

Geimurinn
Fréttir af geimvísindum og geimferðum.

Hefja árslangt ferðalag sem endar á brotlendingu
Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið skjóta DART-geimfarinu á loft á fimmtudagsmorgun (24. nóv). Geimfarið á að brotlenda á smástirni í um ellefu milljóna kílómetra fjarlægð eftir tæpt ár. Markmiðið er að kanna getu jarðarbúa til að breyta stefnu smástirnis ef ske skyldi að slíkt stefndi að jörðinni.

Seinka skoti stærsta geimsjónauka heims
Ákveðið hefur verið að seinka geimskoti James Webb-geimsjónaukans, þess stærsta í sögunni, um nokkra daga eftir uppákomu við undirbúning þess. Honum verður nú skotið á loft í fyrsta lagi tveimur dögum fyrir jól.

Deildarmyrkvi á tungli: „Þetta er alltaf jafn gull, gullfallegt“
Íslendingar hafa margir litið til himins í morgun, en deildarmyrkvi á tungli er nú sjáanlegur. Myrkvinn verður sjáanlegur til rétt rúmlega tíu.

Vinna að þróun nýs tungljeppa fyrir Artemis-áætlunina
Forsvarsmenn bandaríska fyrirtækisins Northrop Grumman hafa opinberað að fyrirtækið leiðir hóp fyrirtækja sem vinna að því að þróa tungljeppa fyrir Artemis-áætlunina. Farartæki sem geimfarar eiga að nota til að ferðast um yfirborð tunglsins á nýjan leik.

Rússar staðfesta að þeir hafi skotið gamlan gervihnött
Varnarmálaráðuneyti Rússlands staðfesti í dag að það hefði skotið á gamlan gervihnött í vopnatilraun. Það hafnar því að geimruslið sem myndaðist hafi teflt lífi geimfara í Alþjóðlegu geimstöðinni eða öðru gervihnöttum í hættu.

Tunglmyrkvi sjáanlegur á föstudag ef veður leyfir
Íslendingar geta barið deildarmyrkva á tungli augum á föstudagsmorgun ef veðurguðirnir verða samvinnuþýðir. Eins og sakir standa benda verðurspár til þess að þeir verði með mótþróa.

Vopnatilraun Rússa kennt um geimruslahaug sem ógni Alþjóðageimstöðinni
Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur fordæmt nýlega vopnatilraun Rússa í geimnum sem varð þess valdandi að geimruslahaugur varð til, ef svo má að orði komast. Rússar eru sakaðir um að hafa sprengt gervitungl í tætlur með flugskeyti. Geimruslið er sagt ógna Alþjóðlegu geimstöðinni.

Einn þeirra sem fór út í geim með Shatner lést í flugslysi
Frumkvöðullinn Glen de Vries lést í flugslysi í New Jersey í Bandaríkjunum á fimmtudag. Þann 13. október síðastliðinn ferðaðist de Vries út í geim um borð í eldflaug Blue Origin ásamt leikaranum William Shatner.

Fundu fyrirferðarlítið svarthol utan Vetrarbrautarinnar
Stjörnufræðingum tókst að finna lítið svarthol inni í miðri stjörnuþyrpingu utan Vetrarbrautarinnar okkar. Aðferðin sem var notuð gæti gert þeim kleift að finna hulin svarthol í Vetrarbrautinni okkar og nálægum stjörnuþokum.

Sex hundraðasti geimfarinn á leið til geimstöðvarinnar
Fjórir geimfarar eru á leið til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar eftir vel heppnað geimskot frá Flórída í nótt. Áætlað er að þau komi til geimstöðvarinnar seinna í dag en um borð í Crew Dragon geimfarinu er sex hundraðasti geimfari jarðarinnar.

Luku 198 daga geimferð í nótt
Fjórir geimfarar féllu til jarðar í geimfari SpaceX í nótt og lentu undan ströndum Flórída. Þar með lauk 198 daga geimferð um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni. Þetta var þriðja mannaða geimferð SpaceX en sú fjórða hefst væntanlega á morgun.

Fundu reikistjörnur þvers og kruss um stjörnu
Stjörnufræðingar klóra sér nú í höfðinu yfir einstöku sólkerfi sem þeir fundu í 150 ljósára fjarlægð. Tvær reikistjörnur ganga í kringum póla móðurstjörnunnar en önnur um miðbaug hennar eins og hefðbundið er.

Koma bleyjuklæddir heim vegna salernisbilunar
Geimfarar sem nú dvelja um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni en hyggja á heimferð á morgun neyðast til að vera með bleyju á leiðinni heim, þar sem salernið um borð í SpaceX farinu sem mun flytja þá til jarðar er bilað.

Vígahnöttur yfir Faxaflóa í gærkvöldi
Fjölmargir borgarbúar urðu vitni að því í gærkvöldi þegar svokallaður vígahnöttur sást yfir höfuðborginni rétt fyrir klukkan níu.

Telja sig hafa fundið fyrstu reikistjörnuna utan Vetrarbrautarinnar
Stjarnvísindamenn telja sig hafa fundið merki um reikistjörnu á braut um stjörnu utan Vetrarbrautarinnar okkar í fyrsta skipti. Allar þær þúsundir fjarreikistjarna sem menn hafa fundið til þessa eru í Vetrarbrautinni.

