Vettel: Keppnin verður löng og ströng Sebastian Vettel er fremstur á ráslínu í Formúlu 1 í sautjánda skipti á ferlinum eftir að hafa náð besta tíma í tímatökum fyrir kappaksturinn í Malasíu, sem verður í fyrramálið. Hann er efstur að stigum í stigamóti ökumanna eftir sigur í fyrsta móti ársins í Ástralíu. Formúla 1 9. apríl 2011 13:50
Meistarinn Vettel fremstur á ráslínu Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull verður fremstur á ráslínu í Malasíu kappakstrinum sem verður í fyrramálið, en hann náði besta tíma í tímatökum á Sepang brautinni í dag. Lewis Hamilton á McLaren náði næst besta tíma og Mark Webber á Red Bull var honum næstur. Formúla 1 9. apríl 2011 09:56
Hamilton fljótastur á lokaæfingunni Lewis Hamilton á McLaren var fljótastur allra ökumanna á lokaæfingu Formúlu 1 liða á Sepang brautinni í Malasíu í nótt. Mark Webber varð 0.290 úr sekúndu á eftir á Red Bull,en Jenson Button á McLaren þriðji, 0.422 á eftir samkvæmt frétt á autosport.com. Formúla 1 9. apríl 2011 06:28
Webber fljótastur á æfingum í Malasíu Ástralinn Mark Webber á Red Bull var fljótastur á báðum æfingum keppnisliða í Formúlu 1 á æfingum á Sepang brautinni í Malasíu sem fram fóru í nótt samkvæmt fréttum á autosport.com. Formúla 1 8. apríl 2011 09:39
Schumacher telur að mótið í Malasíu verði eins og happdrætti ef rignir Spáð er verulegri rigningu í Formúlu 1 mótinu á Sepang brautinni í Malasíu þegar ræsing mótsins fer frá á sunnudag. Ræsingin á að vera klukkan átta að morgni að íslenskum tíma, en klukkan fjögur síðdegis í Malasíu. Formúla 1 7. apríl 2011 20:54
Trulli býst við miklum stuðningi við Lotus í Malasíu Lotus lið Heikki Kovalainen og Jarno Trulli verður á einskonar heimavelli í Malasíu um helgina, en yfirmaður liðsins, Tony Fernandez er heimamaður og hann segir liðið hafa djúp tengsl við Malasíu. Malasíska ríkisstjórnin á t.d. hlut í liðinu ásamt fleiri aðilum. Malasískir starfsmenn eru einnig hjá liðinu, sem hefur verið byggt upp á 18 mánuðum, en bílarnir eru settir saman í bækistöð Lotus liðsins í Norfolk í Englandi. Formúla 1 6. apríl 2011 21:06
Fá Karthikeyan og Liuzzi að keppa í Malasíu? Hispania liðið spænska reið ekki feitum hesti frá fyrsta Formúlu 1 móti ársins, en hvorki Narain Karthikeyan frá Indlandi né Ítalinn Viantonio Liuzzi fengu að keppa á spánýjum Hispania F111 bílum liðsins. Formúla 1 5. apríl 2011 17:07
Fyrsta Formúlu 1 mótið stórkostleg upplifun hjá Paul di Resta Skotinn Paul di Resta keppir í Malasíu um næstu helgi með Force India liðinu. Hann keppti í fyrsta Formúlu 1 mótinu í Ástralíu á dögunum, en di Resta varð meistari í DTM mótaröðinni í fyrra með Mercedes. Hann og liðsfélagi hans Adrian Sutil frá Þýskalandi skiluðu sér báðir í stigasæti í Ástralíu. Formúla 1 5. apríl 2011 15:51
Petrov: Frábært að standa á verðlaunapallinum Vitaly Petrov frá Rússlandi komst fyrstur Rússa á verðlaunapall í Formúlu 1 móti, þegar hann varð í þriðja sæti á eftir Sebastian Vettel og Lewis Hamilton í Melbourne í Ástralíu fyrir átta dögum síðan. Vettel vann fyrstu keppni ársins á Red Bull, Hamilton varð annar á McLaren og Petrov þriðji á Renault. Formúla 1 4. apríl 2011 16:24
