Þjálfarinn sagður rekinn eftir megna óánægju Ronaldos Dagar franska þjálfarans Rudi García sem þjálfari Al Nassr í Sádi-Arabíu virðast vera taldir. Spænska blaðið Marca fullyrðir að hann hafi þegar verið rekinn og vísar í sádi-arabíska miðla. Ástæðan mun meðal annars vera megn óánægja aðalstjörnu liðsins, Cristiano Ronaldo, og fleiri leikmanna í garð Frakkans. Fótbolti 12. apríl 2023 08:31
Liverpool dregur sig úr kapphlaupinu um Bellingham Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool mun ekki reyna að kaupa ungstirnið Jude Bellingham frá Borussia Dortmund í sumar þar sem hár verðmiði myndi gera félaginu erfitt fyrir að endurbyggja liðið sem Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, er með í höndunum. Fótbolti 12. apríl 2023 07:01
Hóf þjálfaraferilinn í efstu deild á lygilegum sigri: „Er í þessu fyrir þessar tilfinningar“ Hann byrjaði þjálfaraferil sinn í efstu deild með lygilegum sigri gegn Íslandsmeisturunum og erkifjendunum. Ómar Ingi Guðmundsson fer af stað með látum í Bestu-deildinni. Fótbolti 11. apríl 2023 23:01
Inter komið hálfa leið í undanúrslit Inter Milan vann mikilvægan 2-0 útisigur er liðið heimsótti Benfica í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 11. apríl 2023 20:56
Englandsmeistararnir fara með örugga forystu til München Englandsmeistarar Manchester City unnu öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti Þýskalandsmeisturum Bayern München í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 11. apríl 2023 20:50
Sveindís tryggði stelpunum okkar sigur í Sviss Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann góðan 1-2 útisigur er liðið mætti Sviss í æfingaleik ytra í dag. Þetta var seinni leikur liðsins í yfirstandandi landsliðsglugga en liðið gerði jafntefli við Nýja-Sjáland fyrir helgi. Fótbolti 11. apríl 2023 18:53
EM-fararnir enduðu á jafntefli við Úkraínu Íslensku stelpurnar í U19-landsliðinu í fótbolta höfðu þegar tryggt sér sæti í lokakeppni EM þegar þær mættu Úkraínu í lokaleik sínum í milliriðlakeppninni í Danmörku í dag. Liðin gerðu 2-2 jafntefli. Fótbolti 11. apríl 2023 14:33
Sjáðu tvennu Jóhanns Berg í toppslagnum Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson var hetja Burnley sem vann 2-0 sigur á Sheffield United í toppslag ensku B-deildarinnar í fótbolta í gær. Liðið færist nær titlinum. Enski boltinn 11. apríl 2023 12:01
Senda keppinautunum ný klósett Stuðningsmenn FC Kaupmannahafnar létu illa eftir svekkjandi 1-0 tap á útivelli gegn Randers í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær og það hefur haft óvenjulegar afleiðingar. Fótbolti 11. apríl 2023 11:01
Reiði á Spáni: „Burt með Ronaldo!“ Stuðningsmenn Real Valladolid á Spáni hafa fengið nóg af eiganda liðsins, brasilísku goðsögninni Ronaldo. Liðið berst fyrir tilverurétti sínum í spænsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 11. apríl 2023 10:30
Rekinn í burtu vegna stuðnings við Andrew Tate Norska knattspyrnufélagið HamKam var fljótt að losa sig við Svíann Abbas Mohamad en ástæðan er stuðningur hans við málflutning Andrews Tate. Fótbolti 11. apríl 2023 10:01
Fertugur Foster hetja Hollywood-liðsins Wrexham, sem er í eigu leikaranna Rob McElhenney og Ryan Reynolds, tók afar stórt skref í átt að sæti í ensku deildarkeppninni með dramatískum 3-2 sigri á Notts County í efstu deild ensku utandeildanna í gær. Ben Foster, fyrrum markvörður Manchester United, var hetjan. Enski boltinn 11. apríl 2023 09:00
Fjölskyldunni hótað lífláti eftir að hann sakaði Valverde um árás Knattspyrnumaðurinn Alex Baena, hinn 21 árs gamli leikmaður Villarreal, hefur kært Federico Valverde hjá Real Madrid til lögreglu og sakað hann um árás eftir 3-2 sigur Villarreal gegn Real í spænsku 1. deildinni í fótbolta á laugardag. Fótbolti 11. apríl 2023 08:30
Segir Bayern álitið minni máttar í kvöld Þrátt fyrir alla velgengni Þýskalandsmeistara Bayern München í gegnum árin telur nýi knattspyrnustjórinn hjá félaginu, Thomas Tuchel, að Manchester City sé álitið sigurstranglegra fyrir stórleik liðanna í kvöld. Fótbolti 11. apríl 2023 08:01
Höskuldur: Kemur annar dagur eftir svona dag Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Blika var vitaskuld svekktur eftir ótrúlegan leik Breiðabliks og HK í Bestu deildinni í kvöld. HK vann 4-3 sigur í dramatískum leik. Fótbolti 10. apríl 2023 22:53
Hemmi Hreiðars: „Við erum hundfúlir“ Hermann Hreiðarsson var svekktur eftir að lærisveinar hans í ÍBV töpuðu gegn Val í fyrstu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á Hlíðarenda í kvöld. ÍBV var betra liðið í fyrri hálfleik en náði ekki að halda út gegn sterku liði Vals sem tók stigin þrjú í endurkomusigri, 2-1 lokatölur. Fótbolti 10. apríl 2023 22:18
