Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Undirbúningur Landsmóts hestamanna er á lokametrunum, en búist er við allt að átta þúsund gestum, þar á meðal fjölda útlendra áhugamanna um íslenska hestinn. Mótssvæðið er sagt tilbúið fyrir þá hundruð hesta sem koma fram í keppni og sýningu, en samningaviðræður við veðurguðina standa enn yfir, að sögn framkvæmdastjóra mótsins. Innlent 28.6.2026 21:02
Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Áhöfn skips Paul Watson hefur ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu sína á Íslandsmiðum líkt og gæslan óskaði eftir í gær. Í fréttatímanum verður talað við formann Hvalavina sem hefur áhyggjur af komu skipsins og segir Hvalavini ekki styðja aðgerðirnar. Innlent 28.6.2026 11:46
Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Á sveitabæ einum á Vatnsnesi er búið að breyta gamla súrheysturninum í gistirými fyrir ferðamenn. Bændurnir segja gestina dolfallna. Innlent 25.6.2026 23:23
Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Aðalfundur Hestamannafélagsins Sleipnis og Sleipnishallarinnar ehf. á Selfossi var haldinn í vikunni. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa undirrituðu Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og Berglind Sveinsdóttir, formaður Sleipnis, nýjan fimm ára þjónustusamning milli Árborgar og félagsins. Samningurinn markar mikilvægt skref í áframhaldandi og öflugu samstarfi aðila. Innlent 7. febrúar 2026 10:17
Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Í desember 2014 varð mikið áfall innan hestamannahreyfingarinnar þegar tólf hestar fundust drukknaðir í Bessastaðatjörn á Álftanesi. Hrossin höfðu verið í haustbeit á Bessastaðanesinu á vegum Hestamannafélagsins Sóta og Íshesta, og þegar smalað var eftir óveður kom í ljós að óvenju mörg dýr vantaði. Í kjölfarið var farið að leita og þá kom í ljós hið versta: hrossin höfðu farið út á ísinn einhvern síðustu daga, ísinn gefið eftir og þau farið undir. Lífið 25. janúar 2026 10:00
Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Bóndi í Grímsnes- og Grafningshreppi hvetur sumarbústaðaeigendur til þess að skjóta upp flugeldum frekar heima hjá sér heldur en út í sumarbústað. Hann segir óvenju mikið hafa verið skotið upp í sveitinni á gamlársdag í ár með tilheyrandi eltingaleikjum við hrossin á bænum. Innlent 2. janúar 2026 09:57
Hægt að gefa hundum róandi og lyf til að gleyma um áramót Hanna Arnórsdóttir, dýralæknir á Dýraspítalanum í Garðabæ, segir marga hunda hrædda við flugelda og hávaðann sem þeim fylgja og það geti haft mikil áhrif á þá í aðdraganda og á gamlárskvöldi. Hægt sé að gefa hundum töflur til að gleyma og til að róa þá. Innlent 30. desember 2025 10:03
Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögreglumenn fóru á vettvang eftir að tilkynnt var um laus hross. Lögreglan aðstoðaði við að fanga hrossin og koma þeim í öruggt skjól. Innlent 26. desember 2025 18:24
Konráð Valur valinn knapi ársins Konráð Valur Sveinsson var valinn knapi ársins 2025 á uppskeruhátíð Landsambands hestamannafélaga um nýliðna helgi. Sport 10. nóvember 2025 18:32
Sigurbjörn gæti snúið aftur til starfa: „Það kemur bara í ljós á næstu dögum“ Sigurbjörn Bárðarson tilkynnti í síðustu viku að hann væri hættur sem þjálfari íslenska landsliðsins í hestaíþróttum, en haldið í hestana ykkar, hann gæti snúið aftur til starfa á allra næstu dögum. Sport 22. október 2025 09:32
Gummi Emil sver af sér ásakanir um dýraníð: „Ég bað hestinn afsökunar“ Guðmundur Emil Jóhannsson, einkaþjálfari og áhrifavaldur, hefur beðist afsökunar á harkalegri meðferð á hesti sem hann sat, við tökur á nýju tónlistarmyndbandi. Myndband af athæfinu hefur mætt mikilli gagnrýni, og hann verið sakaður um dýraníð. Hann segir það fjarri lagi. Innlent 15. október 2025 16:12
Veðreiðafólk fer í verkfall og mótmælir við breska þingið Knapar, þjálfarar og eigendur leggja niður svipur, beisli og tauma í dag, til að mótmæla fyrirhuguðum hækkunum á sköttum tengdum veðmálum við kappreiðar. Til stendur að hækka skattinn í sömu prósentu og gildir um allar aðrar tegundir af veðmálum. Sport 10. september 2025 10:00
