

Bíó og sjónvarp
Fréttir af íslenskum og erlendum kvikmyndum og þáttum, bíóbransanum og sjónvarpsframleiðslu.

Sveppi gerir bíómynd
Sjónvarpsmaðurinn Sverrir Þór Sverrisson leitar nú að heppilegum tökustöðum fyrir kvikmynd sem hann hyggst gera.

Milljarðamynd Baltasars hugsanlega tekin á Írlandi
Raunveruleg hætta er á því að víkingamynd Baltasars Kormáks verði ekki tekin upp hér á landi heldur verði veigamestu tökurnar fluttar til Írlands. Þetta segir Leifur B. Dagfinnsson, samstarfsmaður Baltasars við gerð myndarinnar og framleiðandi hjá True North.

Slumdog Millionaire verðlaunuð
Kvikmyndin Slumdog Millionaire í leikstjórn Dannys Boyle hlaut fimm viðurkenningar á gagnrýnendaverðlaununum í Los Angeles, þar á meðal fyrir bestu myndina og besta leikstjórann.

Tilbrigði við Rómeó og Júlíu
Bók danska rithöfundarins Anne Fortier, Julia, hefur vakið mikla athygli og bandaríski leikstjórinn James Mangold hefur þegar tryggt sér kvikmyndaréttinn. Þetta þykja kannski ekki merkileg tíðindi nema að bók Fortier kemur ekki út fyrr en árið 2010.

Týnt barn og breskur krimmi
Janúar og febrúar-dúettinn er í hugum margra leiðinlegasta tvíeyki ársins. Þetta gildir þó ekki um kvikmyndaáhugafólk enda rekur á fjörurnar margar af bestu kvikmyndum hvers árs á þessu tímabili.

Hrifinn af Gomorra
Leikstjórinn Martin Scorsese ætlar að halda áfram að styðja við bakið á ítölsku mafíumyndinni Gomorra, sem er byggð á samnefndri bók Roberto Saviano. Scorsese kom ekki að gerð myndarinnar en tekur engu síður þátt í kynningarherferð hennar.

Dark Knight gæti brotið blað á Óskarnum
Kvikmyndin The Dark Knight gæti brotið blað í sögu Óskarsverðlaunanna því nú telja flestir að hún eigi öruggt sæti meðal þeirra kvikmynda sem tilnefndar verða til Óskarsverðlauna. Í vikunni var tilkynnt að samtök

Í viðræðum við Sly
Forest Whitaker á í samningaviðræðum um að leika í nýjustu hasarmynd Sylvesters Stallone, The Expendables. Whitaker myndi leika starfsmann CIA sem aðstoðar hóp málaliða sem reyna að steypa einræðisherra í Suður-Ameríku af stóli.

Nýjasta mynd írska leikarans Liam Neeson
Liam Neeson hefur átt farsælan feril í kvikmyndabransanum og starfað með leikstjórum á borð við Steven Spielberg, Martin Scorsese og George Lucas. Nýjasta mynd hans er tryllirinn Taken sem verður frumsýndur á morgun.

The Godfather númer eitt
Kvikmyndastofnun Bandaríkjanna hefur sett saman lista yfir bestu myndir allra tíma í landinu í tíu flokkum. Ekki kemur á óvart að mafíumyndin The Godfather náði einu af toppsætunum.

Ekki áhugi á söngleik
Leikkonan Cameron Diaz hefur ekki áhuga á að leika í söngleiknum Shrek á sviði. Diaz, sem talar fyrir prinsessuna Fionu í teiknimyndunum Shrek, er engu síður hrifinn af söngleiknum, sem var frumsýndur á Broadway fyrir skömmu.

Óskar myndar Gæludýrin
Leikstjórinn Óskar Jónasson er með nýja sjónvarpsmynd í burðarliðnum sem verður byggð á skáldsögu Braga Ólafssonar, Gæludýrin. Ólafur Darri Ólafsson mun fara með hlutverk aðalpersónunnar Emils en óvíst er hvenær tökur hefjast.

Gerir mynd um Chavez
Leikstjórinn Oliver Stone er með enn eina forsetamyndina í smíðum. Í þetta sinn hefur Hugo Chavez, forseti Venesúela, orðið fyrir valinu en um heimildarmynd er að ræða sem verður tilbúin á næsta ári.

Ben Stiller í stað Ruffalo
Leikarinn Ben Stiller mun hlaupa í skarðið fyrir Mark Ruffalo í dramatísku gamanmyndinni Greenburg sem verður tekin upp á næstunni. Ekki er vitað af hverju Ruffalo verður ekki með í myndinni en líklegt er að dauði bróður hans, Scotts, eigi þar hlut að máli. Scott lést í Beverly Hills í síðustu viku eftir að hafa skotið sig í höfuðið í rússneskri rúllettu.

Þrjár myndir með fimm tilnefningar
Kvikmyndirnar The Curious Case of Benjamin Button, Frost/Nixon og Doubt fengu flestar tilnefningar til Golden Globe-verðlaunanna, eða fimm talsins. Meryl Streep og Kate Winslet hlutu tvær tilnefningar hvor, Streep fyrir

Leitar að týndri borg
James Gray hefur samþykkt að leikstýra nýjustu mynd Brads Pitt, The Lost City of Z. Um epíska ævintýramynd er að ræða sem er byggð á bók Davids Grann um sannsögulega atburði. Fjallar hún um breska hermanninn Percy Fawcett sem varð heltekinn af leit sinni að hinni týndu borg Z í Amazon-frumskóginum. Árið 1925 fór hann ásamt syni sínum í leiðangur til að finna Z og sneru þeir feðgar aldrei aftur úr svaðilförinni. Síðasta mynd í leikstjórn James Gray, We Own the Night, kom út fyrr á árinu með Mark Wahlberg og Joaquin Phoenix í aðalhlutverkum.

