Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Tveggja bíla árekstur var á Mosfellsheiði síðdegis í dag og voru sjö einstaklingar fluttir á bráðamóttöku. Voru allir minniháttar slasaðir, að sögn slökkviliðs. Innlent 11.4.2026 18:27
Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Lek vatnslögn var ranglega tengd inn á vatnsveituna við Úthlíð í Bláskógabyggð án vitundar Veitna með þeim afleiðingum að álag jókst á sama tíma og hús voru án vatns. Málið komst upp á páskadagskvöld og vinna Veitur nú að því að yfirfara kerfið. Innlent 9.4.2026 07:00
Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Sumarhúsaeigandi í Úthlíð í Bláskógabyggð segir vatnsskort hafa verið viðvarandi vandamál á svæðinu um árabil og gagnrýnir Veitur harðlega fyrir að hafa ekki gripið til frekari ráðstafana. „Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum og bregðast við vandamálinu er því algert.“ Innlent 5.4.2026 23:55
Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Hrottafengnu ofbeldi er lýst gegn maltneskum karlmanni sem var frelsissviptur árið 2024. Sex hafa verið ákærðir fyrir verknaðinn en eftir að hafa neytt hann til að millifæra átján milljónir króna þvinguðu þau hann til að fara úr landi. Innlent 8. mars 2026 22:31
Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Sex eru ákærðir fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili hans, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans. Innlent 4. mars 2026 18:49
Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Vatnsborð í Laugarvatnshver sem sér Laugvetningum fyrir heitu vatni lækkaði vegna framkvæmda við heilsulindina Fontana í síðustu viku. Brugðist var við með því að hægja á rennsli til sundlaugarinnar í bænum. Innlent 19. febrúar 2026 14:31
„Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Það var líf og fjör í Menntaskólanum að Laugarvatni í vikunni þegar nemendur fengu nokkra fyrrverandi nemendur, sem voru meðal annars í skólanum fyrir 50 árum til að koma í heimsókn og kenna núverandi nemendum að spila bridge. Uppátækið vakti mikla athygli og höfðu nemendurnir ekki síður gaman af því en „gömlu“ bridgespilararnir. Innlent 5. febrúar 2026 21:34
Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Íbúar á Laugarvatni eru ekki allir sáttir við hugmyndir um byggingu fjögurra hæða hótels á Laugarvatni rétt við vatnið með 160 herbergjum. Um 8.600 fermetra byggingu verður að ræða. En um hvað snýst málið í raun og veru? Ásta Stefánsdóttir, er sveitarstjóri Bláskógabyggðar. Innlent 29. janúar 2026 16:04
Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé Vegagerðin hefur boðið út lagningu bundins slitlags á 7,4 kílómetra kafla Einholtsvegar í Bláskógabyggð í uppsveitum Árnessýslu. Þetta er fyrsta framkvæmdaútboð sem auglýst er í vegagerð frá því í júlí síðastliðið sumar, ef frá er talið lítið útboð í gerð hringtorgs í Garðabæ í september. Innlent 19. janúar 2026 11:34
Skautafjör á Laugarvatni í dag Fjöldi fólks er nú kominn saman á Laugarvatni því þar fer fram svokallað „Skautafjör” þar sem ungir sem aldnir koma saman og skauta á vatninu. Skautar verða til útláns fyrir þá, sem ekki eiga skauta. Lífið 17. janúar 2026 12:01
Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Öryrkjar eru að fá mun hærri laun frá Tryggingastofnun en eldri borgarar eða um 51 þúsund krónur meira á mánuði miðað við lágmarkslífeyri eldri borgara eins og staðan er í dag. Innlent 16. janúar 2026 22:00
Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu Mikill hugur er í þeim, sem stunda ferðaþjónustu í uppsveitum Árnessýslu á nýju ári, árinu 2026, enda alltaf ný og ný fyrirtæki að bætast í hóp ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu. Innlent 21. desember 2025 13:03
