Teikna beina línu frá framboði Trumps til Rússa Ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, opinberaði í gær að samstarfsmaður starfsmanna framboðs Donalds Trump, fyrrverandi forseta, útvegaði rússneskum leyniþjónustum gögn úr framboðinu. Erlent 16. apríl 2021 23:34
Hollusta við Trump borgar sig Helstu stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, á þingi vestanhafs hafa grætt töluvert á hollustu sinni við forsetann. Öll hafa þau safnað fúlgum fjár í kosningasjóði sína sem að mestu hafa borist í smáum skömmtum frá kjósendum Trumps. Erlent 16. apríl 2021 11:43
Kallaði McConnell heimskan tíkarson Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, jós úr skálum reiði sinnar yfir Mitch McConnell, leiðtoga Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings um helgina. Það gerði Trump í ræðu á ráðstefnu íhaldsmanna í sveitaklúbbi hans í Flórída á laugardagskvöldið. Erlent 12. apríl 2021 11:35
Sakar Trump um að hafa æst til „blóðugrar uppreisnar“ Einn af fyrrverandi leiðtogum Repúblikanaflokksins á Bandaríkjaþingi segir að Donald Trump, fyrrverandi forseti, hafi æst til blóðugrar uppreisnar þegar æstur múgur réðst á þinghúsið 6. janúar. Hann segir að uppreisnin hefði átt að vekja repúblikana aftur til heilbrigðrar skynsemi. Erlent 8. apríl 2021 08:54
Bandamaður Trump rannsakaður vegna mansals Bandarískur fulltrúadeildarþingmaður og náinn bandamaður Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, er sagður til rannsóknar vegna mansals. Hann er sagður grunaður um að greitt undir sautján ára gamla stúlku sem hann hafi átt í kynferðislegu sambandi við. Erlent 30. mars 2021 23:14
Trump rannsakaður hátt og lágt Donald Trump, sem nýtur ekki lengur friðhelgi foretaembættisins, á nú yfir höfði sér fjölmörg dómsmál, bæði einkamál og sakamál. Sum tengjast gjörðum hans á meðan hann sat enn í embætti en önnur viðskiptagjörningum og óvarlegum umælum, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 22. mars 2021 09:04
Rannsaka aðild starfsmannastjóra Trump að þrýstingsherferð í Georgíu Athafnir Marks Meadow, fyrrverandi starfsmannastjóra Hvíta hússins, í þrýstingsherferð Donalds Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, til að breyta kosningaúrslitum í Georgíu eru líklegar til að vekja athygli umdæmissaksóknara sem rannsakar hvort að Trump hafi brotið lög með afskiptum sínum af kosningunum. Erlent 19. mars 2021 13:37
Covid-kreppa Trump Á meðan margir milljarðamæringar hafa hagnast gríðarlega síðustu misseri hefur öðrum ekki farnast jafn vel í heimsfaraldrinum sem nú gengur yfir. Erlent 18. mars 2021 16:01
McConnell varar við „sviðinni jörð“ í öldungadeildinni Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, varaði Demókrata í gær við því að Repúblikanar myndu skilja eftir sig sviðna jörð ef reglan um aukin meirihluta verði felld niður. Joe Biden, forseti, segist styðja að breyta reglunni til fyrra horfs. Erlent 17. mars 2021 10:27
Hvetur stuðningsmenn til að bólusetja sig Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hvetur stuðningsmenn sína til þess að fá bólusetningu gegn kórónuveirunni. Erlent 17. mars 2021 07:59
Biden í basli á landamærunum Þrátt fyrir að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hafi skrifað undir forsetatilskipanir og gripið til annarra aðgerða á fyrsta degi í embætti, hefur það litlum árangri skilað á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Í ljósi þess öngþveitis sem ríkir þar. Erlent 9. mars 2021 23:01
Halda áfram að nota nafn Trump þrátt fyrir mótbárur hans Repúblikanaflokkurinn í Bandaríkjunum ætlar að halda áfram að nota nafn Donalds Trump fyrrverandi forseta í fjáröflunarskyni og kynningarefni þrátt fyrir að hann hafi látið lögfræðinga sína krefjast þess að flokkurinn léti af því í síðustu viku. Erlent 9. mars 2021 11:46
Trump bannar Repúblikönum að nota nafn sitt í fjáröflun Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er afar ósáttur við Repúblikanaflokkurinn noti nafn sitt við fjáröflun og á varningi sem seldur er til stuðningsmanna flokksins. Hafa lögmenn hans sent kröfu um að því verði hætt tafarlaust. Erlent 6. mars 2021 18:06
Sakaður um drykkju og neyslu lyfja í starfi sem læknir Hvíta hússins Í starfi sínu sem læknir Hvíta hússins, talaði Ronny Jackson með niðrandi og kynferðislegum hætti um kvenkyns undirmann sinn. Þá drakk hann í vinnunni og neytti svefnlyfja svo samstarfsmenn hans höfðu áhyggjur af því að hann gæti ekki sinnt skyldum sínum. Erlent 3. mars 2021 11:00
Trump herðir tökin á Repúblikanaflokknum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gærkvöldi að hann ætlaði sér ekki að sleppa tökunum á Repúblikanaflokknum. Þess í stað væri hann að herða tökin og gaf hann í skyn að hann gæti boðið sig fram aftur til forseta fyrir kosningarnar 2024. Erlent 1. mars 2021 09:00
