Bandaríkin: Styttist óðfluga í kosningar Það styttist óðum í forsetakosningar í Bandaríkjunum og loksins hefur okkur tekist að taka upp nýjan þátt Bandaríkjanna, hlaðvarps fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar, eftir langar tafir sem má að mestu rekja til heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. Erlent 18. september 2020 10:00
Mikill munur á borgarafundi Biden og Trump Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, gagnrýndi Donald Trump, forseta, harðlega á borgarafundi á vegum CNN í gær. Hann sagði meðal annars að viðbrögð Trump við faraldri nýju kórónuveirunnar væru óábyrg og það að Trump hafi vísvitandi gert lítið úr alvarleika faraldursins vera „glæpsamlegt“. Erlent 18. september 2020 07:57
Forstjóri FBI óttast afskipti Rússa í kosningunum Christopher Wray, forstjóri Alríkislögreglunnar í Bandaríkjunum, segir Rússa standa að baki villandi upplýsingum og falsfréttum varðandi Joe Biden, frambjóðanda Demókrataflokksins í aðdraganda forsetakosninganna. Erlent 17. september 2020 23:07
Fyrirsæta sakar Bandaríkjaforseta um kynferðisárás Fyrrverandi fyrirsæta sakar Donald Trump Bandaríkjaforseta um að hafa ráðist á hana kynferðislega á opna bandaríska tennismótinu fyrir tæpum aldarfjórðungi. Konan lýsir því að árásin hafi valdið henni ógleði og henni hafi fundist á sér brotið. Erlent 17. september 2020 11:22
Gagnrýndi yfirmann sóttvarnastofnunar fyrir ummæli um grímur og bóluefni Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gagnrýnt yfirmann Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC) eftir að sá sagði að bóluefni við Covid-19 yrði ekki komið í almenna notkun fyrr en um mitt næsta ár og að grímur gætu verið skilvirkari en bóluefni. Erlent 17. september 2020 06:52
Greiddu unglingum til að dreifa áróðri til stuðnings Trump Ungliðahreyfing íhaldsmanna í Bandaríkjunum sem er hliðholl Donald Trump forseta hefur undanfarið greitt unglingum og ungmennum til þess að dreifa áróðri sem styður mál forsetans á samfélagsmiðlum. Erlent 16. september 2020 16:48
Sagði að Covid myndi hverfa vegna „hjarðeðlis“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, svaraði spurningum á sjónvörpuðum borgarafundi í gærkvöldi þar sem hann sagðist meðal annars ekki hafa gert lítið úr heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar. Erlent 16. september 2020 07:14
Trump hampar „dögun nýrra Mið-Austurlanda“ Donald Trump Bandaríkjaforseti fagnaði því í dag að samningar hafi náðst milli Ísrael og Sameinuðu arabísku furstadæmanna og Barein og kallaði undirritun samninganna „dögun nýrra Mið-Austurlanda.“ Erlent 15. september 2020 23:26
Notuðu rússneska þotu í framboðsauglýsingu Nefnd sem sér um að safna fjármunum fyrir forsetaframboð Donald Trump forseta Bandaríkjanna hefur fjarlægt auglýsingu þar sem hvatt var til stuðnings við bandaríska hermenn. Erlent 15. september 2020 14:41
Trump ávarpar grímulausa fundargesti: „Við munum auðveldlega sigrast á Kína-veirunni“ Þvert á ríkisreglur og tilmæli hans eigin stjórnar hélt Donald Trump Bandaríkjaforseti í gær fjöldafund innanhúss, þar sem gestir fundarins stóðu þétt saman án þess að bera grímur fyrir vitum. Trump upplýsti fundargestina í Nevada að þjóðin væri við það að sigrast á faraldrinum. Erlent 14. september 2020 23:17
Gróðureldar orðnir að pólitísku bitbeini Íbúar Kaliforníu, Oregon og Washington hafa orðið fyrir barðinu á sögulegu eldhafi en eldarnir hafa brunnið hraðar og meira en nokkru sinni áður. Eldarnir hafa þó orðið að pólitísku bitbeini milli Demókrata og Repúblikana. Erlent 14. september 2020 08:36
Sanders segir Biden þurfa að gera meira Bernie Sanders, fyrrum mótframbjóðandi Joe Biden í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar í ár, segir ekki duga til að kosningabaráttan snúist einungis um að svara Trump. Erlent 13. september 2020 20:55
Fjarlægðu styttu af Suðurríkjahermanni Stytta sem sýnir hermann Suðurríkjanna úr Þrælastríðinu hefur verið tekin niður í borginni Charlottesville í Virginíu. Erlent 13. september 2020 08:43
Tala látinna vegna gróðureldanna hækkar Yfir 30 hafa látist í skógar- og gróðureldunum sem loga nú vítt um vesturhluta Bandaríkjanna. Erlent 13. september 2020 07:50