Barrichello: Hlakka til að keyra ótrúlega braut Brasilíumaðurinn Rubens Barrichello hjá Williams er reynslumesti Formúlu 1 ökumaðurinn og hann telur að mikið muni reyna á dekkin á Sepang brautinni um næstu helgi. Liðsfélagi Barrichello er Pastor Maldonado frá Venúsúela, sem ók í sína fyrsta Formúlu 1 móti í Ástralíu á dögunum. Formúla 1 4. apríl 2011 15:14
Meistarinn Vettel nýtur þess að keppa í fjarlægum löndum Sebastian Vettel vann fyrsta Formúlu 1 mót ársins Red Bull og liðsfélagi hans Mark Webber vill komast á verðlaunapall í næsta móti, sem verður í Malasíu um aðra helgi. Viku seinna keppa kapparnir í Sjanghæ í Kína, en Red Bull liðið flytur samtals 40 tonn af búnaði á hvorn mótsstað fyrir sig. Formúla 1 1. apríl 2011 15:32
Hamilton gerir ráð fyrir góðum árangri í Malasíu Lewis Hamilton hjá McLaren Formúlu 1 liðinu varð í öðru sæti í fyrsta móti ársins í Ástralíu um síðustu helgi og gerir ráð fyrir góðum árangri á Sepang brautinn í Malasíu um aðra helgi. Formúla 1 1. apríl 2011 14:36
Mercedes Formúlu 1 liðið jákvætt og í baráttuhug þrátt fyrir erfiða byrjun Nico Rosberg hjá Mercedes liðinu náði þriðja sæti í Formúlu 1 mótinu í Malasíu í fyrra og mætir þangað á nýjan leik, ásamt liðsfélaganum Michael Schumacher um aðra helgi. Mercedes liðinu gekk ekki vel í fyrsta móti ársins. Báðir ökumenn féllu úr leik eftir árekstur. Formúla 1 1. apríl 2011 13:58
Viðsjárvert veður tækifæri til að skáka þeim fremstu John Booth, yfirmaður Marussia Virgin liðsins sem byrjaði að keppa í Formúlu 1 í fyrra segir að lið sitt hafi byrjað þetta keppnistímabil betur, en liðið byrjaði í fyrra. Fyrsta mót ársins var í Ástralíu um síðustu helgi. Formúlu 1 lið ferðast mikið á næstunni, því keppt verður í Malasíu um aðra helgi og Kína helgina þar á eftir. Formúla 1 1. apríl 2011 12:39
Button: Erfiðasta mótið í Malasíu Jenson Button hjá McLaren telur að Formúlu 1 mótið á Sepang brautinni í Malasíu um aðra helgi sé það erfiðasta hvað líkamleg átök varðar. Hann var sáttur við bíl sinn í mótinu í Ástralíu um síðustu helgi, en Button vann mótið í Malasíu árið 2009. Formúla 1 1. apríl 2011 11:50
Yfirmaður Formúlu 1 liðs Lotus heiðraður af Bretadrottningu Tony Fernandez frá Malasíu var í dag veitt CBE orða breska samveldisins af Elísabetu II, Bretadrottingu fyrir framlag hans til eflingar á viðskiptusamböndum og menntamálum á milli Bretlands og Malasíu. Formúla 1 31. mars 2011 16:12
Eigandi Sauber ánægður með fyrsta mót Sergio Perez frá Mexíkó Sergio Perez frá Mexíkó keppti í sínu fyrsta Formúlu 1 móti í Ástralíu á sunnudaginn með Sauber liðinu og náði sjöunda sæti, hvað aksturstíma varðar. En hann og Kamui Kobayashi voru dæmdir úr leik, þar sem bílar Sauber liðsins voru taldir ólöglegir eftir keppni. Kobayahsi varð í áttunda sæti, en árangur beggja var þurrkaður út eftir keppnina. Formúla 1 31. mars 2011 10:22
Alonso: Engin afhroð í Ástralíu hjá Ferrari Fernando Alonso lauk keppni í fjórða sæti í Formúlu 1 mótinu í Ástralíu á sunnudaginn, eftir að hafa misst marga ökumenn framúr sér í fyrsta hring. Alonso segir þó Ferrari ekki hafa beðið nein afhroð í mótinu, en liðsfélagi hans, Felipe Massa varð sjöundi í mótinu. Eftir að tveir Sauber ökumenn voru dæmdir úr leik. Formúla 1 30. mars 2011 10:25
Sauber áfrýjar ekki úrskurði dómara í Ástralíu Sauber Formúlu 1 liðið var dæmt brotlegt gagnvart tæknireglum FIA í fyrsta móti ársins á sunnudaginn. Dómarar sögðu liðið með ólöglega afturvængi á bílum Kamui Kobayashi og Sergio Perez. Sauber liðið ætlar ekki að áfrýja málinu til FIA, samkvæmt tilkynningu þar um í dag Formúla 1 29. mars 2011 16:16
