Uppgjör: Álftanes - Valur 87-108 | Woods lykillinn að velgengni Valsmanna Eftir jafnan og skemmtilegan fyrri hálfleik þá varð frábær þriðji leikhluti til þess að Valsmenn báru sigur úr býtum á Álftanesi í dag. Keyshawn Woods skoraði 16 stig í leikhlutanum og keyrði liðið áfram. Lokatölur 87-108 í lokaleik 18. umferðar Bónus deildar karla í körfuknattleik. Körfubolti 20. febrúar 2026 21:20
Uppgjörið: Ármann-Stjarnan 88-90 | Orri með sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok Stjörnumenn lentu óvænt í kröppum dansi á móti Ármanni í Laugardalshöllinni í 18. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld en tókst að vinna upp forskot heimamanna og tryggja sér nauman sigur. Orri Gunnarsson skoraði sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok eftir að hafa náð sóknarfrákasti en lokatölur í leiknum urðu 88-90 Stjörnunni í vil. Körfubolti 20. febrúar 2026 20:52
Miskovic farinn frá Álftanesi: „Aðallega var það persónuleikinn“ Álftanes á mikilvægan leik fyrir höndum í kvöld þegar liðið tekur á móti Val í 18. umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Álftnesingar hafa gert breytingar á leikmannahópnum frá því í síðasta leik. Körfubolti 20. febrúar 2026 13:46
Einn nýliði í landsliðinu Craig Pedersen hefur valið þrettán leikmenn í íslenska landsliðshópinn í körfubolta fyrir leikina gegn Litáen í undankeppni HM 2027. Einn nýliði er í hópnum. Körfubolti 20. febrúar 2026 13:02
Spilaði degi eftir að hafa lent í bílslysi: „Er á lífi og lánsamur“ Þrátt fyrir að hafa lent í bílslysi í fyrradag spilaði LaMelo Ball leik í NBA-deildinni í körfubolta í gær. Körfubolti 20. febrúar 2026 11:02
Þórsarar fá nýtt íþróttahús Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi í morgun samkomulag um byggingu nýs íþróttahúss á félagssvæði Þórs. Íþróttahúsinu eru áætlaðir 4.600 fermetrar og þar af verður íþróttasalur með um 2.400 fermetra gólfflöt. Gert er ráð fyrir að það muni kosta á bilinu 3 til 4,5 milljarða króna. Sport 19. febrúar 2026 21:58
„Frammistaðan kannski ekkert alltof góð en tvö góð stig“ Grindavík vann fimm stiga seiglusigur á ÍR í kvöld í Bónus-deild karla, 100-95. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var sáttur með stigin tvö í leik þar sem bæði lið gerðu ítrekuð áhlaup og munurinn sveiflaðist ótt og títt. Körfubolti 19. febrúar 2026 21:39
„Okkur líður vel og við erum að spila vel“ KR vann í kvöld öruggan og sannfærandi þrettán stiga sigur 92-105 á Njarðvík þegar þessi lið mættust í IceMar-höllinni í 18. umferð Bónus deild karla í kvöld. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var gríðarlega öflugur í liði KR og var að vonum sáttur með sigurinn. Sport 19. febrúar 2026 21:38
Uppgjörið: Njarðvík-KR 92-105 | Skutu Njarðvíkinga í kaf Bikarmeistarar KR héldu sigurgöngu sinni áfram í Njarðvík í kvöld með því að vinna þrettán stiga sigur á heimamönnum í Njarðvík, 105-92. Körfubolti 19. febrúar 2026 20:57
Uppgjör: ÍA-Keflavík 97-96 | Skagamenn enduðu níu leikja taphrinu Skagamenn unnu langþráðan sigur í Bónus-deild karla í kvöld þegar liðið fékk Keflavík í heimsókn í AvAir höllina á Akranesi. Leikurinn sveiflaðist fram og aftur en heimamenn unnu að lokum eins stigs sigur, 97-96. Körfubolti 19. febrúar 2026 20:55
Uppgjör: Þór Þ-Tindastóll 95-98 | Stólarnir komu til baka eftir slæma byrjun Tindastólsmenn fóru heim með bæði stigin úr Þorlákshöfn eftir þriggja stiga sigur á heimamönnum í Þór, 98-95. Körfubolti 19. febrúar 2026 20:50
Uppgjörið: Grindavík - ÍR 100-95 | Grindvíkingar með níu fingur á deildarmeistaratitlinum Grindvíkingar tóku á móti ÍR-ingum í kvöld í ansi fjörugum og hröðum leik. Heimamenn mættu til leiks án Daniel Mortensen sem snéri sig á ökkla í síðasta leik og var Valur Orri því mættur í byrjunarliðið og þá snéri Ólafur Ólafsson aftur í liðið eftir meiðsli. Körfubolti 19. febrúar 2026 18:32
LaMelo Ball lenti í bílslysi LaMelo Ball, leikmaður Charlotte Hornets í NBA deildinni, lenti í bílslysi í nótt. Körfubolti 19. febrúar 2026 10:03
Dramatískur sigur hjá Tryggva og félögum á Kanaríeyjum Tryggvi Snær Hlinason átti góðan leik í kvöld þegar lið hans Bilbao vann æsispennandi framlengdan leik í spænsku deildinni. Körfubolti 18. febrúar 2026 22:31