Ráðgjafar Trump gerðu tilraunir til að breyta skýrslum um framgang faraldursins Samskiptaráðgjafar í heilbrigðisráðuneyti Bandaríkjanna, sem skipaðir voru af Donald Trump Bandaríkjaforseta, hafa óskað eftir því að fá að fara yfir og gera breytingar á vikulegum skýrslum Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna um þróun kórónuveirufaraldursins. Erlent 12. september 2020 10:04
Barein fjórða arabaríkið sem nær friðarsamkomulagi við Ísrael Barein varð í dag fjórða arbaríkið til þess að viðurkenna Ísraelsríki. Erlent 11. september 2020 22:28
Samsæriskenningar flæða yfir neyðarlínu í gróðureldunum Starfsmenn neyðarlínu í Oregon í Bandaríkjunum hafa ekki undan að svara símtölum frá fólki með samsæriskenningar um að svonefndir andfasistar hafi kveikt gríðarlega gróðurelda sem þar geisa. Erlent 11. september 2020 15:55
Rússneskir tölvuþrjótar réðust á ráðgjafa Biden Starfsmenn Microsoft létu forsvarsmenn forsetaframboðs Joe Biden nýverið vita af því að rússneskir tölvuþrjótar, sem taldir eru á vegum ríkisins, hefi reynt árásir á helsta ráðgjafafyrirtæki framboðsins. Erlent 10. september 2020 22:30
Segist hafa gert lítið úr faraldrinum til að forðast „skelfingu“ Donald Trump Bandaríkjaforseti gekkst við því í gær að hann hefði vísvitandi gert lítið úr kórónuveirufaraldrinum þegar hann byrjaði að dreifa úr sér um Bandaríkin í vetur en að það hafi hann gert til að forðast að valda „skelfingu“ Erlent 10. september 2020 11:52
Skipað að sitja á upplýsingum um Rússa vegna Trump Háttsettur embættismaður í Heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna segir að sér hafi verið skipað að hætta að veita upplýsingar um afskipti Rússa af kosningum. Meðal annars vegna þess að það hafi látið Donald Trump, forseta, líta illa út. Erlent 9. september 2020 22:20
Trump sagður ljúga meðvitað um kórónuveiruna Alvarleiki kórónuveirufaraldursins var Donald Trump Bandaríkjaforseta fullljós í vetur á sama tíma og hann sagði almenningi að veiran væri ekki hættulegri en hefðbundin flensa. Erlent 9. september 2020 16:47
Dómsmálaráðuneyti vill taka við vörn Trump gegn meiðyrðakæru Bandaríska dómsmálaráðuneytið tók það óvenjulega skref að taka við málsvörn Donalds Trump forseta í meiðyrðamáli konu gegn honum sem sakar hann um að hafa nauðgað sér á 10. áratugnum. Erlent 9. september 2020 14:25
Fækkar í herliðinu í Írak um 2.200 Fjöldi bandarískra hermanna í Írak fer því úr um 5.200 í um þrjú þúsund. Erlent 9. september 2020 11:41
Norskur þingmaður tilnefnir Trump til friðarverðlauna Nóbels Donald Trump er tilnefndur fyrir aðkomu sína að „sögulegum samningi“ Ísraela og Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Erlent 9. september 2020 09:55
Póstmeistari Trump sagður hafa brotið kosningalög Fyrrverandi starfsmenn forstjóra bandarísku póstþjónustunnar segja að þrýst hafi verið á þá að leggja fé í kosningasjóði frambjóðenda Repúblikanaflokksins sem honum hugnaðist og þeim hafi síðan verið greiddur kostnaðurinn. Erlent 7. september 2020 16:39
Trump réð „gervi-Obama“ sem hann úthúðaði og rak Donald Trump Bandaríkjaforseti réð leikara til að fara með hlutverk Barack Obama, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í myndbandi þar sem Trump úthúðaði „forsetanum fyrrverandi“ og endaði myndbandið á því að Trump rak Obama á staðnum. Erlent 6. september 2020 17:41
Trump kallar blaðamann óþokka og segir að reka ætti annan Donald Trump Bandaríkjaforseti beinir spjótum sínum nú að fréttamönnum eftir að hafa átt í vök að verjast undanfarna daga vegna meintra ummæla hans um fallna hermenn. Erlent 5. september 2020 23:30
Fyrrverandi forstjóri Alþjóðabankans: „Heimurinn gæti orðið eins og árið 1900“ Robert Zoellick, fyrrverandi forstjóri Alþjóðabankans, segir nauðsynlegt að lönd heimsins taki höndum saman. Viðskipti erlent 5. september 2020 15:29
Trump á í vök að verjast vegna meintra ummæla um fallna hermenn Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, er á meðal þeirra sem hafa deilt hart á Donald Trump Bandaríkjaforseta, vegna ummæla sem forsetinn á að hafa látið falla um að fallnir hermenn væru „minnipokamenn“ og „flón“. Erlent 4. september 2020 23:53
Vara við „Rauðri hillingu“ á kjördag Sérfræðingar eru byrjaðir að vara við því að niðurstöður forsetakosninganna í Bandaríkjunum í nóvember, gætu tekið miklum breytingum eftir kosninganóttina sjálfa. Erlent 4. september 2020 11:05