Handhafar Eddu 2004 Edduverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á hótel Nordica þann 14. nóvember 2004. Hlaut kvikmyndin Kaldaljós flest verðlaun. Heiðursverðlaun ÍKSA 2004 hlaut Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður fyrir langan og farsælan feril á sviði heimildamynda, með sérstaka áherslu á náttúru og umhverfi. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 19:56
Takk fyrir Takk fyrir þátttökuna. Nafn þitt fer nú pott og verður dregið úr nöfnum þátttakenda að lokinni kosningu. Einn heppinn þátttakandi fær miða fyrir tvo á verðlaunahátíð Eddunnar á Hótel Nordica sunnudaginn 13. nóvember. Haft verður samband við vinningshafa. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 19:35
Latibær með flestar tilnefningar Tilnefningar til Edduverðlaunanna voru kynntar á blaðamannafundi í hádeginu í dag. Latibær fær flestar tilnefningar eða fimm talsins; Strákarnir okkar, One Point O og Voksne mennesker fá fjórar hver og Stelpurnar og Reykjavíkurnætur þrjár hver. Önnur verk fá tvær eða færri. Stöð2 hlýtur flestar tilnefningar vegna sjónvarpsefnis. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 18:59
Heiðursverðlaunahafi Eddunnar 2005 Vilhjálmur Hjálmarsson fær heiðursverðlaun ÍKSA árið 2005 fyrir framlag sitt til stofnunar Kvikmyndasjóðs Íslands árið 1978. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:50
Tilnefningar til Eddunnar:: Sjónvarpsmaður ársins Hægt er að velja á milli 53 sjónvarpsmanna og kvenna að þessu sinni, konurnar eru 21 og karlarnir 32. Að lokinni kosningu hér á Vísi verður kosið um fimm efstu í SMS-kosningu sem fram fer meðan á á EDDU-hátíðinni stendur, 13. nóvember. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:45
Tilnefningar til Eddunnar:: Hljóð og tónlist Tónlist og hljóðvinnsla þriggja verka er tilnefnd til EDDU-verðlauna í flokknum "Hljóð og tónlist." One Point Zero, Voksne Mennesker og Töframaðurinn. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:42
Tilnefningar til Eddunnar: Útlit myndar Útlit tveggja verka þótti verðskulda tilnefningu til EDDU-verðlauna. Leikmyndin í ONE POINT ZERO, brúðurnar í LATABÆ og búningarnir í LATABÆ. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:38
Tilnefningar til Eddunnar: Myndataka og klipping Myndataka þriggja verka var tilnefnd í flokknum "Myndataka og klipping". Þetta eru GARGANDI SNILLD, HEIMUR KULDANS og LATIBÆR. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:34
Tilnefningar til Eddunnar: Heimildamynd ársins Fimm myndir hlutu tilnefningu í flokknum "Heimildamynd ársins." RITHÖFUNDUR MEÐ MYNDAVÉL eftir Helgu Brekkan, RAGNAR Í SMÁRA eftir Guðnýju Halldórsdóttur, AFRICA UNITED eftir Ólaf Jóhannesson, UNDIR STJÖRNUHIMNI. eftir Helga Felixson og Titti Johnson og GARGANDI SNILLD eftir Ara Alexander. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:26
Tilnefningar til Eddunnar: Leikstjórn ársins Þrír karlar hlutu tilnefningu til EDDU-verðlauna fyrir leikstjórn. Dagur Kári (Voksne Mennesker), Ólafur Jóhannesson (Africa United) og Marteinn Þórsson & Jeff Renfro (1.0). Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:22
Tilnefningar til Eddunnar: Handrit ársins Þrjú verk eru tilnefnd í flokknum "Handrit ársins". Africa United, Voksne Mennesker og Latibær. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:16
Tilnefningar til Eddunnar: Sjónvarpsþáttur ársins Stöð2 og RÚV hlutu tvær tilnefningar hvor og Skjár1 eina tilnefningu í flokknum "Sjónvarpsþáttur ársins." Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:10
Tilnefningar til Eddunnar: Skemmtiþáttur ársins IDOL stjörnuleit 2, Sjáumst með Silvíu Nótt og Það var lagið, hlutu tilnefningu sem "Skemmtiþáttur ársins." Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:06
Tilnefningar til Eddunnar: Tónlistarmyndband ársins Þrjú myndbönd voru tilnefnd í flokknum "Tónlistarmyndband ársins." Whatever með Leaves, Find what you get með Bang Gang og Crazy Bastard með 70mínútur vs.Quarashi. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 16:59
Tilnefningar til Eddunnar: Leikið sjónvarpsefni ársins: Latibær, Stelpurnar og Danskeppnin hlutu öll tilnefningu í flokknum "Leikið sjónvarpsefni ársins." Bíó og sjónvarp 28. október 2005 16:45
Stuttmynd ársins: "Töframaðurinn", "Þröng sýn" og "Ég missti næstum vitið" keppa um EDDU-verðlaunin í flokki stuttmyndar ársins. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 16:40
