Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Kjartan Kjartansson skrifar 25. júní 2026 11:00 Verðskilti bandarískra bensínstöðva í maí. Olíuverð hækkaði mikið eftir að stríð Bandaríkjamanna og Ísraela gegn Íran hófst í febrúar. Vísir/EPA Heimsmarkaðsverð á olíu hefur ekki verið lægra frá því áður en Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran í febrúar. Olíuflutningar um Hormússund hafa aukist umtalsvert frá því að Íranir og Bandaríkjamenn gerðu samkomulag sín á milli í síðustu viku.
Stríðsrekstur Bandaríkjanna og Ísraels í Íran leiddu til mikilla verðhækkanna á olíu þar sem Íranir brugðust við með því að halda Hormússundi, lykilsiglingaleið olíuflutningaskipa, í herkví. Verðið hefur lækkað frá því að Bandaríkjamenn og Íranir skrifuðu undir samkomulag sitt 17. júní og hófu viðræður um kjarnorkuáætlun Írana, afléttingu refsiaðgerða og fleira. Tunnan af Norðursjávarhráolíu seldist á undir 72,48 dollara á tímabili í morgun en það var verðið þegar Bandaríkin og Ísrael réðust fyrst á Íran 28. febrúar. Verðið mjakaðist síðan aðeins upp eftir því sem leið á morguninn, að sögn breska ríkisútvarpsins. Þrátt fyrir að hreyfing sé loks komin á flutninga um Hormússund er enn langt í land að umferðin nái fyrri þunga. Bandaríkjamenn og Íranir gáfu sér sextíu daga til þess að ná saman um frekari útfærslu á samkomulagi þeirra.
Bensín og olía Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Ísrael Skipaflutningar Hernaður Tengdar fréttir Vance þreifar fyrir sér í Sviss Bandaríski varaforsetinn J.D. Vance lenti í Sviss í morgun en þar eiga friðarviðræður milli Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Obbürgen seinna í dag, þrátt fyrir að íranski herinn hafi tilkynnt í gær að Hormússundi yrði lokað að nýju. Bandaríkjamenn segja að enn virðist opið fyrir skipaumferð um sundið. 21. júní 2026 08:16 Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Samkomulag sem Bandaríkjamenn og Íranir skrifuðu undir í gærkvöldi felur í sér vopnahlé, opnun Hormússund og að Íranir komi sér ekki upp kjarnavopnum. Bandaríkjamenn skuldbunda sig einnig til þess að aflétta öllum viðskiptaþvingunum á Íran, skipta sér ekki af innri málefnum landsins og að skila frystum eignum Írana. 18. júní 2026 08:09 Mest lesið Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Viðskipti innlent Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts Viðskipti erlent Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Viðskipti innlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira
Vance þreifar fyrir sér í Sviss Bandaríski varaforsetinn J.D. Vance lenti í Sviss í morgun en þar eiga friðarviðræður milli Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Obbürgen seinna í dag, þrátt fyrir að íranski herinn hafi tilkynnt í gær að Hormússundi yrði lokað að nýju. Bandaríkjamenn segja að enn virðist opið fyrir skipaumferð um sundið. 21. júní 2026 08:16
Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Samkomulag sem Bandaríkjamenn og Íranir skrifuðu undir í gærkvöldi felur í sér vopnahlé, opnun Hormússund og að Íranir komi sér ekki upp kjarnavopnum. Bandaríkjamenn skuldbunda sig einnig til þess að aflétta öllum viðskiptaþvingunum á Íran, skipta sér ekki af innri málefnum landsins og að skila frystum eignum Írana. 18. júní 2026 08:09