Blaðamaður sem mótmælti regnbogareglum á HM er látinn Bandaríski blaðamaðurinn Grant Wahl er látinn, 49 ára að aldri. Hann var staddur í Katar til að færa fréttir af Heimsmeistaramótinu í fótbolta sem fer fram þar um þessar mundir. Hann hneig niður er hann var að fylgjast með leik Argentínu og Hollands í gær. Fótbolti 10. desember 2022 08:11
Sigur Króatíu sá næst óvæntasti í sögu útsláttarkeppni HM Heimsmeistaramótið í Katar heldur áfram að koma á óvart og sigur Króatíu gegn Brasilíu í átta liða úrslitum í gær var sá næst óvæntasti í sögu útsláttarkeppni HM frá upphafi. Fótbolti 10. desember 2022 07:01
Fullyrðir að Óskar Örn muni leika með Grindavík á næsta tímabili Óskar Örn Hauksson, leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi, mun leika með Grindavík í Lengjudeildinni á komandi tímabili. Fótbolti 9. desember 2022 23:13
Neymar jafnaði opinbert markamet Pelé Neymar jafnaði í dag opinbert markamet goðsagnarinnar Pelé fyrir brasilíska landsliðið í knattspyrnu. Neymar skoraði mark Brasilíu er liðið féll úr leik á heimsmeistaramótinu gegn Króatíu eftir vítaspyrnukeppni. Fótbolti 9. desember 2022 23:00
Karólína Lea farin að æfa á ný Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir virðist loksins vera að ná sér af löngum meiðslum og er farin að æfa með félagsliði sínu, þýska stórveldinu Bayern München, á nýjan leik. Fótbolti 9. desember 2022 22:31
Argentína tryggði sér sæti í undanúrslitum með sigri í vítaspyrnukeppni Argentína er á leið í undanúrslit eftir sigur gegn Hollendingum í vítaspyrnukeppni. Argentína náði tveggja marka forystu í venjulegum leiktíma, en Hollendingar gáfust ekki upp og náðu að knýja fram framlengingu og að lokum vítaspyrnukeppni. Fótbolti 9. desember 2022 22:01
Tite hættur með brasilíska landsliðið eftir tapið gegn Króatíu Tite hefur sagt starfi sínu sem knattspyrnustjóri brasilíska landsliðsins lausu eftir að liðið féll úr leik á heimsmeistaramótinu í Katar eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Króatíu. Fótbolti 9. desember 2022 20:04
Króatar fyrstir í undanúrslit eftir dramatík og vítaspyrnukeppni Króatía varð í dag fyrsta þjóðin til að tryggja sér sæti í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í Katar er liðið hafði betur gegn Brasilíu í vítapyrnukeppni, 4-3. Markalaust var að venjulegum leiktíma loknum og liðin skoruðu sitt markið hvort í framlengingunni og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Fótbolti 9. desember 2022 17:51
Byggingafyrirtæki enn starfandi þrátt fyrir að greiða verkafólki ekki laun Katarskt byggingafyrirtæki er enn starfrækt þrátt fyrir loforð katarskra yfirvalda um annað þegar í ljós kom að fyrirtækið greiddi ekki starfsfólki sínu. Fyrirtækið átti að eiga í vandræðum með að greiða laun vegna meintrar lokunar þess, en starfsemi er enn virk í fyrirtækinu. Fótbolti 9. desember 2022 16:01
„Látið Cristiano Ronaldo í friði“ Landsliðsþjálfari Portúgala segir að það sé kominn tími á það að leyfa Cristiano Ronaldo að fá að vera í friði. Fótbolti 9. desember 2022 14:01
Van Gaal kokhraustur: „Ekki erfitt að stöðva Messi“ Það vantar sjaldan gorgeirinn í Louis van Gaal, þjálfara hollenska fótboltalandsliðsins. Fyrir leikinn gegn Argentínu sagði hann að það væri lítið mál að finna lausnir við Lionel Messi, einum besta fótboltamanni allra tíma. Fótbolti 9. desember 2022 13:31
Sögulínurnar sem eru undir hjá þjóðunum sem eru enn á lífi á HM í Katar Átta liða úrslitin á heimsmeistaramótinu í fótbolta í Katar hefjast í dag en átta þjóðir geta enn orðið heimsmeistarar. Fótbolti 9. desember 2022 12:00
Þrefalt hærri sekt fyrir níðsöngva um UEFA en fyrir kynþáttaníð Eitthvert ósamræmi virðist vera hjá Evrópska knattspyrnusambandinu, UEFA, þegar kemur að sektum fyrir ólæti stuðningsmanna ef litið er til tveggja dæma um slíkar sektir sem fyrirskipaðar voru af sambandinu í vikunni. Fótbolti 9. desember 2022 11:31
41 árs Zlatan stefnir á endurkomu í næsta mánuði Svíinn Zlatan Ibrahimovic er ekki dauður úr öllum æðum þrátt fyrir háan aldur. Hann er við það að snúa aftur eftir krossbandsslit á nýju ári en hann verður 42 ára gamall næsta haust. Fótbolti 9. desember 2022 10:31