Lewis Hamilton í kvikmynd frá Disney Lewis Hamilton verður hluti af nýrri kvikmynd frá Walt Disney samsteypunni sem nefnist Cars 2 og er teiknimynd. Myndin er sjálfstætt framhald af myndinni Cars, sem varð mjög vinsæl þegar hún var sýnd árið 2006. Formúla 1 29. mars 2011 08:23
Rússinn Petrov þakklátur fyrir stuðning Renault Rússinn Vitaly Petrov varð í gær fyrsti Rússinn til að komast á verðlaunapall í Formúlu 1 móti, þegar hann keppti í fyrstu keppni ársins í Ástralíu. Petrov varð á eftir Sebastian Vettel og Lewis Hamilton. Formúla 1 28. mars 2011 09:44
Sauber liðið ætlar að áfrýja refsingu dómara til FIA James Key, tæknistjóri Sauber segir að lið sitt muni áfrýja niðurstöðu dómara í Formúlu 1 mótinu í Ástralíu í dag. Árangur Sergio Perez og Kamui Kobayashi var þurrkaður út vegna þess að dómarar töldu að afturvængir bílanna væru ólöglegir eftir keppni. Formúla 1 27. mars 2011 12:21
Formúlu 1 ökumenn dæmdir úr leik eftir framúrskarandi árangur Það var skammvinn gleði nýliðans Sergio Perez og Kamui Kobayahsi eftir ástralska kappaksturinn í dag. Þeir urðu í sjöunda og áttunda sætinu í mótinu, en dómarar mótsins dæmdu bíla þeirra ólöglega eftir keppni. Formúla 1 27. mars 2011 11:37
Vettel: Gott að leggja línurnar með sigri í fyrsta mótinu Heimsmeistarinn Sebastian Vettel var ánægður með sigurinn á götum Melbourne í Ástralíu í dag. Hann hóf titilvörnina með sigri. Formúla 1 27. mars 2011 11:15
Vettel hóf titilvörnina með sigri Sebastian Vettel hjá Red Bull vann fyrsta Formúlu 1 mót ársins á götum Melbourne í Ástralíu í dag. Hann hafði nokkra yfirburði í mótinu, eftir að hafa náð langbesta tíma í tímatökum. Formúla 1 27. mars 2011 09:35
Staðan vænleg hjá Vettel, en Webber vonsvikinn með eigin frammistöðu Ríkjandi meistari í Formúlu 1, Sebastin Vettel byrjaði titilvörina vel þegar hann náði besta tíma í tímatökum fyrir ástralska kappaksturinn í morgun á Red Bull. Fimm meistarar verða á ráslínunni nótt í fyrsta móti ársins. Formúla 1 26. mars 2011 12:22
Vettel fremstur á ráslínu eftir afburðarárangur í tímatökum Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull náði langbesta tíma í Formúlu 1 tímatökunni í Melbourne í Ástralíu í morgun. Hann varð 0.866 sekúndum á undan Lewis Hamilton á McLaren Mercedes. Formúla 1 26. mars 2011 08:08
Vettel stakk af á lokæfingunni Sebastian Vettel á Red Bull var langt á undan keppinautum sínum á síðustu æfingunni fyrir tímatökuna í Melbourne í Ástralíu í nótt. Hann varð 0.8 sekúndum á undan Mark Webber á Red Bull, sem er á heimavelli. Formúla 1 26. mars 2011 04:13
Formúla 1 send út í háskerpu í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport um helgina Fyrsta Formúlu 1 mót ársins verður sent út í háskerpu á Stöð 2 Sport um helgina og tímatakan, kappaksturinn og þátturinn Endamarkið verða í opinni dagskrá. Formúla 1 25. mars 2011 14:54
Button og Hamilton á toppnum á McLaren í Melbourne McLaren ökumennirnir Jenson Button og Lewis Hamilton voru fljótastir á seinni æfingu Formúlu 1 liða í nótt, á götubrautinni í Melbourne í Ástralíu. Á fyrri æfingurnni var Mark Webber á Red Bull fljótastur á undan félaga sínum Sebastian Vettel hjá Red Bull. Formúla 1 25. mars 2011 07:29