Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa Þrír leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær. Boðið var upp á mikla dramatík er Manchester City vann Bournemouth, Liverpool og Newcastle United mættust í hörku leik sem bauð upp á miklar senur í uppbótartíma á meðan að Aston Villa fékk skell á útivelli gegn Brighton. Öll mörkin frá því í gær má sjá í þessari frétt. Enski boltinn 24. ágúst 2026 08:09
„Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Dominik Szoboszlai sá til þess að Liverpool fengi stig úr leiknum gegn Newcastle United á St James' Park í dag. Hann jafnaði úr vítaspyrnu þegar níu mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Ungverjinn sagði að Liverpool hefði sýnt baráttuanda í leiknum í dag. Enski boltinn 23. ágúst 2026 18:14
Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Dominik Szoboszlai tryggði Liverpool jafntefli gegn Newcastle United með marki úr vítaspyrnu þegar níu mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lokatölur á St James' Park í dag, 2-2. Enski boltinn 23. ágúst 2026 17:30
Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Manchester City vann 2-1 endurkomusigur gegn Bournemouth í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Miðverðirnir Marc Guehi og Josko Gvardiol stigu upp fyrir City. Enski boltinn 23. ágúst 2026 12:33
Curtis Jones farinn til Inter Curtis Jones hefur yfirgefið uppeldisfélagið Liverpool og gengið í raðir Inter á Ítalíu. Þetta hefur verið staðfest eftir að enski miðjumaðurinn gekkst undir læknisskoðun í Mílanó. Enski boltinn 21. ágúst 2026 18:51
BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool BBC hefur birt skemmtilegt innslag frá árinu 1964 þegar að KR mætti Liverpool í Evrópukeppni félagsliða. Kunnuglegum andlitum bregður fyrir, meðal annars Ellert B. Schram, þá leikmanni KR og Alberti Guðmundssyni, fyrsta atvinnumanni Íslands í knattspyrnu. Íslenski boltinn 21. ágúst 2026 14:30
Liverpool fær höfnun frá Brighton Liverpool hefur fengið höfnun frá Brighton á 50 milljóna punda tilboði í gambíska kantmanninn Yankuba Minteh. Enski boltinn 20. ágúst 2026 22:46
Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Eftir mikil fjárútlát í fyrrasumar hefur Liverpool haft mun hægara um sig á félagaskiptamarkaðnum í sumar. Sérfræðingar Sunnudagsmessunnar gefa félaginu falleinkunn eftir viðskipti sumarsins en enn er tími til að breyta þeirri einkunn. Enski boltinn 20. ágúst 2026 14:17
Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Liverpool hefur samþykkt 35 milljón evra tilboð Inter Milan í Curtis Jones. Hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Liverpool. Enski boltinn 20. ágúst 2026 12:03
Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Kanadíska knattspyrnukonan Rylee Foster er nýr leikmaður kvennaliðs Everton í ensku úrvalsdeildinni sem er sérstaklega athyglisvert vegna ástar hennar á öðru ensku félagi frá Bítlaborginni. Enski boltinn 17. ágúst 2026 16:31
Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Franski miðvörðurinn Jérémy Jacquet lék loksins fyrsta leikinn sinn með Liverpool í kvöld og skoraði annað markið í sigri á Como í æfingaleik á Anfield. Enski boltinn 16. ágúst 2026 19:14
Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik Liverpool og Como gerðu markalaust jafntefli, 0-0, í fyrri af tveimur æfingaleikjum liðanna í dag. Enski boltinn 16. ágúst 2026 12:44
Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Hver eru hörmulegustu félagsskipti fótboltans á þessari öld? Peter Graulund, knattspyrnusérfræðingur TV 2 Sport, setti saman slíkan lista yfir verstu félagaskipti á þessari öld. Enski boltinn 15. ágúst 2026 08:01
Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Fjárfestahópur, með Jeff Bezos innanborðs, hefur gengið frá kaupum á einum þriðjungi í enska fótboltafélaginu Liverpool. Enski boltinn 14. ágúst 2026 16:24
Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Englandsmeistarar Arsenal hafa áhuga á því að fá enska landsliðsmanninn Jarrel Quansah til liðs við sig frá Bayer Leverkusen. Quansah er opinn fyrir því að ganga í raðir Arsenal. Enski boltinn 14. ágúst 2026 10:24
Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Michael Owen, níundi markahæsti leikmaðurinn í sögu Liverpool, er á því að Liverpool verði að landa Bradley Barcola, kantmanni Paris St Germain, til að eiga einhverja möguleika á að vinna ensku úrvalsdeildina á komandi tímabili. Enski boltinn 13. ágúst 2026 07:01
Slot hafnar hollenska landsliðinu Arne Slot dró sig út úr viðræðum við hollenska knattspyrnusambandið vegna þjálfarastarfs landsliðs þess. Slot vill heldur taka við félagsliði en landsliði. Fótbolti 12. ágúst 2026 10:32
Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Stuðningsmenn Liverpool kalla eftir frekari upplýsingum vegna hugsanlegra kaupa fjárfestahóps sem tengist Jeff Bezos á eignarhluta í enska úrvalsdeildarfélaginu. Enski boltinn 12. ágúst 2026 06:33
Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Ungur Austurríkismaður hefur spilað í vörn Liverpool í vináttuleikjum og staðið sig vel. Þrátt fyrir það má hann ekki spila með liðinu á komandi tímabili. Enski boltinn 11. ágúst 2026 12:01
Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Andoni Iraola, þjálfari Liverpool, er ekki nógu sáttur við líkamlegt ástand sinna leikmanna en það er ljóst að hann gerir miklu meiri kröfur á því sviði en forveri hans í stjórastólnum á Anfield. Enski boltinn 10. ágúst 2026 22:02
Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Liverpool hefur staðfest að miðvörðurinn Ronald Araujo sé kominn til enska úrvalsdeildarfélagsins á lánssamningi út tímabilið en hann kemur frá Spánarmeisturum Barcelona. Enski boltinn 10. ágúst 2026 17:46
Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Búist er við að Jeff Bezos, stofnandi Amazon, muni fjárfesta í enska stórliðinu Liverpool. Hann mun vera hluti af fjárfestingarhóp sem myndi eiga þriðjung í félaginu. Enski boltinn 10. ágúst 2026 13:16
Liverpool og Barcola náð samkomulagi Liverpool hefur náð samkomulagi við Bradely Barcola, leikmann PSG, um að ganga til liðs við enska félagið. Nú þurfa Liverpool og PSG að ná samkomulagi um verð á leikmanninum. Enski boltinn 10. ágúst 2026 11:01
Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Ensku liðin áttu misjöfnu gengi að fagna í æfingaleikjum dagsins í fótboltanum. Englandsmeistarar Arsenal töpuðu öðrum leik sínum í röð á undirbúningstímabilinu og Liverpool missti niður tveggja marka forystu yfir í tapaðan leik. Enski boltinn 9. ágúst 2026 15:20
Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Allt stefnir í að Ronald Araújo, fyrirliði Barcelona, sé á leið til Liverpool á láni með möguleika á því að Rauði herinn kaupi Úrúgvæjann að samningnum loknum. Lánsmenn hjá Liverpool hafa sögulega séð ekki slegið í gegn. Enski boltinn 9. ágúst 2026 08:00
Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Ronald Araujo er kominn til Liverpool á láni frá Barcelona og er honum ætlað að leysa meiðslavandræði liðsins í vörninni. Enski boltinn 7. ágúst 2026 21:43
Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Liverpool á í viðræðum við forráðamenn PSG um fleiri en einn leikmann liðsins ef marka má erlenda fjölmiðla. Senegalskt ungstirni er á radarnum auk Bradley Barcola. Enski boltinn 5. ágúst 2026 07:31
„Þetta er búið, við erum góðir“ Dominik Szoboszlai segist hafa átt gott samtal við Curtis Jones og Kostas Tsimikas í kjölfar rifrildis sem þeir áttu eftir leik Liverpool og Leeds á dögunum. Enski boltinn 4. ágúst 2026 19:45
Tottenham hefur áhuga á að fá Gakpo Tottenham er sagt hafa áhuga á framherja Liverpool, Cody Gakpo. Hann á fjögur ár eftir af samningi Liverpool og verður því erfitt að fá hann. Enski boltinn 3. ágúst 2026 18:00
Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Andoni Iraola tapaði í fyrsta sinn sem stjóri Liverpool þegar liðið tapaði 4-2 á móti Leeds í æfingaleik í Chicago sem var þriðji og síðasti leikur liðsins í Bandaríkjaferðinni. Enski boltinn 3. ágúst 2026 13:01