Sjáðu Sveindísi Jane stinga allar af og skora fyrsta Meistaradeildarmarkið sitt Íslenski landsliðsframherjinn Sveindís Jane Jónsdóttir opnaði markareikning sinn í Meistaradeildinni í gærkvöldi þegar hún skoraði eitt af mörkum VfL Wolfsburg í 4-2 sigri á AS Roma í riðlakeppninni. Fótbolti 9. desember 2022 10:02
Kaká um Ronaldo: „Heima er hann bara einhver feitur gaur á röltinu“ Fyrrum fótboltamaðurinn Kaká, sem var hluti af brasilíska landsliðinu sem vann HM 2002, segir fótboltamenn gjarnan ekki fá þá virðingu sem þeir eiga skilið í heimalandinu. Það eigi sérstaklega við um Neymar, leikmann landsliðsins, sem hljóti óvægna gagnrýni. Fótbolti 9. desember 2022 09:30
Framkvæmdastýra FIFA neitar að tjá sig um dauðsfall verkmanns Fatma Samoura, framkvæmdastýra Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, harðneitaði að tjá sig um andlát filippeysks verkamanns sem lést við endurbætur á aðstöðu landsliðs Sádi-Arabíu á HM í Katar á meðan riðlakeppni mótsins stóð. Sport 9. desember 2022 08:01
Fyrrum stjóri Alberts óvinsæll: „Lélegasti, falskasti og yfirlætislegasti þjálfari sem ég hef haft“ Federico Marchetti, fyrrum markvörður Genoa, liðs Alberts Guðmundssonar, fer ekki fögrum orðum um fráfarandi stjóra liðsins sem var rekinn í vikunni. Fótbolti 9. desember 2022 07:31
Real Madrid að krækja í næstu vonarstjörnu Brasilíu eftir tvö ár Spænska stórveldið Real Madrid er við það að tryggja sér þjónustu 16 ára gamla undrabarnsins Endrick frá Palmeiras í Brasilíu. Fótbolti 9. desember 2022 07:00
Segir dauðann vera „náttúrulegan hluta af lífinu“ eftir andlát verkamanns Nasser Al Khater, framkvæmdastjóri heimsmeistaramótsins í Katar, hefur verið harðlega gagnrýndur af hinum ýmsu hópum sem berjast fyrir mannréttindum fyrir ummæli sín um filippeyskan verkamann sem lét lífið í vinnuslysi eftir að HM hófst. Fótbolti 8. desember 2022 23:01
Sveindís skoraði og lagði upp í sigri Wolfsburg Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir átti frábæra innkomu fyrir Wolfsburg er liðið vann 4-2 sigur gegn Roma í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 8. desember 2022 20:16
Englendingar endurheimta Sterling fyrir leikinn gegn Frökkum Enski vængmaðurinn Raheem Sterling mun snúa aftur til Katar fyrir leik enska landsliðsins gegn því franska í átta liða úrslitum HM sem fram fer á laugardaginn. Fótbolti 8. desember 2022 18:00
Eftirmaður Enriques fundinn Spánverjar voru ekki lengi að finna eftirmann Luis Enrique sem er hættur sem þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta. Fótbolti 8. desember 2022 17:00
Southgate fékk Íslandsóvin til að skemmta enska landsliðinu Gareth Southgate fékk sjálfan Robbie Williams til að koma enska landsliðinu í gírinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Frakklandi í átta liða úrslitum á HM í Katar. Fótbolti 8. desember 2022 16:31
Albert byrjaði er Gilardino byrjaði á sigri Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Genoa sem sigraði Sudtirol, 2-0, í ítölsku B-deildinni í dag. Þetta var fyrsti leikur Genoa eftir að liðið skipti um þjálfara. Fótbolti 8. desember 2022 16:00
Vilja halda Southgate sama hvernig fer gegn Frökkum Enska knattspyrnusambandið vill halda Gareth Southgate í starfi landsliðsþjálfara Englands sama hvernig leikurinn gegn Frakklandi í átta liða úrslitum á HM fer. Fótbolti 8. desember 2022 15:01
Van Gaal gerði stjörnuna vandræðalega: „Núna kyssumst við á munninn“ Louis van Gaal gefur lítið fyrir gagnrýni Ángels Di María sem var rifjuð upp fyrir honum á blaðamannafundi fyrir leik Hollands og Argentínu í dag. Fótbolti 8. desember 2022 13:47
Fengu UFC bardagastjörnurnar til að velja á milli fótboltakappa Hvor þeirra er betri? Fótboltaáhugafólk er oft fengið til að velja á milli tveggja öflugra fótboltamanna en hvað finnst bardagaköppum í UFC? Fótbolti 8. desember 2022 13:30
Neita því að Ronaldo hafi hótað því að hætta á HM Cristiano Ronaldo fékk blauta tusku í andlitið þegar hann var settur á bekkinn fyrir leik Portúgal í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Katar. Fótbolti 8. desember 2022 12:15
Enrique hættir með Spánverja Luis Enrique hefur sagt af sér sem þjálfari spænska karlalandsliðsins í fótbolta eftir slakan árangur liðsins á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir í Katar. Fótbolti 8. desember 2022 12:00