Gluggadagurinn: Gravenberch til Liverpool og nafnarnir Joao Felix og Cancelo til Barcelona Félagsskiptaglugginn í öllum helstu deildum Evrópuboltans lokaði í kvöld og bárust tíðindi um félagsskipti í allan dag og lang fram eftir kvöldi. Íþróttadeild Vísis var með puttann á púlsinum og fylgdist með öllu því helsta. Fótbolti 1. september 2023 23:30
Greenwood farinn á láni til Spánar Enski knattspyrnumaðurinn Mason Greenwood er genginn í raðir Getafe á láni frá Manchester United. Fótbolti 1. september 2023 22:46
Mark með síðustu spyrnu leiksins galopnaði fallbaráttuna Selfoss vann gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur er liðið tók á móti Gróttu í fallbaráttuslag Lengjudeildarinnar fyrr í kvöld. Fótbolti 1. september 2023 22:15
Gravenberch orðinn leikmaður Liverpool Hollenski landsliðsmaðurinn Ryan Gravenberch er genginn í raðir Liverpool frá Þýskalandsmeisturum Bayern München. Fótbolti 1. september 2023 21:31
Bowen og Zouma skutu West Ham á toppinn West Ham lyfti sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu er liðið vann góðan 1-2 útisigur gegn Luton Town í kvöld. Fótbolti 1. september 2023 20:56
Tíu leikmenn AC Milan héldu út gegn Roma og liðið enn með fullt hús stiga AC Milan er enn með fullt hús stiga í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir góðan 1-2 útisigur gegn Roma í kvöld. Gestirnir frá Mílanóborg þurftu að leika síðasta hálftíma leiksins manni færri. Fótbolti 1. september 2023 20:46
Dortmund kastaði frá sér tveggja marka forskoti gegn nýliðunum Borussia Dortmund þurfti að sætta sig við 2-2 jafntefli er liðið tók á móti nýliðum Heideinheim í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Heimamenn í Dortmund voru komnir með tveggja marka forystu snemma leiks. Fótbolti 1. september 2023 20:31
„Erum ekkert í þessu bara til að taka þátt“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, segir að liðið sé ekki mætt í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu til þess eins að taka þátt. Liðið ætli sér að sýna góða frammistöðu og með því komi oft góð niðurstaða. Fótbolti 1. september 2023 19:45
Ísak og félagar lyftu sér á toppinn Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar hans í Fortuna Düsseldorf lyftu sér á topp þýsku B-deildarinnar er liðið vann öruggan 3-1 sigur gegn Karlsruher SC í dag. Fótbolti 1. september 2023 18:25
Þjálfari karlaliðsins biðst afsökunar á að hafa klappað fyrir Rubiales Luis de la Fuente, þjálfari spænska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur beðist afsökunar á því að hafa klappað fyrir ræðu Luis Rubiales, forseta spænska knattspyrnusambandsins, þar sem hann sagðist ekki ætla að segja af sér í kjölfar þess að hafa kysst Jenni Hermoso gegn hennar vilja. Fótbolti 1. september 2023 18:01
„Upp úr riðlinum, takk!“ Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, segir leikmenn liðsins ekki komna í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar til þess eins að taka þátt. Spennan sé mikil fyrir verkefninu. Fótbolti 1. september 2023 17:15
„Búnir að blása af Tenerife-ferðir“ Oliver Sigurjónsson, leikmaður karlaliðs Breiðabliks í fótbolta er virkilega spenntur fyrir komandi verkefni liðsins í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu en í dag fengu Blikar að vita hvaða liðum þeir myndu mæta í riðlakeppninni. Oliver segir Blika ekki mæta í þessa keppni bara til að taka þátt, þeir ætla sér stig. Fótbolti 1. september 2023 15:00
Sverrir Ingi dregur sig úr landsliðshópi Íslands Íslenski landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason hefur þurft að draga sig úr landsliðshópi íslenska karlalandsliðsins í fótbolta fyrir komandi verkefni liðsins í undankeppni EM 2024 vegna meiðsla. Fótbolti 1. september 2023 14:49
Skælbrosandi Gylfi Þór mættur til æfinga: „Gríðarlega erfiður tími“ Danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby deilir í dag myndum af æfingu liðsins þar sem sjá má nýjustu viðbæturnar í leikmannahópnum, þá Gylfa Þór Sigurðsson og Marc Muniesa. Fótbolti 1. september 2023 14:35
Þórður mun þjálfa þrjú landslið Íslands Þórður Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari U16 og U17 landsliða kvenna. Samhliða því mun hann þjálfa U23 lið kvenna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ. Fótbolti 1. september 2023 14:00
Veltir fyrir sér hvort Southgate sé of trúr sínum uppáhalds mönnum Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, tilkynnti á fimmtudag hópinn sem mætir Úkraínu og Skotlandi síðar í þessum mánuði. Southgate er trúr sínum mönnum og velur leikmenn sem hafa lítið sem ekkert spilað sem og einn sem spilar nú í Sádi-Arabíu. Fótbolti 1. september 2023 13:31
