Messi á bekknum í sigri Argentínu Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. júní 2026 09:35 Messi og „lífvörðurinn“ Rodrigo De Paul léttir í lund á varamannabekknum í nótt. Tim Warner/Getty Images Argentína fagnaði 2-0 sigri í æfingaleik gegn Hondúras í nótt. Lautaro Martínez og Giuliano Simeone skoruðu mörkin en Lionel Messi vermdi varamannabekkinn.
Leikurinn var hluti af undirbúningi Argentínu fyrir HM. Ríkjandi heimsmeistararnir eiga svo eftir að mæta íslenska landsliðinu aðfaranótt miðvikudags. Lautaro Martínez átti frábæran leik fyrir Argentínu í nótt. Hann skoraði fyrsta markið á 37. mínútu úr vítaspyrnu, eftir klaufalegt brot Hondúras-manna á Nicolás Tagliafico. Martínez lagði svo annað markið upp fyrir Giuliano Simeone með skemmtilegri hælspyrnu. Argentina's bench vs. Honduras 🤯 pic.twitter.com/tWHhhASWUT— ESPN FC (@ESPNFC) June 7, 2026 Argentína skipti öllu byrjunarliðinu út í seinni hálfleik en varamaðurinn Lionel Messi gat ekki tekið þátt í leiknum vegna meiðsla. Messi er að glíma við álagsmeiðsli í læri en vonast er til að hann geti spilað eitthvað gegn Íslandi á þriðjudag. Messi hefur nú þegar slegið metið fyrir flesta leiki á HM (26) og þarf fjögur mörk til að slá markamet Miroslav Klose (16). Neymar utan hóps hjá Brasilíu Í nótt mættust Brasilía og Egyptaland einnig í æfingaleik. Brassar fóru þar með 2-1 sigur. Bruno Guimares skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Brasilíu á 7. mínútu, með góðu skoti fyrir utan vítateig. Forystan entist aðeins í þrjár mínútur því þá skoraði Mostafa Ziko jöfnunarmark Egyptalands, eftir slaka sendingu hjá miðverðinum Marquinhos. Igor Thiago fékk frábært færi rétt fyrir hálfleik en skoraði ekki. Hann var síðan tekin af velli í hálfleik og Endrick kom inn á. Egyptaland gerði einnig breytingar á sínu liði og skipti meðal annars Mohamed Salah inn á. Endrick var fljótur að láta til sín taka og skoraði sigurmark leiksins eftir góða fyrirgjöf frá Raphinha á 52. mínútu. Neymar gat ekki tekið þátt í leiknum vegna meiðsla og var utan hóps. Brassar lentu líka í öðrum meiðslum þegar varnarmaðurinn Wesley neyddist til að fara af velli. RAPHINHA TO ENDRICK FOR BRAZIL 🇧🇷That moment between Endrick and Don Carlo after scoring the match-winning goal 💙 pic.twitter.com/J02x9bSuMj— ESPN FC (@ESPNFC) June 7, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Leik lokið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira