Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Engin skipulögð stjórnarandstaða er til staðar í Íran segir fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum. Útilokað sé að steypa klerkastjórninnni með einungis loftárásum. Innlent 1. mars 2026 13:12
Gerir stólpagrín að Von der Leyen Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, gerir stólpagrín að Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem tilkynnti í gær að hún hefði boðað til fundar í öryggisráði ESB. Erlent 1. mars 2026 12:20
Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Ísraelsher segist aftur hafa hafið loftárás á skotmörk djúpt inni í írönsku höfuðborginni Teheran, rúmum sólarhringi eftir að herinn felldi æðstaklerk Írans í samvinnu með Bandaríkjunum. Íranir hafa skotið flugskeytum í átt að nágrannaríkjum í nótt til að hefna æðstaklerksins. Erlent 1. mars 2026 09:04
Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Íranir heita hefndum eftir að fjöldi háttsettra manna, þar á meðal æðsti leiðtogi landsins, var felldur í árásum Ísraels og Bandaríkjanna í gær. Ísraelsmenn segjast hafa drepið æðstaklerkinn í fyrstu sprengjuhríðinni í gær, sem lagði aðsetur hans í eyði. Erlent 1. mars 2026 08:25
„Ólíklegt“ að Íran fari á HM vegna árásarinnar Tafarlaust hlé hefur verið gert á öllum fótboltakeppnum í Íran í skugga árásar Bandaríkjanna og Ísraels á ríkið í gær. Forseti knattspyrnusambands landsins segir ólíklegt að íranska landsliðið keppi á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. FIFA fundar um málið. Fótbolti 1. mars 2026 08:01
Stríðið muni halda áfram út vikuna Þrátt fyrir að æðstiklerkur Írans sé sagður látinn hyggjast Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn halda árásum á Íran áfram í einhverja daga. Meint andlát Ayatollah Ali Khamenei þarf ekki að jafngilda hreinum stjórnarskiptum í Íran. En hver tekur þá við? Erlent 1. mars 2026 00:28
Trump: Khamenei látinn Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, er sagður látinn eftir umfangsmiklar loftárásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna á Íran í dag. Þetta segir Bandaríkjaforseti en aðsetur Khamenei í Teheran var lagt í rúst í árásunum í dag. Erlent 28. febrúar 2026 19:43
Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, setur spurningamerki við réttlætingu Bandaríkjanna og Ísrael fyrir árásum á Íran. Það séu vonbrigði að farið sé á svig við alþjóðalög og erfitt sé að ráða í umfang og árangur aðgerðanna á þessum tímapunkti, svo stuttu eftir að þær hófust. Íranski herinn hefur sagst ætla að kenna Bandaríkjunum og Ísrael „sögulega lexíu“ en Erlingur segir eftir að koma betur í ljós hver viðbrögð Írana verða með gagnárásum. Innlent 28. febrúar 2026 13:09
Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Skömmu eftir að Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran í morgun birti Donald Trump Bandaríkjaforseti ávarp á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Erlent 28. febrúar 2026 10:16
Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Hið minnsta tvö hundruð eru taldir látnir eftir að Ísrael og Bandaríkin hófu árás á Íran í morgun. Ísraelsríki segir árásina fyrirbyggjandi og Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að æðstiklerkur Írana hafi verið felldur. Vísir færir ykkur nýjustu fréttir í vaktinni hér að neðan. Erlent 28. febrúar 2026 07:32
Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Starfsmönnum sendiráðs Bandaríkjanna í Jerúsalem barst tölvupóstur frá sendiherranum Mike Huckabee í morgun, þar sem hann hvatti þá sem vildu yfirgefa Ísrael vegna mögulegra árása Bandaríkjanna á Íran ættu að gera það strax í dag. Erlent 27. febrúar 2026 12:11
Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa gefið út afar misvísandi skilaboð um afstöðu sína í samningaviðræðum við Írana, sem halda áfram í Genf í dag. Erlent 26. febrúar 2026 06:54
Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta um að ráðast eða ráðast ekki á Íran mun meðal annars velta á mati Steve Witkoff og Jared Kushner á því hvort Íranir séu viljandi að tefja fyrir samningi um kjarnorkuáætlun landsins. Erlent 24. febrúar 2026 08:28
Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Steve Witkoff, sérlegur sendifulltrúi Donald Trump Bandaríkjaforseta, segir forsetann ekkert botna í því hvers vegna Íranir hafa ekki gefið eftir í samningaviðræðum við Bandaríkjamenn, þrátt fyrir þann hernaðarmátt sem Bandaríkin hafa byggt upp á svæðinu á síðastliðnum vikum. Erlent 23. febrúar 2026 06:27
Íranir mótmæla á ný Stúdentar við háskóla víðs vegar um Íran hafa staðið fyrir mótmælum gegn klerkastjórninni í dag. Mótmælin eru þau fyrstu síðan mótmælahrinunni, sem hófst í lok desember og áætlað er að hafi kostað þrjátíu þúsund manns lífið, lauk. Erlent 21. febrúar 2026 23:49
Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Evrópusambandið samþykkti formlega í gær að skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Það þýðir að samtökin eru nú á hryðjuverkalista ESB og munu sæta þvingunaraðgerðum og refsiákvæðum ESB á grundvelli baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi sem Ísland tekur einnig þátt í. Boðað hafði verið til mótmæla við utanríkismálaráðuneytið á morgun til að kalla eftir því að íslensk stjórnvöld myndu skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Erlent 20. febrúar 2026 17:24
Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök Íslensk-íranska samfélagið á Íslandi hefur boðað til mótmæla við utanríkisráðuneytið á laugardaginn þar sem þess verður krafist að íslenska ríkið skilgreini íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Innlent 19. febrúar 2026 23:50
Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Bandaríkjamenn hafa ekki haft jafn mikinn viðbúnað í háloftunum og getu til loftárása í Mið-Austurlöndum frá árinu 2003, þegar innrás var gerð í Írak. Búið er að senda gífurlegan fjölda herþota og stuðningsflugvéla á svæðið, auk tveggja flugmóðurskipa og fjölda annarra herskipa. Erlent 19. febrúar 2026 11:12
„Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er líklegri en ekki til að hefja stríð gegn klerkastjórninni í Íran og slíkt stríð gæti hafist á næstunni. Árásir yrðu umfangsmiklar og stæðu líklega yfir í að minnsta kosti nokkrar vikur. Trump er sagður vera að missa þolinmæðina gagnvart klerkastjórninni. Erlent 18. febrúar 2026 15:25
Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Viðræðum fulltrúa Íran og Bandaríkjanna lauk í gær en að sögn Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, tókst mönnum að ná saman um ákveðin grundvallaratriði varðandi framhaldið. Erlent 18. febrúar 2026 07:13
Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Yfirvöld í Íran tilkynntu í dag að Homuz-sundi hafi verið lokað og það yrði lokað í nokkrar klukkustundir vegna heræfinga. Eldflaugum hefur verið skotið út á sundið í þessum æfingum, sem eru haldnar á sama tíma og bandarískir og íranskir erindrekar funda í Genf. Bandaríkjamenn hafa hótað árásum á Íran, semji klerkastjórnin ekki um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins og önnur málefni. Erlent 17. febrúar 2026 12:13
Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Úkraínskir, bandarískir og rússneskir embættismenn eiga að hittast í Genf í Sviss í dag og ræða mögulega leið að friði. Ekki eru þó miklar væntingar á kreiki um að fundurinn muni reynast afdrifaríkur en þetta er í þriðja sinn sem erindrekar ríkjanna þriggja koma saman á þremur vikum. Erlent 17. febrúar 2026 10:54
Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf Viðræður Írana og Bandaríkjamanna hefjast í dag í Genf í Sviss. Spennan á milli ríkjanna hefur magnast síðustu vikur, ekki síst eftir að Bandaríkjamenn ákváðu að senda stóran flota með flugmóðurskipið Abraham Lincoln í broddi fylkingar að ströndum Írans. Erlent 17. febrúar 2026 07:47
Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Bandaríkin eru að senda stærsta flugmóðurskip heimsins aftur til Mið-Austurlanda. Þá verða tvö slík skip og öflugir fylgiflotar þeirra á svæðinu á sama tíma og Donald Trump er að reyna að þvinga klerkastjórn Íran til að semja um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins og önnur málefni. Erlent 13. febrúar 2026 10:12
Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Bandaríkjamenn leggja nú línurnar að því að senda annað flugmóðurskip og fylgiflota þess til Mið-Austurlanda. Donald Trump, forseti, sagðist fyrr í vikunni vera að íhuga að senda annað flugmóðurskip í undirbúningi fyrir mögulegar árásir á Íran, ef viðræður við klerkastjórnina þar skila engum árangri. Erlent 12. febrúar 2026 09:15
Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Ráðamenn í Íran segjast ekki ætla að hætta auðgun úrans. Þetta kom fram í máli íranskra erindreka í viðræðum þeirra við bandaríska erindreka í Óman í dag en Íranar munu þó hafa sagst opnir fyrir einhvers konar málamiðlun til að koma í veg fyrir mögulegar loftárásir Bandaríkjamanna. Erlent 6. febrúar 2026 16:48
Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Íranskir sjóliðar um borð í sex vélbyssubúnum hraðbátum reyndu í morgun að stöðva danskt olíuflutningskip, sem siglt er undir bandarískum fána, á Hormuz-sundi í Persaflóa. Stjórnendur skipsins juku hraða þess og komust þannig undan þegar írönsku sjóliðarnir skipuðu þeim að stöðva skipið. Seinna í dag var olíuflutningaskipinu svo fylgt eftir af bandarísku herskipi. Erlent 3. febrúar 2026 16:58
Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Æðstiklerkur Íran hótar að hvers konar árás af höndum Bandaríkjamanna gæti hrint að stað svæðisstríði. Spenna milli ríkjanna tveggja hefur aukist til muna eftir miklar óeirðir í Íran síðustu vikur. Erlent 1. febrúar 2026 10:25
Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Bandarískur herskipafloti nálgast Íran og hótar Bandaríkjaforseti því að tíminn sé að renna út fyrir írönsk stjórnvöld að semja um kjarnorkuvopnaáætlun þeirra. Íranar segjast reiðubúnir til viðræðna en þeir séu einnig að verjast af festu. Erlent 28. janúar 2026 15:00
Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum hafa greint frá því að þau hyggist halda margra daga heræfingar í Mið-Austurlöndum, til að sýna fram á hernaðargetu Bandaríkjanna á svæðinu. Erlent 28. janúar 2026 06:51