Allir ósáttir við makrílútspil Jóhann Óli Eiðsson skrifar 22. mars 2019 07:00 Glaðbeittir veiðimenn landa góðum afla af makríl. Fréttablaðið/GVA
Allar umsagnir um frumvarpsdrög sjávarútvegs- og landsbúnaðarráðherra varðandi kvótasetningu á makríl voru neikvæðar. Með frumvarpinu er ætlað að feta milliveg ólíkra sjónarmiða eftir makríldóma Hæstaréttar. Þegar makríll hóf að synda á íslensk mið hófst hálfgert villtavestursástand þar sem útgerðir reyndu að landa sem mestu af fisknum enda bar að miða við veiðireynslu skipa þegar til hlutdeildarsetningar tegundarinnar kæmi. Stærstur hluti aflans var sendur í bræðslu. Með reglugerð árið 2011 ákvað þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hins vegar að skerða hlut aflareynsluskipanna og auka hlut annarra skipa á móti. Markmið þess var meðal annars að aukinn hluti aflans yrði verkaður til manneldis. Niðurstaða Hæstaréttar í tveimur málum frá í desember var að þetta fyrirkomulag hefði brotið gegn úthafsveiðilögunum. Skaðabótaskylda íslenska ríkisins til tveggja útgerða vegna áranna 2011-14 var því viðurkennd. Tvö sambærileg mál biðu meðferðar fyrir héraðsdómi og eftir að dómar Hæstaréttar voru kveðnir upp hafa fleiri útgerðir boðað bótamál vegna áranna 2015-18. Gera má sér í hugarlund að möguleg bótafjárhæð verði nokkrir milljarðar hið minnsta. Frumvarpi sjávarútvegsráðherra nú er ætlað að bæta úr þessu ástandi. Aflamarki verði úthlutað á grundvelli tíu bestu veiðiára skipa árin 2008-2018 að báðum árum meðtöldum. Þýðir þetta að hlutur aflareynsluskipanna hækkar en verður þó ekki jafn mikill og ef úthafsveiðilögunum hefði verið fylgt strax árið 2011. Á móti lækkar hlutur vinnslu- og ísfiskskipa svo og línu- og handfærabáta. Margar útgerðir í þeim hópi hafa lagt í fjárfestingar á grundvelli hinnar ólögmætu reglugerðar. „Að mati Ísfélags Vestmannaeyja og Hugins væri á hinn bóginn eðlilegt og málefnalegt, að þegar þessum málum er markaður farvegur til framtíðar með lögum frá Alþingi, sé leitast við að búa svo um hnúta eftir því sem framast er kostur, að úthlutun einstakra aðila svari til þess sem þeim hefði að réttu lagi borið að lögum, hefði þeim verið fylgt á sínum tíma,“ segir í umsögn útgerðanna tveggja sem lögðu ríkið fyrir jól. Í svipaðan streng er tekið í umsögn Eskju. Með frumvarpinu sé ótækt að svo freklega sé gengið á rétt frumkvöðla veiða á tegundinni sem raun ber vitni. Frumvarpið leiði til ósanngirni í garð þeirra útgerða sem hófu veiðarnar. Í umsögn Vinnslustöðvarinnar segir að árið 2014 hafi legið fyrir með áliti umboðsmanns Alþingis að fyrirkomulagið frá 2011 stóðst ekki lög. Ekki geti talist sanngjarnt eða málefnalegt að þeir sem náðu „viðbótaraflareynslu“ eftir það tímamark fái að njóta hennar með setningu laganna. „Lagt hefur verið í umtalsverðar fjárfestingar til að útbúa skip fyrirtækjanna til markílveiða, ef að þetta frumvarp verður að lögum nýtast [þær] illa. […] Það er með öllu óskiljanlegt að flokkar vinnslu- og ísfiskiskipa eigi einn [sic!] að bæta fyrir meint mistök stjórnvalda við upphaflega úthlutun á heimildum í makríl gagnvart „aflareynsluskipum“,“ segir aftur á móti í umsögn Þorbjarnar, Ramma og Nesfisks. Lagt er til að miðað verði við sex bestu veiðiárin í stað tíu bestu.
Birtist í Fréttablaðinu Dómsmál Sjávarútvegur Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Fleiri fréttir Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Sjá meira