Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa Sjónvarpskonan Maya Jama og fótboltamaðurinn Rúben Dias lentu í miður skemmtilegu atviki þegar brotist var inn í heimili þeirra í Cheshire í norðvesturhluta Englands. Lífið 30.1.2026 17:06
Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það væri „afar hættulegt“ fyrir Breta að leitast eftir því að eiga í auknum og nánari samskiptum við Kína. Ummælin lét forsetinn falla eftir að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, átti þriggja tíma fund með Xi Jinping, forseta Kína, í Pekíng. Erlent 30.1.2026 09:07
„Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Erlendum karlmanni, á leið í heimsókn til tengdafjölskyldu sinnar á Íslandi, var meinaður aðgangur í flugvél Icelandair því gildistími vegabréfs hans var innan við þrír mánuðir. Með neyðarvegabréf í hendi keypti hann nýtt og dýrt flug. Hann rak í rogastans þegar hann ætlaði að halda heim á leið viku síðar og átti ekki lengur sæti í fluginu. Formaður Neytendasamtakanna segir reglu flugfélagsins óskiljanlega en forsvarsmenn Icelandair segja að um vel þekkt fyrirkomulag sé að ræða. Neytendur 30.1.2026 06:30
Valdi sér fylkingu í Beckham-deilunum Tónlistarkonan Lily Allen hefur greinilega valið sér fylkingu í deilum innan Beckham-fjölskyldunnar sem hafa gerjast um nokkurra ára bil og sprungu í loft upp þegar Brooklyn Beckham, frumburður Victoriu og Davids, sagðist ekki vilja sættast við fjölskyldu sína. Lífið 20. janúar 2026 10:26
Opinberar erjur Beckham-fjölskyldunnar: „Ég vil ekki sættast við fjölskyldu mína“ Brooklyn Beckham, frumburður Davids og Victoriu Beckham, birti langa færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann sakar foreldra sína um lygar og pretti til þess að viðhalda fullkominni ímynd fjölskyldunnar. Þá hafi þau verið illviljuð gagnvart eiginkonu Brooklyn. Lífið 19. janúar 2026 20:45
Fagna tíu árum af ást Heimsfræga og stundum umdeilda ofurparið Meghan Markle og Harry Bretaprins fagna tíu árum af ást í ár. Þegar þau felldu hugi saman átti bókstaflega allt eftir að breytast í lífi þeirra en ástin virðist blómstra sem aldrei fyrr. Lífið 19. janúar 2026 16:03
Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Talsmaður Keirs Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segir að forsætisráðherrann hafi talað við Donald Trump Bandaríkjaforseta í síma í dag. Ráðherran hafi sagt að það væri „rangt“ að leggja tolla á bandamenn sína fyrir það eitt að reyna að tryggja öryggi á norðurslóðum. Erlent 18. janúar 2026 20:20
Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Löndin sem Trump hefur hótað háum tollum gangi þau ekki að óskum hans um að styðja innlimun hans á Grænlandi hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu. Þau segjast tilbúin til viðræðna en að þeim verði ekki hnikað hvað fullveldi þeirra varðar. Erlent 18. janúar 2026 13:58
Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Forsætisráðherra Bretlands segist munu ræða við Bandaríkjastjórn um fyrirhugaða Grænlandstolla. Leiðtogar Evrópu stilla nú saman strengi eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti boðaði tolla gegn átta NATO-ríkjum vegna þess að þau sendu mannskap til Grænlands í hernaðaræfingu. Erlent 17. janúar 2026 20:45
Musk fellst á að hætta að framleiða kynferðislegar myndir en bara sums staðar Samfélagsmiðillinn X, sem er í eigu Elon Musk, segist ætla að loka á að gervigreindarspjallmennið Grok búi til kynferðislegar myndir af raunverulegu fólki í sumum löndum í kjölfar harðrar gagnrýni og opinberra rannsókna. Aðeins verður tekin fyrir slíkar myndir þar sem slíkt er ólöglegt. Erlent 15. janúar 2026 08:48
Starmer boðið sæti í „friðarstjórn“ Trump Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hefur verið boðið sæti í svokallaðri „friðarstjórn“ sem á að hafa umsjón með Gasa næstu misserin og skipuleggja enduruppbyggingu svæðisins. Erlent 14. janúar 2026 08:12
Búa sig undir áhlaup um borð í skuggaskip Yfirvöld í Bretlandi eru sögð undirbúa það að senda sérsveitir um borð í olíuflutningaskip og önnur skip sem tilheyra svokölluðum „skuggaflota“ Rússa. Ráðamenn munu hafa fundið lög sem hægt sé að nota til að leggja hald á skipin, sem ríki eins og Rússland, Íran og Venesúela hafa notað til að komast hjá viðskiptaþvingunum. Erlent 13. janúar 2026 13:31