Kvikmynd ársins: Þrjár myndir keppa um titilinn "Kvikmynd ársins". Voksne Mennesker, Strákarnir okkar og One Point O. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 16:33
Leikari / leikkona í aukahlutverki Fimm karlar eru tilnefndir til verðlauna í flokknum "Leikari / leikkona ársins í aukahlutverki." Bíó og sjónvarp 28. október 2005 16:26
Leikari / leikkona í aðalhlutverki: Fimm listamenn eru tilnefndir til verðlauna í flokknum "Leikari / leikkona ársins í aðalhlutverki," þrjár konur og tveir karlar. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 14:58
Slást um að verða framlag Íslands Kvikmyndirnar Í takt við tímann, sem Ágúst Guðmundsson leikstýrði, og Strákarnir okkar, í leikstjórn Róberts Douglas, munu á næstu dögum berjast um að verða framlag íslenskra kvikmynda til Óskarsverðlaunanna. Það eru meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar sem munu ákveða hvor myndanna verður framlag Íslands. Um 850 manns hafa atkvæðisrrétt en kosið verður daganna 26. og 27. september. Bíó og sjónvarp 22. september 2005 00:01
Dagskrá kvikmyndahátíðar kynnt Dagskrá Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík var kynnt í dag en hátíðin verður opnuð 29. september og stendur til 9. október. Bíó og sjónvarp 21. september 2005 00:01
Ríflega 12 þúsund á Star Wars Alls sáu 12.382 manns þriðju Stjörnustríðsmyndina, Hefnd Sith, hér á landi um síðustu helgi og voru tekjur af myndinni tæpar 10 milljónir íslenskra króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu. Þetta mun vera langstærsta opnun ársins og er myndin langvinsælust í bíó með yfir 70% af heildaraðsókninni. Uppselt var á nánast allar sýningar á föstudag og sunnudag og dagsýningarnar á laugardag. Bíó og sjónvarp 23. maí 2005 00:01
Aldrei fleiri á kvikmyndahátíð Um sextán þúsund manns hafa sótt Íslensku kvikmyndahátíðina, IIFF, á fyrstu tíu sýningardögunum. Í tilkynningu frá hátíðahöldurum segir að hún hafi þar með slegið öll aðsóknarmet fyrri kvikmyndahátíða hérlendis. Bíó og sjónvarp 18. apríl 2005 00:01
Segir Nine Songs ekki klámmynd Nakið og ódulið kynlíf er rauði þráðurinn í kvikmyndinni <em>Nine Songs</em> sem sýnd verður í kvöld á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Aðalleikari myndarinnar segir þetta engan veginn klámmynd heldur raunsæja mynd af sambandi karls og konu og býst hann við að íslenskir áhorfendur taki myndinni vel. Bíó og sjónvarp 15. apríl 2005 00:01
Kvikmyndahátíð sett í kvöld Alþjóðleg kvikmyndahátíð verður sett formlega í Háskólabíói í kvöld og verður opnunarmynd hátíðarinnar <em>Motorcycle Diaries</em> eftir Brasilíumanninn Walter Salles, en hann er kominn sérstaklega til landsins til að vera viðstaddur sýninguna. Myndin var tilnefnd til þrennra Óskarsverðlauna í ár og hlaut verðlaun fyrir bestu tónlistina. Bíó og sjónvarp 7. apríl 2005 00:01
Börkur undirbýr Karfann Fyrsta kvikmynd leikstjórans Barkar Gunnarssonar, hin íslensk-tékkneska Sterkt kaffi, er í sjöunda sæti yfir það mikilvægasta sem gerðist árið 2004 á kvikmyndasviðinu, samkvæmt hinu víðlesna tékkneska dagblaði Nedélní svet. Í efsta sæti er tilnefning tékknesku myndarinnar Zelary til Óskarsverðlauna fyrr á árinu. Bíó og sjónvarp 2. janúar 2005 00:01
Stuðmenn frumsýna Stuðmannamyndin "Í takt við tímann" var frumsýnd í dag í Smárabíói. Myndin er sjálfstætt framhald af vinsælustu íslensku kvikmynd sem gerð hefur verið, "Með allt á hreinu". Persónurnar eru þær sömu, en þær eru orðnar tuttugu árum eldri og búnar að taka ýmsum breytingum. Bíó og sjónvarp 26. desember 2004 00:01
Eddan afhent í sjötta sinn í kvöld EDDU verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á Nordica Hótel í kvöld. Bíó og sjónvarp 14. nóvember 2004 00:01
Kaldaljós kom sá og sigraði Kvikmyndin Kaldaljós eftir Hilmar Oddsson krækti í fimm verðlaun á Edduverðlaunahátíðinni sem haldin var á Hótel Nordica. Kaldaljós var valin mynd ársins, Ingvar E. Sigurðsson var valinn besti leikarinn og Kristbjörg Kjeld besta leikkonan í aukahlutverki. Hilmar Oddsson fékk einnig verðlaun fyrir leikstjórn Kaldaljóss og Sigurður Sverrir Pálsson fyrir besta hljóð og mynd. Bíó og sjónvarp 14. nóvember 2004 00:01
Tilnefnd og ótilnefndur Stórleikkonan Helga Braga og sjónvarpsmaðurinn Kristján Kristjánsson úr Kastljósinu eru kynnar Edduverðlaunanna sem afhent verða á Nordica Hóteli sunnudagskvöldið 14. nóvember. Bíó og sjónvarp 10. nóvember 2004 00:01