KR-konur frystar í Hveragerði í kvöld Botnlið Hamars/Þórs vann óvæntan tólf stiga sigur á KR, 107-95, í Bónusdeild kvenna í körfubolta í Frystikistunni í Hveragerði í kvöld. Körfubolti 18. febrúar 2026 21:06
Uppgjörið: Keflavík-Grindavík 94-86 | Tviburasystur í stuði og engin hefnd Bikarmeistarar Keflavíkur unnu Grindvíkinga í kvöld aðeins einni og hálfri viku eftir að Keflavík hafði betur á móti Grindavík í bikarúrslitaleiknum. Körfubolti 18. febrúar 2026 20:54
Þurfti að flauta af æfingar áður en hann slasaði menn Hvaða leikmenn viltu hafa í þínu körfuboltaliði þegar það gilda engar reglur? Þegar það má bókstaflega slást á vellinum? Þetta heimaverkefni leystu þeir Benedikt Guðmundsson og Teitur Örlygsson í nýjasta þætti Bónus Körfuboltakvölds. Körfubolti 18. febrúar 2026 15:47
„Man ekki eftir að hafa spilað við Hauka og fengið fleiri villur en þær“ Njarðvík vann níu stiga sigur gegn Haukum 87-96 í Ólafssal. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, var ánægður með sigurinn og þá baráttu sem liðið lagði í leikinn. Sport 17. febrúar 2026 21:47
Valskonur upp í annað sætið og Tindastóll sótti sterkan sigur Valur kom sér upp í annað sæti Bónus deildar kvenna með 78-69 sigri gegn Stjörnunni í 18. umferð. Á sama tíma sótti Tindastóll mikilvægan 59-78 sigur gegn Ármanni. Körfubolti 17. febrúar 2026 21:17
Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 87-96 | Njarðvíkingar á toppinn Njarðvíkingar unnu níu stiga sigur gegn Haukum 87-96 í Ólafssal. Lokamínúturnar voru æsispennandi en Njarðvíkingar voru sterkari á svellinu og höfðu betur. Uppgjör og viðtöl væntanleg. Körfubolti 17. febrúar 2026 20:54
Fast skotið í Extraleikunum: Nablinn treysti á tæknina og kálfana Extraleikirnir héldu áfram í nýjasta Körfuboltakvöldi Extra og nú var komið að því að mæta skothörku þeirra Andra Más Eggertssonar og Tómasar Steindórssonar. Sport 17. febrúar 2026 09:31
Dagskráin í dag: Meistaradeild Evrópu og risaslagur í Bónus deildinni Það er nóg um að vera á sportrásum sínar í dag. Umspil fyrir sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu hefjast og spennan í Bónus deild kvenna í körfubolta heldur áfram. Sport 17. febrúar 2026 06:00
„Af því að hann er bara miklu betri körfuboltamaður“ Topplið Grindavíkur kom mörgum á óvart með því að láta Bandaríkjamanninn Khalil Shabazz fara á dögunum en Teitur Örlygsson, sérfræðingur Bónus Körfuboltakvölds, segir að miðað við fyrsta leikinn hjá nýja manninum hafi það verið góð ákvörðun. Körfubolti 16. febrúar 2026 11:01
„Hann er ekki á einhverju klinki hérna“ „Við skiljum þessi skipti ekki ennþá,“ sagði Teitur Örlygsson í Bónus Körfuboltakvöldi, um þá ákvörðun Tindastóls að fá hinn finnska Daniel Dolenc og losa sig í staðinn við Serbann Ivan Gavrilovic. Körfubolti 16. febrúar 2026 07:02
Anthony Edwards valinn bestur í Stjörnuleik NBA Anthony Edwards þakkaði tveimur þáttum fyrir bættan Stjörnuleik NBA-deildarinnar í körfubolta á sunnudaginn: breyttu fyrirkomulagi og baráttu Frakkans Victor Wembanyama. Körfubolti 16. febrúar 2026 06:47
Svekkjandi tap Tryggva og leiðinlegt atvik í Baskaslag Tryggvi Snær Hlinason skoraði tíu stig og tók sex fráköst fyrir Bilbao Basket í kvöld þegar liðið varð að sætta sig við tap gegn Baskonia í nágrannaslag í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Körfubolti 15. febrúar 2026 19:22
Vann troðslukeppnina með látum Keshad Johnson, leikmaður Miami Heat í NBA-deildinni, fagnaði sigri í troðslukeppninni á stjörnuhelginni vestanhafs í nótt. Körfubolti 15. febrúar 2026 10:15
Of seinn til að sjást í mynd: „Þetta er bara á allt of lágu plani“ Það virðist algjört andleysi ríkja í liði Álftaness í Bónus-deild karla eins og liðið sýndi í tapinu gegn nýkrýndum bikarmeisturum KR á fimmtudaginn. Um þetta ræddu sérfræðingarnir í Körfuboltakvöldi í gærkvöld og drógu ekkert undan. Körfubolti 14. febrúar 2026 22:31
Baðst lausnar hjá botnliðinu Breytingar hafa orðið í brúnni hjá liði Hamars/Þórs sem situr á botni Bónus-deildar kvenna í körfubolta. Körfubolti 14. febrúar 2026 19:00
Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Körfuboltakonan Birna Valgerður Benónýsdóttir hefur neyðst til þess að leggja skóna á hilluna, aðeins 25 ára gömul, og kveðst þurfa tíma til að jafna sig á þessu mikla áfalli. Hún ætlar þó ekki að útiloka að spila aftur í framtíðinni. Körfubolti 14. febrúar 2026 18:43