Puttarnir í klessu og ráðlagt að hvíla Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður FH, mun mögulega ekki spila næsta leik liðsins eftir að lenda í árekstri og meiðast á fingrum í leiknum gegn HK í Bestu deild karla í knattspyrnu á sunnudag. Íslenski boltinn 21. ágúst 2023 22:47
Daníel Laxdal: Það tók bara smá tíma að koma á „Jöllaball“ „Mjög sáttur með sigurinn í kvöld“, sagði 500 leikja maðurinn Daníel Laxdal við Stöð 2 Sport eftir sigur Stjörnumanna gegn KR. Leikurinn var í 20. umferð Bestu deildar karla og skipti gríðarlega miklu máli í baráttunni um fjórða sætið. Daníel steig ekki feilspor í varnarlínunni hjá heimamönnum og stýrði liðinu til sigurs. Fótbolti 21. ágúst 2023 21:30
Skytturnar þurftu vítaspyrnu til að sækja stigin þrjú gegn Palace Arsenal, silfurlið ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, vann nauman 1-0 útisigur á Crystal Palace í kvöld. Markið kom úr vítaspyrnu í síðari hálfleik. Enski boltinn 21. ágúst 2023 21:05
Gamall Giroud í lykilhlutverki hjá AC Milan Lengi lifir í gömlum glæðum og það sannaði hinn 36 ára gamli Oliver Giroud þegar AC Milan hóf tímabilið í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, með 2-0 útisigri á Bologna. Fótbolti 21. ágúst 2023 20:56
Fjölnir pakkaði Grindavík saman Fjölnir vann 5-1 sigur á Grindavík í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Þá gerðu Ægir og Grótta 2-2 jafntefli en heimamenn í Ægi voru manni færri allan síðari hálfleikinn. Íslenski boltinn 21. ágúst 2023 20:35
Arnór Ingvi og Kristian Nökkvi á skotskónum Arnór Ingvi Traustason skoraði eitt af þremur mörkum Norrköping í 3-1 sigri liðsins á AIK í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Sjá má markið í fréttinni. Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði eina mark Jong Ajax í 1-2 tapi gegn Dr Graafschap í hollensku B-deildinni í knattspyrnu. Fótbolti 21. ágúst 2023 20:00
Kinnbeinsbrotinn eftir átök helgarinnar Enski framherjinn Dominic Calvert-Lewin kinnbeinsbrotnaði í 4-0 tapi Everton gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. Reikna má með að hann missi af næstu leikjum liðsins en Everton er sem stendur með 0 stig að loknum tveimur umferðum. Enski boltinn 21. ágúst 2023 19:31
Belgíska undrabarnið Doku á að fylla skarð Mahrez Belgíski landsliðsmaðurinn Jérémy Doku er á leið til Englands- og Evrópumeistara Manchester City frá franska liðinu Rennes. Frá þessu greinir ítalski „skúbbarinn“ Fabrizio Romano. Enski boltinn 21. ágúst 2023 18:45
Segir enga formlega beiðni hafa komið frá Breiðabliki Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings, segir enga formlega beiðni hafa komið frá Íslandsmeisturum Breiðabliks um að færa leik liðanna og spila hann í komandi landsleikjahléi. Íslenski boltinn 21. ágúst 2023 17:46
Forsetinn tjáir sig um kossinn: „Hálfvitar alls staðar“ Luis Rubiales, forseti spænska knattspyrnusambandsins, hefur tjáð sig um rembingskossinn sem hann rak Jennifer Hermoso eftir að Spánn varð heimsmeistari í fótbolta kvenna. Fótbolti 21. ágúst 2023 16:00
Hunsaði forseta FIFA á verðlaunaafhendingunni Ein skærasta stjarna enska kvennalandsliðsins í fótbolta hafði engan áhuga á að taka í spaðann á forseta FIFA þegar hún tók við silfurverðlaunum eftir úrslitaleik HM í gær. Fótbolti 21. ágúst 2023 15:31
Gagnrýnir konungsfjölskylduna fyrir skrópið á úrslitaleik stelpnanna Sir Geoff Hurst var hetja ensku þjóðarinnar þegar enskt landslið varð heimsmeistari í fyrsta og eina skiptið fyrir 57 árum síðan. Fótbolti 21. ágúst 2023 14:30
Þýðingarmikið einvígi Breiðabliks í Evrópu í beinni á Stöð 2 Sport Stöð 2 Sport hefur tryggt sér sýningarréttinn á báðum leikjum í mikilvægu einvígi Breiðabliks við FC Sluga frá Norður-Makedóníu í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Fótbolti 21. ágúst 2023 12:28
Hjólaði heim eftir að hafa skorað þrennu í þýsku deildinni Kevin Behrens, leikmaður Union Berlin, var ein af stjörnum Evrópuboltans um helgina. Það sem hann gerði eftir leik helgarinnar hefur ekki síður vakið mikla athygli. Fótbolti 21. ágúst 2023 12:00
Foster leggur hanskana á hilluna eftir erfiða byrjun á tímabilinu Ben Foster, markvörður enska D-deildar liðsins Wrexham, hefur lagt markmannshanskana á hilluna. Frá þessu greinir hann í yfirlýsingu en aðeins nokkrar umferð eru liðnar af ensku D-deildinni þetta tímabilið. Fótbolti 21. ágúst 2023 10:28
Tjáir sig á ný um rembingskossinn heimsfræga Jennifer Hermoso, leikmaður spænska landsliðsins í fótbolta, segir að rembingskoss sem hún fékk á munninn frá forseta spænska knattspyrnusambandsins hafi aðeins verið hans leið til að sýna ástúð sína í kjölfar þess að Spánverjar tryggðu sér heimsmeistaratitil kvenna í fótbolta. Hún gerir lítið úr atvikinu í yfirlýsingu sem barst AFP fréttaveitunni. Fótbolti 21. ágúst 2023 10:01
