Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Karlmaður sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í kvöld er fundin, heill á húfi. Innlent 9. nóvember 2022 19:23
Mótmæltu brottvísunum hælisleitenda á málþingi um ofbeldi Fámennur hópur fólks mætti á Landssamráðsfund um ofbeldi sem stendur yfir á Grand hóteli. Hópurinn mótmælti brottvísunum hælisleitenda og kallaði „Refugees are welcome here“ og „brottvísanir eru ofbeldi“. Innlent 9. nóvember 2022 17:00
Fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald Héraðssaksóknari mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um skipulagningu hryðjuverka. Mennirnir hafa verið í gæsluvarðhaldi í sjö vikur. Innlent 9. nóvember 2022 15:55
Húsleit hjá sálfræðingi sem sætir nú lögreglurannsókn Sálfræðingurinn Jón Sigurður Karlsson sætir lögreglurannsókn. Húsleit hefur verið gerð á heimili hans. Hann fór á dögunum í skýrslutöku til lögreglu. Innlent 9. nóvember 2022 13:25
Fleiri skili skömminni og tilkynni ofbeldisbrot en áður Þrátt fyrir að skráðum brotum um ofbeldi meðal barna og ungmenna hafi fjölgað þýðir það ekki endilega aukningu slíkra brota að sögn sviðsstjóra hjá Ríkislögreglustjóra. Hún telur að hærra hlutfall slíkra mála sé að skila sér inn í kerfið og fólk tilkynni frekar slík brot en áður. Opin umræða og hvatning um að skila skömminni sé að skila sér. Innlent 9. nóvember 2022 12:44
Knattspyrnumaður sleginn með krepptum hnefa í höfuðið af mótherja Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eftir að tilkynning barst um líkamsárás á knattspyrnuvelli. Þar hafði leikmaður á varamannabekk verið sleginn með krepptum hnefa í höfuðið af mótherja, þegar fyrrnefndi var við það að fagna marki liðsfélaga síns. Innlent 9. nóvember 2022 06:18
Lýst eftir Arturs og skorað á hann að gefa sig fram Lögreglan lýsir eftir Arturs Jansons, 28 ára karlmanni frá Lettlandi en síðast sást til hans í Þorlákshöfn fyrr í dag. Lögregla skorar á Arturs að gefa sig fram. Innlent 8. nóvember 2022 23:01
Sakborningur aðstoðaði við að sviðsetja mannslátið á Ólafsfirði Fjögur hafa enn stöðu sakbornings í rannsókn Lögreglunnar á Norðurlandi eystra á mannsláti í íbúðarhúsi á Ólafsfirði í byrjun október. Vafi er á um hvort karlmanninum á fimmtugsaldri hafi verið ráðinn bani af vilja eða í sjálfsvörn. Innlent 8. nóvember 2022 14:09
Veitingahússgestir flúðu þegar maður stakk stórum hníf í borð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í miðbænum í gærkvöldi þegar maður tók upp stóran hníf á veitingastað og stakk honum í borð sem hann sat við. Sá sem tilkynnti sagði atvikið hafa skotið viðskiptavinum skelk í bringu og yfirgáfu einhverjir staðinn. Innlent 8. nóvember 2022 07:33
Meintur banamaður í Ólafsfjarðarmálinu laus úr gæsluvarðhaldi Maður sem grunaður er um að hafa orðið manni að bana á Ólafsfirði í hefur verið látinn laus en gæsluvarðhald yfir honum rann út klukkan 18 í gærkvöldi. Innlent 8. nóvember 2022 06:26
Faðir ríkislögreglustjóra í skýrslutöku: „Ef þið bara hefðuð skoðað hver skyldmenni mín eru, þá hefðuð þið ekki komið hingað“ Guðjón Valdimarsson, vopnasali og faðir ríkislögreglustjóra, sagði við rannsóknarlögreglumann sem tók skýrslu af Guðjóni á heimili hans, í tengslum við rannsókn lögreglu á meintu hryðjuverkamáli, að ef þeir hefðu kynnt sér ættartengsl hans hefðu þeir ekki komið á heimili hans, nema um væri að ræða hefndarráðstöfun gagnvart dóttur hans. Innlent 7. nóvember 2022 20:22
Segir að koma þurfi upp aðstöðu sem eigi þó ekki að kalla „flóttamannabúðir“ Yfirlögfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra segir að umræðan þurfi að kjarna sig og að fólk eigi frekar að ræða réttu atriðin í máli þar sem fimmtán flóttamenn voru fluttir úr landi í síðustu viku. Embættið talar fyrir að komið sé upp aðstöðu þar sem flóttamenn sem senda á úr landi gætu verið þar til að brottvísuninni kemur. Innlent 7. nóvember 2022 13:12
Sagður hafa verið yfirheyrður á heimili sínu í tveimur aðskildum málum Héraðssaksóknari segir að skýrsla hafi verið tekin af föður ríkislögreglustjóra, í tengslum við hryðjuverkamálið svokallaða, daginn áður en héraðssaksóknara var falin rannsókn málsins. Innlent 7. nóvember 2022 13:01
Sofnaði værum blundi og setti öryggiskerfið í gang þegar hann vaknaði Svo virðist sem starfsmenn fyrirtækis í Reykjavík hafi læst viðskiptavin inni þegar þeir lokuðu í gær en viðskiptavinurinn setti öryggiskerfi fyrirtækisins í gang þegar hann vaknaði eftir að hafa sofið værum blundi á staðnum. Innlent 7. nóvember 2022 07:02
Veittu manni og hundi á rafmagnshlaupahjóli eftirför Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór stutta en óvenjulega eftirför í gærkvöldi, eftir að tilkynnt var um kannabislykt í Hlíðahverfi. Þegar lögreglu bar að flúði meintur gerandi af vettvangi, á rafmagnshlaupahjóli með hund á palli hjólsins. Innlent 7. nóvember 2022 06:20
