðingur á sjötugsaldri notaði ólögleg forgangsljós Í nótt barst lögreglu tilkynning um bíl sem reynt var ítrekað að aka á bíl þess sem tilkynnti. Bílinn var búinn ólöglegum forgangsljósum. Innlent 6. ágúst 2022 08:18
Handteknir í tengslum við umfangsmikinn innflutning á fíkniefnum Fjórir einstaklingar voru í kvöld úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur til 17. ágúst í þágu rannsóknar lögreglu á innflutningi á miklu magni af fíkniefnum. Innlent 5. ágúst 2022 22:48
Þrír fluttir slasaðir frá gosstöðvunum í nótt Þrír voru fluttir slasaðir frá gosstöðvunum í Meradölum í nótt en Lögreglan á Suðurnesjum áætlar að þar hafi verið á bilinu sjötíu til áttatíu manns á fjórða tímanum. Innlent 5. ágúst 2022 08:55
Í gæsluvarðhald grunaður um brot gegn tveimur konum Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegum kynferðis- og ofbeldisbrotum. Innlent 4. ágúst 2022 15:41
Fimm teknir í tollinum með Oxycontin á þremur vikum Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært fimm pólska karlmenn fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa flutt inn mikið magn ópíóíðalyfsins Oxycontin. Mennirnir voru teknir á þriggja vikna tímabili með efni í fórum sér en þeir eru allir ákærðir hver í sínu lagi og því er ekki litið á brot þeirra sem samverknað. Innlent 3. ágúst 2022 07:49
„Maður myndi alveg þiggja fleiri svona helgar“ Verslunarmannahelgin var með rólegra móti þetta árið þó hátíðarhöld hafi verið víða á landinu og mikil stemning eftir faraldur. Færri líkamsárásir komu á borð lögreglu en oft áður en tilkynnt hefur verið um tvö kynferðisbrot í Vestmannaeyjum. Innlent 2. ágúst 2022 23:00
Lögreglumenn sendir út til að kanna aðstæður við Fagradalsfjall Fulltrúar lögreglunnar á Suðurnesjum könnuðu aðstæður við Fagradalsfjall í kvöld eftir að bera fór þar á reyk. Sáu þeir ekkert athugavert á svæðinu að sögn náttúruvársérfræðings sem segir engin merki um að kvika sé að koma upp á yfirborðið. Innlent 2. ágúst 2022 22:22