Íslenski CrossFit kóngurinn skoraði tvö mörk á Íslandsmótinu í fótbolta Íslenski CrossFit kappinn Björgvin Karl Guðmundsson er nú í hvíld eftir átökin á heimsleikunum og eitt af því sem hann hefur stundum gert er að hjálpa sínu félagi í fótboltanum. Íslenski boltinn 21. ágúst 2023 09:00
Hetja heimsmeistaranna fékk hræðilegar fréttir á sínum besta degi á ferlinum Olga Carmona, fyrirliði spænska kvennalandsliðsins í fótbolta, upplifði örugglega sinn besta dag á fótboltaferlinum í gær. Dagurinn endaði aftur á móti ekki vel. Fótbolti 21. ágúst 2023 08:32
Neymar mætti til Sádi-Arabíu á einkaþotu sem tekur fleiri hundruð farþega Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar er mættur til Sádi-Arabíu þar sem hann hefur skrifað undir samning við Al Hilal þar í landi. Kom hann til landsins með Boeing 737 einkaþotu en slík flugvél tekur fleiri hundruð farþega í hefðbundnu flugi. Fótbolti 21. ágúst 2023 07:31
Helmingslíkur á því að Gylfi Þór gangi í raðir Lyngby Freyr Alexandersson, þjálfari danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby, segir helmingslíkur á því að Gylfi Þór Sigurðsson semji við félagið. Frá þessu greinir Freyr í viðtali við fjölmiðla ytra. Fótbolti 21. ágúst 2023 07:01
Heimsmeistarinn Hermoso ekki sátt með rembingskoss forseta spænska sambandsins Jennifer Hermoso spilaði stóran þátt í því að Spánn varð í fyrsta skipti heimsmeistari kvenna í knattspyrnu á sunnudag þegar liðið lagði England 1-0 í úrslitum. Ásamt því að fá gullverðlaun sín frá forseta spænska knattspyrnusambandsins fékk hún einnig óumbeðinn rembingskoss. Fótbolti 20. ágúst 2023 23:31
Nítján ára gömul en orðið heimsmeistari í þremur aldursflokkum Hin 19 ára gamla Salma Paralluelo skráði sig á spjöld sögunnar þegar Spánn varð heimsmeistari kvenna í knattspyrnu þökk sé 1-0 sigri á Englandi fyrr í dag, sunnudag. Fótbolti 20. ágúst 2023 23:00
Umfjöllun og viðtöl: HK - FH 2-2 | Anton Søjberg skoraði tvö í jafntefli HK og FH gerðu jafntefli í fjögurra marka leik. FH komst yfir í fyrri hálfleik og var með forystuna í 50 mínútur en þá jafnaði Anton Søjberg og fylgdi því eftir með öðru marki þegar þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson tryggði síðan FH stig að lokum. Íslenski boltinn 20. ágúst 2023 21:52
„Ég skora alltaf á Hlíðarenda“ Logi Tómasson skoraði eitt marka Víkings þegar liðið bar sigurorð af Val í toppslag Bestu deildar karla í fótbolta á Origo-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Logi er mögulega að spila sinn síðasta leik fyrir Víking í bili en hann er á leið til Strömsgodset í Noregi. Fótbolti 20. ágúst 2023 21:48
Barcelona og Juventus með sigra Juventus hefur tímabilið í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni á öruggum 3-0 útisigri. Spánarmeistarar Barcelona eru þá komnir á sigurbraut í La Liga eftir 2-0 sigur í kvöld. Fótbolti 20. ágúst 2023 21:31
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Víkingur 0-4 | Víkingar geta farið að setja kampavínið í kælinn eftir stórsigur gegn Val Víkingur er kominn með 11 stiga forskot á toppi Bestu deildar karla í fótbolta en Fossvogsliðið lagði Val, sem situr í öðru sæti deildarinnar, að velli með fjórum mörkum gegn engu í toppslag liðanna í 20. umferð deildarinnar á Origo-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Eftir þennan sigur hefur Víkingur 53 stig á toppnum en Valur kemur svo næst með 42 stig. Íslenski boltinn 20. ágúst 2023 21:09
Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA 2-1 | Heimamenn nýttu Evrópuþreytu gestanna Fram og KA mættust í Úlfarsárdalnum í 20. umferð Bestu deildar karla nú í dag. Eftir afar spennandi og skemmtilegan leik fór svo að lokum að Fram vann afar mikilvægan 2-1 sigur þar sem sigurmarkið kom á 90. mínútu. Íslenski boltinn 20. ágúst 2023 21:00
Óskar Hrafn: Átti alls ekki von á því Breiðablik vann Keflavík 2-1 í Bestu deild karla í knattspyrnu þar sem Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði bæði mörk heimamanna. Óskar Hrafn, þjálfari Breiðabliks, var sáttur með flest allt í leik sinna manna í kvöld. Íslenski boltinn 20. ágúst 2023 20:51
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Keflavík 2-1 | Ágúst Eðvald sá um gestina Breiðablik mætti Keflavík í kvöld í 20. umferð Bestu deildarinnar. Lauk leiknum með 2-1 sigri heimamanna þar sem Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði bæði mörk Blika. Íslenski boltinn 20. ágúst 2023 20:30
Ekki til betri tilfinning Aron Jóhannsson var hetja Fram í dag þegar liðið lagði KA 2-1 í Bestu deild karla í knattspyrnu. Aron skoraði sigurmarkið á 90. mínútu eftir góða skyndisókn. Hann var að vonum gríðarlega sáttur þegar hann mætti í viðtal eftir leik. Íslenski boltinn 20. ágúst 2023 20:25