„Ég var eins og lítill krakki inni í klefa í dag" „Þetta var vinnusigur en um leið og við misstum smá einbeitingu sáum við að Stjarnan er gott lið og gátu refsað okkur. Fyrst og fremst ógeðslega sáttur með liðs frammistöðuna og að halda hreinu,“ sagði Matthías Vilhjálmsson, miðjumaður Víkinga, eftir sigur á móti Stjörnunni á Samsungvellinum í kvöld. Leikið var í fyrstu umferð Bestu deildar karla. Fótbolti 10. apríl 2023 22:02
Umfjöllun og myndir: Breiðablik - HK 3-4 | Ótrúlegur sigur HK í mögnuðum Kópavogsslag Nýliðar HK gerðu sér lítið fyrir og unnu 4-3 sigur á nágrönnum sínum í Breiðablik í stórkostlegum Kópavogsslag í Bestu deildinni í kvöld. Sigurmark HK kom í uppbótartíma eftir að liðið hafði misst niður tveggja marka forskot í síðari hálfleiknum. Fótbolti 10. apríl 2023 21:56
Umfjöllun: Valur - ÍBV 2-1 | Góð endurkoma Valsmanna Valsmenn unnu sterkan sigur á ÍBV í fyrstu umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu á Hlíðarenda á öðrum degi páska. Eftir sterka byrjun gestanna í fyrri hálfleik náðu heimamenn yfirhöndinni í þeim seinni sem skilaði þeim endurkomu sigri í fyrsta leik tímabilsins, lokatölur 2-1 fyrir Val. Fótbolti 10. apríl 2023 21:15
Umfjöllun: Fram - FH 2-2 | Jafntefli í Úlfarsárdalnum Fram og FH skildu jöfn í 1. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn var hin mesta skemmtun þar sem bæði lið fengu nóg af færum. Leikurinn endaði með sanngjörnu 2-2 jafntefli. Fótbolti 10. apríl 2023 21:10
Umfjöllun: Stjarnan - Víkingur 0-2 | Góður útisigur Víkinga í Garðabæ Víkingur vann 2-0 útisigur á Stjörnunni þegar liðin mættust í fyrstu umferð Bestu deildar karla á Samsung-vellinum í kvöld. Fótbolti 10. apríl 2023 21:10
Markalaust hjá Börsungum Barcelona og Girona gerðu markalaust jafntefli í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en liðin mættust á Nývangi í kvöld. Fótbolti 10. apríl 2023 20:57
Hallgrímur: Við lifum og lærum „Það eru blendnar tilfinningar eftir þennan leik,“ sagði Hallgrímur Jónasson eftir 1-1 jafntefli á móti KR á Greifavellinum í dag. Fótbolti 10. apríl 2023 17:05
„Það kallast að verjast þegar þú ert að sækja“ „Maður fann það síðustu vikuna að páskarnir voru eiginlega bara fullir tillhlökkunar að æfa og bíða eftir þessum degi í rauninni,“ sagði Sindri Snær Magnússon, miðjumaður Keflavíkur eftir 1-2 sigur þeirra á Fylki í fyrstu umferð Bestu deildar karla. Fótbolti 10. apríl 2023 16:48
Umfjöllun: Fylkir - Keflavík 1-2 | Gríðarleg dramatík í Lautinni Nýliðar Fylkis töpuðu 1-2 gegn Keflavík í 1. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu eftir að hafa komist yfir með fyrsta marki Bestu deildarinnar árið 2023. Markið skoraði Benedikt Daríus Garðarsson. Sami Kamel Jafnaði metinn á 74. mínútu og sigurmarkið skoraði svo Dagur Ingi Valsson í uppbótartíma leiksins. Fótbolti 10. apríl 2023 16:05
Umfjöllun og viðtal: KA - KR 1-1 | Þorri Mar hetja heimamanna KA og KR gerðu 1-1 jafntefli í 1. umferð Bestu deildar karla á Greifavellinum á Akureyri í dag. Eins og oft vill verða í rimmum þessara liða að þá var lítið af mörkum en leikurinn hraður og skemmtilegur í dag sem er breyting frá því í fyrra. Fótbolti 10. apríl 2023 15:55
Arnór og Arnór á skotskónum Arnór Ingvi Traustason og Arnór Sigurðsson skoruðu báðir í 3-0 útisigri Norrköping á AIK í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hákon Rafn Valdimarsson varði mark Elfsborg sem gerði markalaust jafntefli við Varberg. Fótbolti 10. apríl 2023 15:31
„Geri mér býsna góðar vonir um þetta sumar“ Spennan magnast sífellt fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu sem hefur göngu sína síðar í dag. Vísir og Stöð 2 heyrðu í mönnum og spurðu einfaldlega hvaða körfur þeir gera til síns lið. Hér að neðan má heyra kröfur liðanna sem talið er að verði í miðjumoði. Þau eru Víkingur, Stjarnan, FH og ÍBV. Íslenski boltinn 10. apríl 2023 14:46
Íslendingalið Rosenborg byrjar tímabilið á sigri Rosenborg og Viking mættust í opnunarleik norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Alls tóku fjórir Íslendingar þátt í leiknum sem Rosenborg vann 1-0. Fótbolti 10. apríl 2023 14:31
Leik Vals og ÍBV frestað um 45 mínútur Leikur Vals og ÍBV í 1. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu hefur verið frestað um 45 mínútur. Leikurinn átti að hefjast klukkan 18.30 en hefst nú klukkan 19.15. Íslenski boltinn 10. apríl 2023 14:01