Gaf grænt ljós á alla samruna í fyrra eftir uppstokkun á stjórn eftirlitsins Samkeppniseftirlitið í Bretlandi samþykkti alla samruna sem komu til skoðunar á liðnu ári, sem er í fyrsta sinn sem slíkt gerist í árabil, en eftirlitið hefur verið undir pólitískum þrýstingi að vinna í samræmi við stefnu stjórnvalda um að ýta undir hagvöxt og aukna samkeppnishæfni atvinnulífsins. Innherjamolar 13. janúar 2026 11:34
Bretar ætla að framleiða skotflaugar fyrir Úkraínu Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að Úkraínumenn ætli að auka umfang árása innan landamæra Rússlands. Þannig vilji þeir auka þrýstinginn á Rússland og grafa undan getu Rússa til að halda stríðsrekstrinum áfram. Erlent 12. janúar 2026 14:07
Hefja formlega rannsókn á kynferðislegum fölsunum Musk Fjölmiðlanefnd Bretlands rannsakar nú samfélagsmiðilinn X og hvort hann hafi brotið lög vegna kynferðislegra gervigreindarmynda af börnum og konum. Elon Musk, eigandi X, hefur sakað bresk stjórnvöld um ritskoðunartilburði. Erlent 12. janúar 2026 13:30
Óttast innrætingu íslamista í breskum háskólum Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum styrkja ekki lengur ríkisborgara sína til háskólanáms í Bretlandi, af ótta við að nemendur verði útsettir fyrir innrætingu samtaka á borð við Múslimska bræðralagið. Múslimska bræðralagið eru alþjóðleg samtök múslima sem skilgreind eru sem hryðjuverkasamtök í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en ekki í Bretlandi. Erlent 10. janúar 2026 20:33
Bresk stjórnvöld segja viðbrögð X „móðgandi“ Talsmaður bresku ríkisstjórnarinnar segir þau viðbrögð X við holskeflu kynferðislegs efnis af börnum á samfélagsmiðlinum að leyfa aðeins áskrifendum að búa það til „móðgandi“. Elon Musk er sagður hafa verið varaður ítrekað við óviðeigandi efni á miðlinum á undanförnum vikum. Erlent 9. janúar 2026 15:30
Gervigreind Musk sögð hafa búið til kynferðislegar myndir af ellefu ára gömlum börnum Bresk samtök sem berjast gegn barnaníði á netinu segjast hafa fundið kynferðislegar myndir af stúlkum allt niður í ellefu ára gamlar sem virðast hafa verið búnar til af gervigreindarforriti Elons Musk. Erlent 8. janúar 2026 11:29
Allra augu á Íslandi og Atlantshafinu Flugferðir sem tengjast aðgerðum Bandaríkjamanna á Atlantshafi í dag og flugferðir milli Bretlands og Íslands hafa verið mikið milli tannanna, ef svo má segja, á fólki á internetinu í dag. Mögulegt er að Bandaríkjamenn séu að flytja hergögn og hermenn frá Bretlandi aftur til Bandaríkjanna eftir aðgerðirnar. Erlent 7. janúar 2026 14:40
Víða truflanir í Evrópu vegna snjókomu Flugferðum hefur verið frestað vegna veðurs nokkuð víða í Vestur-Evrópu en óveðrið Goretti hefur leitt til ýmissa truflana á svæðinu. Vegum hefur verið lokað og þá hafa truflanir orðið á lestarferðum, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 7. janúar 2026 11:26
Blaðri því út um allan bæ að hann sé næsti Bond Breski hjartaknúsarinn og leikarinn Callum Turner er sagður hafa blaðrað því út úr sér á fjölmörgum stöðum að hann hafi verið ráðinn til þess að leika breska njósnara hans hátignar, James Bond. Hann muni taka við keflinu af Daniel Craig sem lék njósnarann í síðustu mynd sem kom út 2021. Bíó og sjónvarp 7. janúar 2026 11:16
„Stórt framfaraskref“ Forsetar Úkraínu og Frakklands og forsætisráðherra Breta undirrituðu í kvöld samkomulag um varnir Úkraínu. Með undirrituninni samþykkja Bretar og Frakkar að senda hermenn til Úkraínu í kjölfar samkomulags um vopnahlé. Erlent 6. janúar 2026 21:19
Íslenskur fjárfestir í óvenjulegri skilnaðardeilu í Bretlandi Íslenskur fjárfestir stendur nú í óvenjulegri skilnaðardeilu fyrir hæstarétti í Bretlandi þar sem WhatsApp-skilaboð kunna að ráða úrslitum um eignarhald á lúxusfasteign. Innlent 6. janúar 2026 07:30
Fannst látinn á fjöllum degi eftir afmælisdaginn Skoski söngvarinn og verslunareigandinn Andrew Ure fannst látinn á fjallinu Ben Vane, daginn eftir afmælisdag sinn, eftir að hafa lagt einn af stað í fjallgöngu á gamlársdag til að prófa nýjan klifurbúnað. Lífið 5. janúar 2026 10:54