2 mánuðir og 17 milljónir Rúmlega fimmtugur maður var dæmdur til tveggja mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og til greiðslu rúmlega 17 milljóna króna fyrir að hafa ekki staðið skil á greiðslu virðisaukaskatts og staðgreiðslu opinberra gjalda á árunum 2001 og 2002. Innlent 29. september 2004 00:01
Ekkert lát á straumi fíkniefna Mörg stór fíkniefnamál hafa komið upp síðustu ár. Tólf ára fangelsisdómur yfir Austurríkismanni var mildaður í níu ár í Hæstarétti. Tryggvi Rúnar Guðjónsson situr nú af sér tíu ára fangelsisdóm sem er þyngsti fíkniefnadómur Hæstaréttar. Innlent 27. september 2004 00:01
Gargandi þvæla segir Sveinn Andri Alls hafa um 120 lögmenn skrifað undir stuðningsyfirlýsingu við Jón Steinar Gunnlaugsson um að hann verði skipaður í stöðu hæstaréttardómara. Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður segist ekki vita hversu margir hafi verið beðnir um að skrifa undir áskorunina. Innlent 25. september 2004 00:01
Réttarhöld hefjast 18. október Réttarhöld í líkfundarmálinu hefjast 18. október í Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómurinn hafnaði í dag kröfu verjenda um að ákæruvaldið aflaði sjúkraskýrslna frá Litháen um hinn látna, Vaidas Jusevicius. Innlent 21. september 2004 00:01
Ólafur Börkur skilaði séráliti Allir dómarar Hæstaréttar nema einn eru sammála um að lagaprófessorarnir Eiríkur Tómasson og Stefán Már Stefánsson séu hæfastir umsækjenda um dómarastöðu við réttinn. Einn dómari, Ólafur Börkur Þorvaldsson, skilaði séráliti þar sem hann leggur áherslu á afburðaþekkingu Jóns Steinars Gunnlaugssonar á sviði lögfræði. Innlent 20. september 2004 00:01
Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tuttugu og fimm ára gömlum manni sem er grunaður um að hafa veitt öðrum manni alvarlegan áverka með öxi á veitingastað í Hafnarfirði í byrjun mánaðarins. Innlent 10. september 2004 00:01
Krafist 5 mánaða fangelsis Ragnar Sigurjónsson, sem framseldur var frá Taílandi vegna fjársvikamáls, segist hafa verið farinn að undirbúa heimför þegar hann var framseldur. Ákæruvaldið krefst þess að Ragnar verði dæmdur í fimm mánaða fangelsi. Innlent 9. september 2004 00:01
Ragnar neitaði sök Ragnar Sigurjónsson neitaði sök í Héraðsdómi Reykjaness í dag þegar aðalmeðferð hófst í máli ríkisins gegn honum. Ragnari er gefið að sök að hafa svikið á fimmtu milljón króna út úr Nígeríumanni sem stóð í þeirri trú að Ragnar ætlaði að selja honum skreiðarfarm. Innlent 6. september 2004 00:01
Var ekki að flýja réttvísina Ragnar Sigurjónsson, sem framseldur var frá Taílandi á dögunum, segist ekki hafa verið að flýja réttvísina þegar hann hvarf úr landi og fjársvikamál á hendur honum var fyrir dómstólum. Persónulegar ástæður hafi legið þar að baki. Vitni segir að nígerískur viðskiptafélagi Ragnars hafa marghótað honum lífláti. Innlent 6. september 2004 00:01
Sýknaður af manndrápsákæru Þjóðverji sem ók ölvaður með þeim afleiðingum að bíllinn fót út af og valt við Vatnsskarð var í dag sýknaður af ákæru um manndráp í Héraðsdómi Reykjaness. Félagi mannsins lést í slysinu. Innlent 27. ágúst 2004 00:01
Siðanefnd kærir úrskurðinn Siðanefnd Háskóla Íslands hefur ákveðið að kæra úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í liðinni viku þess efnis að sýslumanni beri að setja lögbann á umfjöllun siðanefndar um bók Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Halldór Laxness. Innlent 23. ágúst 2004 00:01
Hannes er umdeildur "Hannes er umdeildur maður í þjóðfélaginu og innan Háskólans og telur sjálfur að krossferð hafi verið í gangi gegn honum," sagði Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, í dómsal í gær er málflutningur fór fram í lögbannsmáli Hannesar gegn Siðanefnd Háskóla Íslands. Innlent 13. ágúst 2004 00:01
