

Húsnæðismál

Fleiri kaupi ódýrar íbúðir án þess að taka lán
Leiguverð hækkaði langt umfram verðbólgu og íbúðaverð síðustu tólf mánuði. Fyrstu kaupendum á íbúðamarkaði fer fækkandi en erfiðara er fyrir þá að koma sér inn á markaðinn en áður.

Hvar byggjum við 90 þúsund íbúðir á næstu 15 árum?
Einungis Garðabær á lóðir innan vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins til að styðja við þá íbúðauppbyggingu sem þarf næstu 15 árin.

Yfir 85 prósent íbúða á höfuðborgarsvæðinu kosta yfir 60 milljónir
Yfir 85 prósent íbúða á höfuðborgarsvæðinu eru verðlagðar á yfir 60 milljónir króna, sem gerir fyrstu kaupendum erfitt fyrir að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Íbúðaverð hækkaði um 4,9 prósent á fyrstu fimm mánuðum ársins.

Ólíklegt að íbúðaþörf ársins verði uppfyllt
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun telur ólíklegt að íbúðaþörf ársins verði uppfyllt. Talið er að fullbúnar nýjar íbúðir verði 3.020 í lok árs 2024, en sveitarfélögin áætla að þörf verði fyrir að meðaltali 4.700 íbúðir á ári næstu fimm ár.

Við þurfum 5.000 íbúðir á ári – ekki einungis 1.600
Til að mæta íbúðaskuld og vaxandi mannfjölda þarf að tvöfalda fjölda íbúða á höfuðborgarsvæðinu á næstu 15 til 20 árum.

Er óverðtryggða lánið að ganga frá fjölskyldunni?
Lífið er stutt. Börnin okkar eru hjá okkur í örfá ár. Þetta er dýrmætur tími sem kemur ekki aftur. Það er staðreynd að þegar ungt fólk er að koma sér inn á fasteignamarkaðinn er það jafnframt að fara inn í dýrasta fasa lífs síns.

Er þensla vegna íbúðauppbyggingar?
Seðlabankinn hefur auga á byggingarmarkaðnum þessa stundina. Fjármálastöðugleikanefnd bankans nefnir sérstaklega töluverðan vöxt í útlánum til byggingarfyrirtækja og fasteignafélaga í síðustu yfirlýsingu sinni, auk þess sem seðlabankastjóri varaði við þenslu á byggingarmarkaði í síðustu viku.

Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur
Atvinnuhúsnæði við Bankastræti 5 í miðborg Reykjavíkur hefur verið auglýst til leigu eina ferðina enn. Undanfarin ár hefur skemmtistaðurinn B5 verið þar til húsa, allt þar til í lok apríl. Húsnæðið er í eigu Fasteignafélagsins Eik.

Leitt ef ríkisstjórn er ekki treystandi í kjarasamningsviðræðum
Forseti ASÍ segir áríðandi að frumvarp innviðaráðherra um bætta stöðu leigjenda verði samþykkt fyrir þinglok. Þingmaður Pírata, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, segir frumvarpið fast í nefnd því ríkisstjórnin geti ekki komið sér saman um þinglok. ASÍ skorar á Alþingi að ljúka málinu fyrir þinglok.

Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu?
Breytt aldurssamsetning og fjölskyldumynstur hafa aukið íbúðaþörf sem ekki hefur verið mætt.

Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu
Stjórn Landsvirkjunar hefur samþykkt að selja höfuðstöðvar félagsins að Háaleitisbraut 68 í Reykjavík. Lýkur þar með endanlega tæplega hálfrar aldar aðsetri orkufyrirtækis þjóðarinnar á þeim stað. Landsvirkjun hefur ekki haft aðsetur í húsinu í tæpt ár vegna myglu.

Förum vel með byggingarvörur
Eflaust hljómar lítt spennandi að fræðast um rétta meðferð byggingarvöru í mannvirkjagerð. Engu að síður er það mikilvægt, þar sem rekja má fjölda ótímabærra og kostnaðarsamra byggingarframkvæmda til rangrar meðhöndlunar.

Sex liða áætlun til að koma á jafnvægi í húsnæðismálunum.
1.Það verður áfram að vera góður grundvöllur fyrir þann byggingariðnað sem er í landinu og það þarf að styrkja hann, meðal annars með því að útskrifa fleiri iðnaðarmenn. Það kerfi sem fyrir er á að taka við þegar jafnvægi er náð.

Ósanngjarnt að Íslendingar borgi íbúðina tvisvar eða þrisvar
Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar byrjaði ræðu sína í eldhúsdagsumræðum á því að ræða veðrið á Íslandi og það lága hitastig sem við búum við. Hann sagði á sama tíma það vera alveg sturlað að sama tala væri á stýrivöxtum mánuðum saman og meðalhitastigi á sumrin.

Fiskeldi og Vestfirðir
Í lok maí var birt nýtt fasteignamat. Fasteignamat endurspeglar verðgildi fasteigna og fasteignamatið hækkar nú hvergi meira en á Vestfjörðum. Þetta eru góðar fréttir og endurspegla uppbyggingu í atvinnulífi þar vestra sem fjölgar atvinnutækifærum og hækkar fasteignaverð.