Féll í rúllustiga í Kringlunni Karlmaður féll í rúllustiga í Kringlunni síðdegis í dag. Maðurinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en meiðsl reyndust minni háttar. Innlent 6. nóvember 2022 19:30
Tóku síma af hælisleitendum til að gæta „öryggis“ þeirra Yfirlögfræðingur ríkislögreglustjóra segir að lögreglumenn hafi tekið síma af hælisleitendum sem var vísað úr landi í síðustu viku til þess að tryggja öryggi fólksins. Lærdóminn sem lögregla getur dregið af gagnrýni á aðgerðina telur hann vera að lögreglan þurfi að eiga bíl sem henti fyrir hjólastóla. Innlent 6. nóvember 2022 08:14
Mikið um slagsmál og ofurölvun í miðborginni Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt með mörgum minniháttar málum sem tengdust ofurölvun eða slagsmálum. Lögreglumenn urðu meðal annars vitni að líkamsárás í miðborginni. Innlent 6. nóvember 2022 07:26
Mál föður ríkislögreglustjóra „óþægilegt“ og veki upp margar spurningar Þingmaður Viðreisnar segir meinta ólöglega vopnasölu föður ríkislögreglustjóra og takmarkaða rannsókn lögreglu á henni mjög óþægilega. Efla þurfi eftirlit með störfum lögreglu svo traust almennings á henni rýrni ekki. Innlent 5. nóvember 2022 17:25
Líkamsárás fyrir utan Kringluna Líkamsárás varð fyrir utan Kringluna síðdegis í dag. Lögregla hefur ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Innlent 5. nóvember 2022 17:24
Rannsóknin færð annað tuttugu dögum eftir að nafn Guðjóns kom upp Tæpar þrjár vikur liðu frá því að lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu varð kunnugt um tengsl föður ríkislögreglustjóra við ólöglega byssu, sem fannst við húsleit sumarið 2018, þar til málinu var vísað til annars lögregluembættis. Innlent 5. nóvember 2022 11:52
Mikið eftirlit í miðbænum vegna Airwaves Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með mikið eftirlit í miðborg Reykjavíkur vegna Airwaves-tónlistarhátíðarinnar í nótt. Flest mál sem komu upp voru þó minniháttar og tengdust ölvun. Innlent 5. nóvember 2022 07:16
Læknir, túlkur og sérþjálfaður eftirlitsaðili tóku þátt í brottvísuninni Við brottflutning fimmtán hælisleitenda í vikunni voru, auk lögreglu, læknir, túlkur og sérþjálfaður eftirlitsaðili. Leiguflugvél var fengin undir fólkið. Stjórnarráðið segir að lögum hafi verið fylgt út í ystu æsar. Innlent 4. nóvember 2022 21:31
Lögin ekki vandamálið heldur framkvæmdin Þingmaður Pírata segir ekkert í Útlendingalögum skikka stjórnvöld til að framkvæma brottflutning með jafn mikilli hörku og gert var í vikunni. Það veki furðu að ríkisstjórnin ýti eftir nýrri útlendingalöggjöf þegar forsætisráðherra telur mikla sátt ríkja um núgildandi lög. Innlent 4. nóvember 2022 20:00
Ekkert bendi til að föður Sigríðar hafi verið hlíft af lögreglunni Dómsmálaráðherra segir ekkert benda til að föður ríkislögreglustjóra hafi verið hlíft af lögreglu eftir að hann var sakaður um að hafa selt ólögleg skotvopn. Samkvæmt dómsgögnum voru vopnin hvorki skoðuð né upprunavottorð afhent lögreglu þegar hún skráði vopnin á sínum tíma. Innlent 4. nóvember 2022 11:49
Fjölskylda Kristins ætlar að kæra ákvörðun lögreglu að fella niður rannsókn Fjölskylda Kristins Hauks Jóhannessonar, sem lést í bílslysi í Óshlíð árið 1973, hefur ákveðið að kæra niðurstöðu lögreglunnar á Vestfjörðum um að hætta rannsókn. Innlent 4. nóvember 2022 11:40
Sló samnemanda með hamri Nemandi við Réttarholtsskóla réðst á samnemanda sinn með hamri fyrir utan skólann á skólatíma á miðvikudag. Starfsmaður náði að skerast í leikinn og stöðva árásina. Málið er til skoðunar hjá barnaverndaryfirvöldum. Innlent 4. nóvember 2022 11:28
Ungliðahreyfing VG gagnrýnir þingmenn sína Framkvæmdastjórn Ungra vinstri grænna fordæmir brottflutning hælisleitenda sem framkvæmdur var aðfaranótt fimmtudags. Stjórnin spyr hvort þingmönnum flokksins finnist vinnubrögð í málinu vera viðunandi. Innlent 4. nóvember 2022 09:44
62 mál skráð hjá lögreglu og fjöldi stöðvaður í umferðinni Alls voru 62 mál skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt en mörg þeirra vörðuðu fólk í umferðinni; ökumenn sem voru undir áhrifum eða fóru ekki eftir umferðarreglum. Innlent 4. nóvember 2022 06:16
Tugir óskráðra vopna hafi fundist á heimili föður ríkislögreglustjóra Á fjórða tug óskráðra skotvopna eru sögð hafa fundist á heimili Guðjóns Valdimarssonar, föður ríkislögreglustjóra, í september síðastliðnum. Vopnin eru sögð hafa fundist við húsleit í tengslum við meinta skipulagningu hryðjuverka og gat Guðjón ekki gert grein fyrir vopnunum. Innlent 4. nóvember 2022 00:19