Önnur mesta rýrnun Hofsjökuls frá upphafi mælinga Í nóvember mældist önnur mesta rýrnun Hofsjökuls frá upphafi mælinga. Rúmmál jökulsins hefur á 38 árum rýrnað úr um 200 rúmkílómetrum í um 165 rúmkílómetra, sem jafngildir um 17 prósenta minnkun. Flatarmálið hefur dregist saman um 15 prósent á sama tímabili og er nú komið niður fyrir 790 km2. Innlent 5. desember 2025 12:19
Orðin hluti af mannlífinu: „Án okkar væri heldur tómlegt að vera til“ Það verður mikið um að vera í Reykholti í Biskupstungum í Bláskógabyggð í dag því þar fagnar verslun sveitarinnar, Bjarnabúð 40 ára afmæli. Eigandi verslunarinnar segist vera kaupfélagsstjóri og bensínafgreiðslumaður staðarins og að pylsur séu vinsælasta vara verslunarinnar. Viðskipti innlent 30. nóvember 2025 13:04
Reistu vörðu til minningar um Sigurð Kristófer við slysstað Í gær var vígður minnisvarði til minningar um Sigurð Kristófer McQuillan Óskarsson, formann Björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ, sem lést við æfingar í straumvatnsbjörgun í Tungufljóti þann 3. nóvember 2024. Innlent 24. nóvember 2025 15:03
80% nemenda á Laugarvatni eru í kór menntaskólans Sjaldan eða aldrei hafa nemendur Menntaskólans að Laugarvatni hafi eins mikinn áhuga á að syngja í kór skólans eins og núna því 119 nemendur af 152 nemendum skólans eru í kórnum. Lífið 21. nóvember 2025 20:04
Innlit í ævintýralega baðlónið Laugarás Lagoon Nýjasta baðlón landsins er Laugarás Lagoon er alveg einstakt. Lífið 19. nóvember 2025 12:03
70 ára afmæli Tónlistarskóla Árnesinga fagnað Það var líf og fjör á Laugarvatni um helgina þegar um 200 nemendur Tónlistarskóla Árnesinga komu saman til að spila á hljóðfæri sín í tilefni af 70 ára afmæli skólans fyrir gesti á sérstökum afmælistónleikum í íþróttahúsinu á Laugarvatni í gær, 15. nóvember. Innlent 16. nóvember 2025 20:05
Hvatningarverðlaun gegn einelti afhent á Laugarvatni Gunnlaugur Víðir Guðmundsson forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Gleðibankans í Reykjavík hlaut í dag hvatningarverðlaun gegn einelti en hann hefur lagt sig fram af miklum krafti að draga úr einelti og samskiptaerfiðleikum ungs fólks. Um er að ræða verðlaun Heimilis og Skóla en athöfnin fór fram á Laugarvatni í morgun. Innlent 10. nóvember 2025 21:04
Ný heilsugæslustöð tekin í notkun á Flúðum Ný heilsugæslustöð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Flúðum í Hrunamannaheppni, Heilsugæsla Uppsveita, opnaði í vikunni. Fjölmennt var á opnunarhátíð en nýja stöðin leysir af hólmi gömlu heilsugæslustöðina í Laugarási. Innlent 7. nóvember 2025 14:21
„Alla mína ævi var ég að reyna að verja hann fyrir kynþáttafordómum“ Karin Agnes McQuillan, móðir Sigurðar Kristófers McQuillan Óskarssonar, sem lést í fyrra á björgunarsveitaræfingu, segist hafa fengið áfall þegar hún las fréttir um það í gær að björgunarsveitarfólk hafi ítrekað fengið að heyra niðrandi athugasemdir um húðlit Neyðarkalls Landsbjargar. Innlent 7. nóvember 2025 11:02
Mest ánægja starfsfólks í sveitarfélögum á Suðurlandi Mest starfsánægja er í Bláskógarbyggð, Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þetta eru niðurstöður árlegrar könnunar Gallups. Verðlaunin Sveitarfélag ársins voru veitt í gær. Sagt er frá á heimasíðu stéttarfélagsins Kjalar. Innlent 31. október 2025 12:32
Sá látni var á rjúpnaveiðum þegar hann varð fyrir voðaskotinu Karlmaður á sextugsaldri sem lést nærri Apavatni á föstudag var á rjúpnaveiðum við annan mann þegar hann varð fyrir voðaskoti. Enn er unnið að því að safna gögnum af vettvangi á meðan veður leyfir. Innlent 27. október 2025 14:53
Fimmtíu ný störf í Bláskógabyggð vegna nýs baðlóns Fimmtíu ný störf urðu til í Bláskógabyggð í dag þegar nýtt baðlón var opnað í Laugarási. Bygging lónsins kostaði um þrjá milljarða króna en það er allt hið glæsilegasta. Innlent 15. október 2025 19:17