Kanna leiðir til að draga úr áhrifum geimferða
Fjórum geimförum verður skotið út í geim á sunnudagsmorgun. Þau munu verja næstu mánuðum við störf og rannsóknir í Alþjóðlegu geimstöðinni. Geimförunum verður skotið út í geim um borð í Crew Dragon geimfari SpaceX.

Geimklósettið til vandræða í geimfari SpaceX
Allt leit út fyrir að geimskot SpaceX í september, þar sem fjórir geimfarar fóru hringinn í kringum jörðina í Crew Dragon geimfarinu, hafi gengið hnökralaust fyrir sig. Annað kom á daginn þegar heim var komið. Gat hafði komið á pípulagnir geimklósettsins um borð.

Fyrsta eldflaug Artemis sett saman og stefnt á geimskot til tunglsins snemma á næsta ári
Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa lokið samsetningu fyrstu eldflaugarinnar af þeirri gerð sem bera á menn til tunglsins á nýjan leik og jafnvel til Mars. Orion geimfari var komið fyrir á toppi SLS-eldflaugar í Flórída í síðustu viku en eldflauginni verður ekki skotið á loft fyrr en í fyrsta lagi í febrúar.

Ekki Tesla heldur SpaceX sem muni gera Musk að billjónamæringi
Það verður ekki bílafyrirtækið Tesla sem mun mögulega gera Elon Musk, auðugasta mann heims, að fyrsta billjónamæringnum (í dölum talið) heldur geimfyrirtækið SpaceX. Greinendur bandaríska fjárfestingabankans Morgan Stanley telja að SpaceX muni hafa gífurleg áhrif á heiminn og geimferðir.

Fyrstu kvikmyndatökunni úti í geim lokið
Rússnesk leikkona og leikstjóri sneru aftur til jarðar í gær eftir að hafa varið tólf dögum í Alþjóðlegu geimstöðinni þar sem þau voru við tökur á nýrri kvikmynd. Við komuna til jarðar fóru þau strax í að taka upp nokkrar aukasenur þrátt fyrir tólf daga linnulausar tökur.

Skjóta geimfari af stað í tólf ára leiðangur
Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) munu í dag skjóta geimfarinu Lucy af stað í tólf ára leiðangur. Þetta er í fyrsta sinn sem geimfar er sent til Smástirnabeltisins svokallaða í þeim tilgangi að rannsaka þau og á Lucy að auka þekkingu vísindamanna á uppruna sólkerfisins.

Bein útsending: Kínverjar senda þrjá geimfara til geimstöðvarinnar
Þremur geimförum verður í dag skotið á braut um jörðu frá Kína. Þar munu geimfararnir vera í hálft ár að vinna við gerð geimstöðvar Kína. Shenzhou-13 er annað af fjórum mönnuðum geimskotum Kína á meðan verið er að klára geimstöðina.

Reikistjarna sem lifði stjörnu sína vísbending um framtíð sólkerfisins
Hópi stjörnufræðinga tókst að finna fjarreikistjörnu sem lifði af dauða kulnaðar móðurstjörnu sinnar. Uppgötvunin er sögð veita innsýn inn í framtíð sólkerfisins okkar eftir að sólin syngur sitt síðasta eftir milljarða ára.

Hrökk upp við að loftsteinn lenti í rúminu
Kanadísk kona slapp með skrekkinn þegar loftsteinn hrapaði í gegnum þakið á húsi hennar og lenti í rúminu við hliðina á henni. Ruth Hamilton vaknaði með látum á heimili hennar í Bresku Kólumbíu fyrr í mánuðinum en hún hélt fyrst að tré hefði fallið á húsið.

William Shatner er elsti geimfari jarðarinnar
Geimskot Blue Origin þar sem níræði leikarinn William Shatner varð elsti maður jarðarinnar til að fara út í geim, heppnaðist vel. Eftir að vera skotið á loft frá Texas lentu geimfararnir nýju heilu og höldnu annarsstaðar í ríkinu.

„Ég vil horfa á þennan hnött og meta fegurð hans“
Leikarinn William Shatner fer út í geim á morgun. Það mun hann gera með þremur öðrum geimförum um borð í geimfarinu NS-18. Hinum níræða Shatner og geimförunum verður svo skotið á loft af starfsmönnum Blue Origins.

Skörpustu myndirnar af stærstu smástirnum sólkerfisins
Myndir sem stjörnufræðingar hafa náð af 42 stærstu fyrirbærunum í smástirnabeltinu í sólkerfinu okkar eru þær skörpustu til þessa. Þær varpa ljósi á fjölbreytta lögun og efnasamsetningu smástirnanna.

Geimfari náði mynd af þotu á flugi
Geimfarar um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni hafa annað sjónarhorn á Jörðina en við hin. Það sést glögglega á ljósmynd sem bandaríski geimfarinn Megan McArthur náði úr geimstöðinni á dögunum.

Skjóta geimfari á loftstein til að æfa jarðvarnir
Geimfari á vegum NASA, bandarísku geimvísindastofnunarinnar, verður skotið á loft í næsta mánuði og mun brotlenda á smástirni í 11 milljóna kílómetra fjarlægð eftir tæpt ár.

Leikkona og leikstjóri á leið til geimstöðvarinnar
Rússneskri leikkonu, leikstjóra og geimfara var skotið af stað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar í morgun. Geimskotið heppnaðist vel og eru geimfararnir þrír á leið til geimstöðvarinnar þar sem þau Yulia Peresild og Klim Shipenko munu taka upp fyrstu kvikmyndina í geimnum.