Altay fyllir skarð Henderson á Old Trafford Markvörðurinn Altay Bayındır er genginn í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United. Hann skrifar undir samning til ársins 2027 með möguleika á árs framlengingu. Enski boltinn 1. september 2023 12:31
Breiðablik í sögulegum B-riðli í Evrópu Breiðablik dróst í riðil með Gent, Maccabi Tel Aviv og Zorya Luhansk í B-riðil riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu en dregið var nú rétt í þessu í Mónakó. Fótbolti 1. september 2023 12:00
Riðlar Evrópudeildarinnar: Liverpool til Frakklands | Brighton fær verðugt verkefni Dregið var í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta núna í morgun en lið úr ensku úrvalsdeildinni á borð við Liverpool, West Ham United og Brighton voru í pottinum ásamt öðrum vel þekktum liðum úr Evrópuboltanum. Sevilla er ríkjandi Evrópudeildarmeistari eftir sigur gegn Roma í úrslitaleik síðasta tímabils. Fótbolti 1. september 2023 11:36
Englandsmeistararnir staðfesta Nunes og selja Palmer til Chelsea Englandsmeistarar Manchester City hafa staðfest kaupin á miðjumanninum Matheus Nunes. Hann skrifar undir fimm ára samning við félagið. Þá er hinn ungi Cole Palmer genginn í raðir Chelsea. Enski boltinn 1. september 2023 11:30
Tileinkaði andstæðingunum í úrslitaleik HM verðlaunin Sarina Wiegman, þjálfari Englands, var í gærkvöld valin þjálfari ársins í kvennaflokki af UEFA, Knattspyrnusambandi Evrópu. Hún tileinkaði spænska kvennalandsliðinu, liðið sem hafði betur gegn Englandi í úrslitum HM, verðlaunin sín. Fótbolti 1. september 2023 11:01
Erlendir fjölmiðlar fjalla um vistaskipti Gylfa Þórs Fjöldi erlendra fjölmiðla hefur fjallað um vistaskipti knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar. Hann er nýjasti leikmaður Íslendinganýlendunnar Lyngby sem spilar í dönsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 1. september 2023 10:01
Fyrsta sinn sem allar Norðurlandaþjóðir eiga lið í riðlakeppni Í fyrsta skipti í sögunni eiga allar Norðurlandaþjóðirnar Ísland, Danmörk, Svíþjóð, Noregur og Færeyjar öll knattspyrnulið sem munu keppa í riðlakeppni Evrópukeppna. Þetta varð ljóst í gær þegar Breiðablik tryggði sér sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu. Fótbolti 1. september 2023 09:30
„Þá kemur auðvitað leiðinlega svarið: Það er FH á sunnudaginn“ „Það sem við ætluðum að passa upp á að láta ekki spennustigið, láta ekki viðburðinn ná stjórn á okkur. Ætluðum að reyna halda í helstu gildin okkar, þora að halda boltanum, þora að koma framarlega, þora að spila sóknarleik. Ekki að lenda í því að fara verja forystuna,“ sagði Óskar Hrafn um leikskipuleg gærkvöldsins. Fótbolti 1. september 2023 09:01
Heimsmeistarinn Bonmatí og markaprinsinn Håland best að mati UEFA Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, tilkynnti í gærkvöld hverjir væru leikmenn og þjálfarar ársins að mati sambandsins. Fótbolti 1. september 2023 08:30
Allir leikir Íslands í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport Allir leikir íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu á árinu verða í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Fyrstu leikirnir verða 8. september gegn Lúxemborg ytra og svo 11. september gegn Bosníu og Hersegóvínu á Laugardalsvelli. Fótbolti 1. september 2023 08:01
Laugardalsvöllur eini möguleiki Blika hér á landi Breiðablik komst í gær í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu. Er þetta í fyrsta skipti sem karlalið frá Íslandi kemst svo langt í Evrópukeppni. Þó mikil gleði fylgi slíkum árangri þá fylgja því líka ýmis vandamál, til að mynda hvar skal spila leikina? Fótbolti 1. september 2023 07:31
Man United selur Henderson og fær vinstri bakvörð frá Tottenham Það hefur verið nóg um að vera á skrifstofu enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United í kvöld en félagið seldi leikmann sem og það virðist hafa fundið vinstri bakvörð. Enski boltinn 31. ágúst 2023 23:31
Orri Steinn pollrólegur þegar í ljós kom að FCK myndi mæta Man Utd: „Ég sver það“ Orri Steinn Óskarsson, framherji Danmerkurmeistara FC Kaupmannahafnar og nýliða í íslenska landsliðinu, mætti í útvarpsþáttinn „Veislan með Gústa B“ fyrr í dag. Á sama tíma var dregið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu og þar kom í ljós að FCK mætir liðinu sem Orri Steinn heldur með í enska boltanum, Manchester United. Fótbolti 31. ágúst 2023 23:00
Þórir Jóhann lánaður til Þýskalands Knattspyrnumaðurinn Þórir Jóhann Helgason hefur verið lánaður frá ítalska úrvalsdeildarliðinu Lecce til Eintracht Braunschweig í þýsku B-deildinni. Fótbolti 31. ágúst 2023 22:00