HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta karla fór fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó dagana 11. júní til 19. júlí 2026. Spánverjar stóðu uppi sem heimsmeistarar.

Leikirnir




    Fréttamynd

    Ollie Kane kynntur til leiks

    Áhorfendur ráku upp stór augu þegar byrjunarlið Englands fyrir æfingaleik gegn Nýja-Sjálandi birtist á skjánum á Raymond James leikvanginum í Flórída. Nánast hver einasti leikmaður í liði Englands var rangnefndur.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Borinn grátandi af velli viku fyrir HM

    Julio Enciso, stjörnuleikmaður Paragvæ, var með tárin í augunum þegar hann var borinn meiddur af velli í leik gegn Níkaragva í nótt. Paragvæ mætir Bandaríkjum á HM í fótbolta eftir minna en viku.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“

    Austurríki gegn Alsír virkar kannski ekki eins og mest spennandi leikurinn á HM. Þar fá Alsíringar hins vegar tækifæri til að hefna fyrir einn stærsta skandal fótboltasögunnar, þegar Austurríki tapaði viljandi á HM 1982 til að senda Alsír heim.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Hefur ekki á­hyggjur af slæmum velli

    Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands ætlar ekki að láta völlinn hafa áhrif á liðaval sitt í upphitunarleikjum fyrir HM. Völlurinn er aðeins tímabundinn og eru einhverjir hræddir um auknar líkur á að leikmenn meiðist á vellinum.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar

    Það voru margar hetjur þegar Frakkar urðu heimsmeistarar í fyrsta sinn sumarið 1998. Ein af þeim óvæntu sá til þess að þeir fengu tækifæri til að spila til úrslita um heimsmeistaratitilinn. Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir sjö daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur HM karla.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Tryggði sigurinn með glæsimarki

    Holland tók á móti Alsír í vináttuleik fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta sem hefst í næstu viku. Bæði lið voru að finna styrkleika sína fyrir mótið.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Danir and­lausir gegn Kongó

    Danir eru ekki sáttir eftir að hafa gert markalaust jafntefli í vináttuleik gegn Kongó í kvöld. Liðið var andlaust og það er ekki að sjá að liðið vilji bæta upp fyrir það að hafa ekki komist á heimsmeistaramótið.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM

    Brasilíumenn eru sigursælasta þjóð í sögu heimsmeistarakeppninnar með fimm heimsmeistaratitla og eru eina þjóðin sem hefur alltaf verið með. Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir átta daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta og nú er komið að því að skoða mótið þegar Norður-Kórea náði betri árangri en Brasilía.

    Fótbolti