Klaatu til bjargar
Kvikmyndir um heimsendi og yfirvofandi eyðileggingu jarðar hafa ávallt verið vinsælt umfjöllunarefni í Hollywood. The Day the Earth Stood Still, sem verður heimsfrumsýnd á morgun, er einmitt boðberi válegra tíðinda. The Day the Earth Stood Still er endurgerð samnefndrar myndar frá árinu 1951. Nýja myndin fjallar um virtan vísindamann (Jennifer Connelly) sem kemst í kynni við geimveruna Klaatu (Keanu Reeves) sem hefur ferðast til jarðar til að vara við hnattrænu vandamáli sem er yfirvofandi.

Fékk nóg af topp tíu listum
Bandaríski kvikmyndagagnrýnandinn Roger Ebert hefur á heimasíðu sinni birt lista yfir tuttugu bestu myndir ársins. Myndirnar eru hafðar í stafrófsröð enda telur hann ekki lengur við hæfi að númera myndir frá einum upp í tíu.

Á toppnum í tvær vikur
Gamanmyndin Four Christmases hélt efsta sætinu yfir aðsóknarmestu myndirnar vestanhafs um síðustu helgi. Reese Witherspoon og Vince Vaughn leika aðalhlutverkin í myndinni sem fjallar um par sem þarf að heimsækja fjórar fjölskyldur foreldra sinna á einum degi.

Leigjandi í vanda
Hilary Swank hefur tekið að sér aðalhlutverkið í spennumyndinni The Resident og hefjast tökur í maí næstkomandi. Þetta verður jafnframt fyrsta kvikmynd finnska leikstjórans Antti J. Jokinen. Hann hefur áður leikstýrt tónlistarmyndböndum fyrir Will Smith, Beyonce, Eminem, Korn og Celine Dion.

Stefnir stórstjörnum til Íslands
Stefnt er að því að fá þau Jake Gyllenhaal, Natalie Portman og Toby Maguire til að vera viðstödd frumsýningu kvikmyndarinnar Brothers hér á landi. Framleiðandi kvikmyndarinnar er Sigurjón Sighvatsson og staðfesti hann þetta í samtali við Fréttablaðið. Tökum á kvikmyndinni er nú lokið og segir Sigurjón að stefnan sé sett á kvikmyndahátíðina í Cannes hvað heimsfrumsýningu varðar.

Langar að leika Þór
Skoski leikarinn Kevin McKidd er í viðræðum um að leika í hasarmyndinni Thor sem er byggð á samnefndri teiknimyndasögu. Sú saga segir frá ævintýrum norræna þrumuguðsins Þórs.

Depp í Dante-mynd
Framleiðslufyrirtæki Johnnys Depp, Infinitum Nihil, hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á skáldsögu Nicks Tosches, In the Hands of Dante. Depp mun líklega fara með aðalhlutverkið.

Óvæntar vinsældir Twilight
Ævintýramyndin Twilight verður frumsýnd hérlendis í kvöld. Myndin, sem fór beint á toppinn í Bandaríkjunum, fjallar um ástarsamband unglingsstúlku og vampíru og er byggð á metsölubók Stephanie Meyer.

Labeouf í lagatrylli
Ungstirnið Shia LaBeouf hefur hreppt aðalhlutverkið í lagatryllingnum The Associate sem er byggð á samnefndri bók Johns Grisham. Í myndinni leikur LaBeouf nemanda sem er við það að útskrifast úr lagadeild Yale-háskóla þegar hann hefur störf hjá virtu lagafyrirtæki.

Jólamynd í efsta sæti
Gamanmyndin Four Christmases með Reese Witherspoon og Vince Vaughn í aðalhlutverkum fór beint í efsta sætið á aðsóknarlistanum vestanhafs um síðustu helgi.

Til í framhaldsmynd
Meryl Streep segist vera tilbúin til að gera framhaldsmynd af kvikmyndinni Mamma Mia. Myndin, sem er byggð á tónlist sænsku hljómsveitarinnar Abba, hefur slegið í gegn út um allan heim og er nú komin út á DVD.

Roger Moore ánægður með Craig
Roger Moore segir að Daniel Craig hafi tekist sérlega vel upp í hlutverki njósnarans James Bond og telur að ferskir vindar leiki nú um persónuna. Moore, sem lék Bond sjö sinnum á áttunda og níunda áratugnum, segir að frammistaða Craig í myndunum Munich og Sylvia hafi nýst honum í Bond-hlutverkinu.

Höfundur í feluhlutverki
Jeff Lindsey, höfundur bókanna um Dexter, er afar hrifinn af sjónvarpsþáttunum sem eru byggðir á verkum hans. Til að sýna stuðning sinn í verki ákvað hann að koma fram í feluhlutverki í nýjasta þættinum sem verður sýndur í Bandaríkjunum á sunnudaginn.

Benjamin fær frábæra dóma
Nýjasta mynd Davids Fincher, The Curious Case of Benjamin Button, fær frábæra dóma á bandarísku kvikmyndasíðunum Variety.com og Hollywoodreporter.com.