Grunaður um höfuðkúpubrot Karlmaður á þrítugsaldri situr í gæsluvarðhaldi á Akureyri grunaður um að hafa höfuðkúpubrotið annan mann og veitt honum fleiri áverka. Fórnarlambið var lagt inn á gjörgæsludeild. Innlent 10. ágúst 2004 00:01
Ekki áfellisdómur yfir nefndinni Stjórnarmaður í eftirmenntunarnefnd rafeindavirkja vísar því alfarið á bug að nefndin eigi að bera halla af því að hafa ekki, sem skyldi, séð um fjárreiður eftirmenntunarsjóðsins og fylgst með verkum fyrrverandi skólastjóra Rafiðnaðarskólans. Hann segist ekki líta svo á að dómur Héraðsdóms frá í gær sé áfellisdómur yfir starfi nefndarinnar. Innlent 27. júlí 2004 00:01
Fyrrverandi skólastjóri sýknaður Fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskóla Íslands var í dag sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af því að hafa svikið tæplega 29 milljónir króna frá skólanum. Hann var hins vegar dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa dregið sér 450 þúsund krónur frá Viðskipta- og tölvuskólanum. Innlent 26. júlí 2004 00:01
Fyrrverandi skólastjóri sýknaður Fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskólans, Jón Árni Rúnarsson, var í dag sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um að hafa dregið sér tæplega 29 milljónir króna á sjö ára tímabili í starfi sínu hjá skólanum. Hann var hins vegar dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals og fjársvik. Innlent 26. júlí 2004 00:01
Sveinbjörn áfrýjar ekki Aðalsakborningur í Landssímamálinu ætlar að una dómi sínum en hann var dæmdur til 4 1/2 árs fangelsisvistar. Hinir sakborningarnir þrír hafa allir áfrýjað. Innlent 22. júlí 2004 00:01
Réðist á konu á heimili hennar Maður á fimmtugsaldri var sakfelldur fyrir líkamsárás á konu á svipuðum aldri á heimili hennar sl. sumar og dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómurinn er skilorðsbundinn í tvö ár. Innlent 14. júlí 2004 00:01
Réðust á mann og hótuðu lögreglu 23 ára gamall Akureyringur hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og brot gegn valdstjórninni með hótunum um ofbeldi og líflát. Einnig hlaut tveggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm 21 árs gamall Akureyringur fyrir þátttöku í árásinni. Innlent 13. júlí 2004 00:01
Ók lyfjadofinn á lögreglu Héraðsdómur Suðurlands hefur svipt 41 árs gamlan mann ökuréttindum í eitt ár og gert honum að greiða hundrað þúsund krónur fyrir umferðarlagabrot. Fram kemur í dómnum að maðurinn hafi á vegarkafla við Litlu-Kaffistofuna ekið á öfugum vegarhelmingi móti ómerktri lögreglubifreið, þannig að ökumaður hennar varð að aka út fyrir veginn. Innlent 13. júlí 2004 00:01
Dró sér 30 milljónir á átta árum Fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskóla Íslands er ákærður fyrir að hafa dregið sér tæpar 30 milljónir króna frá skólanum á átta ára tímabili. Hann lýsti yfir sakleysi við aðalmeðferð málsins, sem stendur nú yfir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 9. júlí 2004 00:01
Með fjölda dóma á bakinu Tvítugur maður var í gær dæmdur í eins árs fangelsi fyrir þjófnað í Héraðsdómi Reykjaness. Innlent 8. júlí 2004 00:01
Skilorð fyrir misheppnað bankarán 23 ára gamall maður fékk í gær skilorðsbundinn fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur upp á fimm mánuði fyrir tilraun til að ræna útibú Landsbankans við Gullinbrú í Reykjavík föstudaginn 5. desember sl. Refsing fellur niður að 3 árum liðnum haldi maðurinn almennt skilorð, en honum var jafnframt gert að greiða allan sakarkostnað. Innlent 8. júlí 2004 00:01
Dæmdur fyrir líkamsárás Sautján ára piltur var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Innlent 8. júlí 2004 00:01
Tæpar 30 milljónir á átta árum Tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær opinbert mál á hendur Jóni Árna Rúnarssyni, fyrrum skólastjóra Rafiðnaðarskólans í Reykjavík og tengdra skóla. Jóni er gefið að sök að hafa á árunum 1994 til 2001 dregið sér tæpar 29 milljónir króna. Innlent 8. júlí 2004 00:01