Féll af baki íslensks hests og fær engar skaðabætur Þýsk ferðakona fær ekki bætur frá íslensku tryggingafélagi eftir að hafa slasast á hestbaki hjá íslensku ferðaþjónustufyrirtæki. Ekki þótti sannað að fyrirtækið hefði sýnt af sér saknæma háttsemi. Öllu heldur hefði verið um viðbúið óhappatilvik að ræða. Innlent 8. september 2025 13:51
„Það bjó enginn í húsinu“ Enginn býr í hesthúsinu sem brann í Hafnarfirði um helgina að sögn hestamanns sem leigir húsið undir hrossin sín. Dæmi hafi þó komið upp um að fólk dvelji í hesthúsum á svæðinu. Hestarnir hans voru blessunarlega ekki inni í húsinu þegar eldurinn kom upp en hann er miður sín yfir tjóninu enda hafi margir munir „fuðrað upp“ í brunanum. Innlent 17. ágúst 2025 16:37
Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Fólk hefur búið í hesthúsum í Hafnarfirði þar sem eldur kom upp í nótt. Sveinn Heiðar Jóhannesson, varaformaður stjórnar Hestamannafélagsins Sörla, greinir frá því í samtali við fréttastofu og segir að félagið og aðrir hafi talað um það fyrir daufum eyrum Hafnarfjarðarbæjar. Innlent 16. ágúst 2025 14:01
Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Íslensk hestakona lauk keppni í erfiðustu kappreiðum í heimi í dag. Hún er ánægð með að hafa náð að ljúka keppninni og mun fagna árangrinum í kvöld. Lífið 13. ágúst 2025 11:18
Ekkert ævintýri fyrir mongólsku hestana Nýverið hefur verið fjallað um þátttöku hestakonu í erlendri kappreið sem ber yfirskriftina The Mongol Derby og kynnt sem krefjandi ævintýri á hálfvilltum hestum. Kappreiðin fer fram í Mongólíu og gengur út á að keppendur fari eins hratt og hægt er 1.000 kílómetra á hestbaki. Skoðun 12. ágúst 2025 09:00
„Þá sér maður að það brestur margur og klökknar“ Heimsmeistaramóti íslenska hestsins lauk í Sviss í gær. Landsliðsþjálfari íslenska liðsins segir árangurinn á mótinu hafa verið frábæran og að tár hafi fallið hjá knöpum sem þurfa nú að skilja við hestana sína erlendis vegna sóttvarnalaga. Sport 11. ágúst 2025 12:15
Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Hryssan Atorka féll frá fjögurra vikna folaldinu Tígli sem tók að horast í kjölfarið. Á nálægum bæ hafði hryssan Hermína misst folaldið sitt í köstun. Þau voru kynnt hvort fyrir öðru og hefur myndast með þeim fallegt mæðginasamband. Lífið 3. ágúst 2025 14:24
Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Njálsbrenna verður sviðsett og Bergþórshvoll brenndur með hópreið 99 brennumanna á fjögurra daga Njáluhátíð sem nýstofnað Njálufélag undir forystu Guðna Ágústssonar, fyrrverandi ráðherra, efnir til í Rangárþingi í næsta mánuði. Guðni segir þetta verða tignarlegustu sjón allra tíma. Innlent 22. júlí 2025 22:23
Getur verið erfitt að kveðja: „Það var aðeins grátið“ Heimsmeistaramót íslenska hestsins fer fram í byrjun ágúst. Að mörgu þarf að huga fyrir slíkt mót og geta tilfinningarnar verið miklar að því loknu. Markmið keppenda eru þá skýr. Sport 17. júlí 2025 09:33
Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Anna Guðný Baldursdóttir bóndi undirbýr sig núna fyrir þátttöku í lengstu og erfiðustu kappreið heims, Mongol Derby. Keppnin hefst þann 4. ágúst í Ulaanbatar. Anna Guðný segir það langþráðan draum að taka þátt í keppninni. Aðeins einu sinni áður hefur Íslendingur tekið þátt en það var Aníta Aradóttir árið 2014. 46 taka þátt í keppninni í ár. Innlent 11. júlí 2025 07:03
Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Landsliðshópur Íslands fyrir heimsmeistaramót íslenska hestsins í Sviss var opinberaður með pompi og prakt í höfuðstöðvum Icelandair í Hafnarfirði síðdegis. Tæpur mánuður er í mót og spenna á meðal HM-fara. Sport 9. júlí 2025 17:38
Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Liturinn á hestinum Prins Greifa í Vestur Landeyjum vekur alltaf mikla athygli en hann er Brún ýruskjóttur varblesóttur og eini hesturinn hér á landi með þannig litasamsetningu. Innlent 6. júlí 2025 20:07
Uppgjörið: Keflavík - KR 3-2| Frábært sigurmark batt enda á 18 ára bið eftir sigri gegn KR Íslenski boltinn