Spegilmynd af samfélaginu muni búa á Heklureit
Heklureiturinn svokallaði í Reykjavík er að taka algerum stakkaskiptum. Ný íbúðarhús eru að rísa þar sem áður voru verkstæði. Framkvæmdastjóri Heklureits segir allt að 440 íbúðir munu rísa á reitnum og þær fyrstu verði afhentar haustið 2025.

800 nýjar íbúðir byggðar á Ásbrú
Um átta hundruð nýjar íbúðir verða byggðar á Ásbrú í Reykjanesbæ á næstu árum, auk þess sem nokkrir nýir grunn- og leikskólar verða byggðir, ráðstefnuhöll, verslanir, veitingahús og hótel svo eitthvað sé nefnt. Framkvæmdirnar munu kosta um 140 milljarða króna.

Ekki óeðlilegt að líta til þess að byggja hverfi á öðrum stöðum
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir koma vel til greina að skoða að byggja upp ný hverfi á höfuðborgarsvæðinu. Auðvelt sé að vera gagnrýnin á bæði sveitarfélög og ríkið vegna þess hvernig haldið hafi verið á spöðunum í húsnæðismálum.

Minni atvinnuþátttaka og fjölgun starfa stórauka íbúðaþörf
Þörfin fyrir vinnandi hendur vex 41% hraðar en íbúum landsins - atvinnuþátttaka minnkar og íbúðaþörf eykst hratt.

Breytt aldurssamsetning þjóðarinnar stóreykur þörfina fyrir íbúðarhúsnæði
Eftir tíu ár verða 65 ára og eldri um 17% íbúa á höfuðborgarsvæðinuog búa í um 38 þúsund íbúðum eða um 35% af öllum íbúðum á svæðinu.

Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi
Fasteignafélagið Þórkatla hefur ákveðið, í samráði við Almannavarnir og Lögreglustjórann á Suðurnesjum, að halda áfram móttöku fasteigna í Grindavík strax á mánudag. Ákvörðunin er þó með þeim fyrirvara að aðstæður í bænum og við eldstöðvarnar breytist ekki til hins verra.

Heildarmat fasteigna hækkar um 4,3 prósent árið 2025
Heildarmat fasteigna árið 2025 hækkar um 4,3 prósent frá fyrra ári og verður 15,3 billjónir króna. Fasteignamat íbúða hækkar um 2,1 prósent á höfuðborgarsvæðinu og um 6,6 prósent á landsbyggðinni.

Kynna uppfært fasteignamat
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun kynnir uppfært fasteignamat fyrir árið 2025 á opnum fundi klukkan 10 í dag. Fundinn má sjá í beinni útsendingu hér á Vísi.

Engin hlutdeildarlán fyrr en þingið afgreiðir fjáraukalög
Enn hefur ekki borist meira fjármagn frá stjórnvöldum til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að veita í hlutdeildarlán. Aðeins hefur verið úthlutað þrisvar sinnum á þessu ári en miðað er við að það gerist mánaðarlega. Engar breytingar verða þar á fyrr en frumvarp til fjáraukalaga verður samþykkt á Alþingi.

Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði
Kaupsamningum á fyrsta ársfjórðungi fjölgaði um 29 prósent frá fyrra ári og hlutfall íbúða sem seldist á yfirverði hækkaði í öllum landshlutum í mars.

Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík
Kjartan Sigurðsson athafnamaður frá Grindavík skipuleggur nú, ásamt öðrum, hópmálsókn á hendur íslenska ríkinu vegna þeirra skilyrða sem sett hafa verið við uppkaup fasteigna í Grindavík. Samkvæmt skilmálum Þórkötlu fasteignafélags er einstaklingum sem eiga íbúðarhúsnæði gefinn kostur á að selja félaginu fasteign sína.

Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“
Formaður bæjarráðs Grindavíkur segir að leiguverð sem fasteignafélagið Þórkatla hafi sett á seldar eignir í bænum alltof hátt - og alls ekki til þess fallið að fá fólk til að snúa aftur í bæinn. Hann reiknar ekki með að margir nýti sér úrræðið en fyrri eigendum húsanna býðst að leigja þau á 625 krónur fermetrann.

Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði
Starfsmenn fasteignafélagsins Þórkötlu hafa yfirfarið og samþykkt kaup á 660 húseignum í Grindavík og undirritað 471 kaupsamning. Félaginu hefur borist samtals 781 umsókn um kaup á íbúðarhúsnæði í bænum.

Vextir geta og þurfa að lækka
Íslendingum hefur gengið erfiðlega að ná niður þeirri miklu verðbólgu sem gekk yfir hagkerfi heimsins í kjölfar heimsfaraldurs og stríðsátaka í Úkraínu. Fyrir því eru margar ástæður. Hagvöxtur síðustu ára hefur verið mikill hér á landi og mikil þensla haft áhrif á húsnæðisverð, vinnumarkað og vöruverð í hagkerfinu.

„Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega
Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, segir ekkert tortryggilegt við samninga borgarinnar við olíufélögin um að greiða ekki innviðagjald eða byggingargjald á reitum þar sem borgaryfirvöld vilja að rísi íbúabyggð.