Saksóknarar komnir með skattgögn Trumps Saksóknarar í Manhattan í New York eru komnir með skattskýrslur og önnur fjármálagögn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Það er eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði kröfu Trumps um að ekki mætti veita saksóknunum gögnin. Erlent 25. febrúar 2021 17:19
Dóttir eins helsta ráðgjafa Trump vekur athygli í American Idol Claudia Conway mætti í áheyrnaprufu í American Idol á dögunum og er saga hennar nokkuð mögnuð. Conway er TikTok stjarna í Bandaríkjunum og er hún aðeins 16 ára. Lífið 23. febrúar 2021 07:00
Stormy Daniels fær ekki að áfrýja til Hæstaréttar Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði beiðni klámstjörnunnar um áfrýjun á frávísunarúrskurði í meiðyrðamáli hennar gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Beiðninni var hafnað án athugasemda. Erlent 22. febrúar 2021 23:54
Hæstiréttur heimilar afhendingu skattskýrslna Trumps Hæstiréttur Bandaríkjanna greiddi í dag leið saksóknara í New York að skattskýrslum og öðrum fjárhagsgögnum Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Undirréttur hafði áður úrskurðað í október að fyrrum endurskoðendur Trumps þyrftu að verða við beiðni ákærudómstóls og afhenda gögnin. Erlent 22. febrúar 2021 15:07
Repúblikanar reyna víða að gera fólki erfiðara að kjósa Repúblikanar víða um Bandaríkin vinna nú hörðum höndum að því að gera fólki erfiðara að taka þátt í kosningum þar í landi. Beina þeir sjónum sínum sérstaklega að póstatkvæðum og öðrum aðferðum sem fólk getur beitt til að greiða utankjörfundaratkvæði. Erlent 20. febrúar 2021 11:01
Spilavíti Trumps jafnað við jörðu Trump Plaza spilavítið í Atlantic City í Bandaríkjunum var jafnað við jörðu í dag. Sprengiefni voru notuð til að láta háhýsið falla inn á sig og urðu engar skemmdir á öðrum byggingum sem stóðu þar nærri. Erlent 17. febrúar 2021 15:05
Trump hellti sér yfir McConnell: „Önug og fýld pólitísk bikkja“ Það verður ekki annað sagt en að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi látið Mitch McConnell, leiðtoga Repúblikana, í öldungadeild Bandríkjaþings, heyra það í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gærkvöldi. Erlent 17. febrúar 2021 06:55
Trump og Giuliani kærðir af þingmanni vegna árásarinnar Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið kærður fyrir alríkisdómstóli vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar. Kæran var lögð fram af Bennie Thompson, þingmanni Demókrataflokksins. Erlent 16. febrúar 2021 15:44
Setja á fót nefnd til að rannsaka árásina á þinghúsið Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur greint frá því að til standi að þingið komi á fót óháðri rannsóknarnefnd sem ætlað verður að kafa ofan í saumana á atburðarásinni í og við þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar síðastliðinn. Þá réðst æstur múgur inn í þinghúsið og fimm létust, þar af einn lögregluþjónn. Erlent 15. febrúar 2021 23:35
Parler snýr aftur eftir að hafa verið sparkað af internetinu Samfélagsmiðilinn Parler er kominn aftur í loftið um mánuði eftir að Amazon og aðrir tæknirisar kipptu fótunum undan miðlinum í kjölfar árásarinnar á bandaríska þinghúsið. Viðskipti erlent 15. febrúar 2021 22:09
Trump-lestin rúllar áfram en þingmenn vilja frekari rannsóknir Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sem var sýknaður af ákæru um embættisbrot um helgina, er enn með sterkt tak á Repúblikanaflokknum þó hann komi ekki óskaddaður frá málinu. Erlent 15. febrúar 2021 11:05
Sýkna Trumps áminning um að lýðræðið er brothætt Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að sýkna Donalds Trumps, fyrrverandi forseta, í ákæru um embættisbrot sé áminning um að lýðræði sé brothætt. Hann segir að þrátt fyrir sýknuna sé alvarleiki málsins ekki deiluefni. Erlent 14. febrúar 2021 13:29
Segir möguleika að Trump verði stefnt fyrir dóm þrátt fyrir sýknuna Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, sagði í kvöld að Donald Trump fyrrverandi forseti sé ábyrgur fyrir árásinni sem gerð var á bandaríska þinghúsið þann 6. janúar. Erlent 13. febrúar 2021 22:39
Trump sýknaður Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur verið sýknaður af ásökunum um embættisbrot. Erlent 13. febrúar 2021 21:10
Hætta við að kalla til vitni Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur ákveðið að hætta við að kalla til vitni í réttarhöldum deildarinnar yfir Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Þannig hefur verið komið í veg fyrir að réttarhöldin dragist á langinn og er nú búist við að niðurstaða fáist í málið á næstu dögum. Erlent 13. febrúar 2021 18:33