

Nýjustu fréttir, fróðleikur og skemmtileg myndbönd sem tengjast bílum.
Sænsk stjórnvöld ætla að herða verulega losunarskilyrði fyrir ívilnunum til kaupa á vistvænni bifreiðum. Hætt verður að niðurgreiða stærri tengitvinnbíla og dýra rafbíla.
Nú með haustinu fer fólk að huga að vetrarhjólbörðum og margir kjósa að aka um á negldum dekkjum, sumir af gömlum vana og aðrir í von um aukið öryggi í hálku og snjó. En er vonin byggð á raunverulegum gögnum? Eru nagladekk nauðsynlegt öryggistæki?
Árið 2012 var fjöldi nýskráðra rafmagnsbíla 32 samanber 2.925 árið 2020 sem er um 20% af nýskráðum bifreiða á landinu það árið. Ljóst er að þeim mun eingöngu fjölga þar sem áætlað er að Ísland verði að fullu raforkuvætt við orkuskiptin um 2030.
Lítið er fjallað um efni og eðli trygginga á opinberum vettvangi þó við séum öll vel tryggð og njótum ríkrar tryggingaverndar hér á landi í samanburði við mörg önnur ríki. Reglulega birtist þó gagnrýni á tryggingafélögin vegna þess kostnaðar sem við berum vegna þeirrar tryggingaverndar sem við njótum. Verður þessi umfjöllun oft heldur einhliða því líkt og lífið sjálft er málið ekki eins einfalt og virðist í fyrstu.
Ralf Brandstätter, yfirmaður Volkswagen hefur staðfest að fyrirtækið hyggist framleiða ID.X sem er hraðskreiður rafhlaðbakur, væntanlegur á markað á næsta ári. Hann verður um 329 hestöfl.
Karlmaður um fimmtugt slasaðist þegar ekið var á hann á horni Tryggvagötu og Geirsgötu í miðborg Reykjavíkur síðdegis í dag.
Ákvæði um tvöföldun svonefnds vanrækslugjalds óskoðaðra ökutækja hefur verið fellt úr reglugerð um skoðun ökutækja.Grunnfjárhæð gjaldsins verður óbreytt.
Volvo vörubílar eru þeir vinsælustu á Íslandi árið 2021 og hefur salan aukist meira en 240% það sem af er ári og trónir Volvo í þremur toppsætum á árinu. Volvo vörubílar eru mest seldir á heildarmarkaði vörubíla, mest seldir í flokki vörubíla yfir 16 tonn og Volvo FH16 er mest selda einstaka gerðin.
Skoda Enyaq iV er fimm manna rafjepplingur sem er ætlað að virka fyrir fjölskyldufólk og vera umhverfisvænn á meðan. Bíllinn er smekklega hannaður og vel samsettur, auk þess sem hann er rúmgóður.
Flestar nýskráningar í ágúst voru á bílar framleiddir af Kia eða 143, Toyota var í örðu sæti með 134 nýjar bifreiðar nýskráðar. Hyundai í þriðja sæti með 77 nýskráningar.
Bílatryggingar hafa hækkað mjög á síðustu árum á sama tíma og bæði umferðarslysum og slösuðum einstaklingum í umferðinni fækkar. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) gagnrýnir tryggingarfélögin, lífeyrissjóðina og fjármálaeftirlitið fyrir að leyfa þessari þróun að viðgangast.
Tryggingafélögin græða á tá og fingri eins og viðskiptafréttir bera með sér. Kemur auðvitað ekki á óvart, viðskiptamódelið er skothelt: Engin verðsamkeppni, stöðug hækkun iðgjalda, minnkandi kostnaður og velþóknun stjórnvalda.
Kia frumsýndi í gær fimmtu kynslóð hins vinsæla Sportage sem verið hefur einn söluhæsti bíll bílaframleiðandans undanfarin ár. Nýr Kia Sportage er sérstaklega hannaður fyrir Evrópumarkað því í fyrsta skipti í 28 ára sögu Sportage kemur sérstök Evrópu útfærsla af bílnum.
Ford F-150 Lightning er hreinn raf-pallbíll frá Ford. Nú hefur Ford sýnt undirvagn og rafhlöður bílsins. F-150 Lightning er framlag Ford í kapphlaupið um fyrsta raf-pallbílinn.
Sex kappaksturskonur í W-Series tímatöku lentu í árekstri eftir að hafa allar misst stjórn á bílum sínum hver fyrir sig. Þær hafa allar farið í gegnum læknisskoðun og eru við góða heilsu, samkvæmt tilkynningu frá W-Series.
Tesla deildi nýju myndbandi á Weibo síðu sinni sem sýnir alla framleiðslu Tesla í Gígaverksmiðjunni í Sjanghæ. Þar er að mestu leyti að verið að framleiða Model Y.
Orka náttúrunnar (ON) hefur stefnt Ísorku og Reykjavíkurborg til að freista þess að fá niðurstöðu kærunefndar útboðsmála fellda úr gildi. Vonast fyrirtækið til að geta opnað 156 götuhleðslur fyrir rafbíla á ný.
Þann 1. maí hækkaði grunnfjárhæð vanrækslugjalds vegna óskoðaðra ökutækja úr 15.000 í 20.000 krónur. Þá fer gjaldið í 40.000 krónur vegna fólksflutningabíla fyrir níu farþega eða fleiri, vöruflutningabíla eða aftanívagna yfir 3,5 tonn.
Kia verður mjög áberandi með nýjustu rafbíla sína á alþjóðlegu bílasýningunni IAA Mobility sem haldin verður í fyrsta skipti í Munchen 7-12 september nk. Kia mun frumsýna tvo spennandi rafbíla á sýningunni; glænýjan EV6 rafbíl sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu og nýja kynslóð af Sportage sem kemur nú í Plug-in Hybrid útfærslu.
Porsche Taycan 4S Cross Turismo er fjórhjóladrifinn rafbíll sem hefur 93,4 kWh drifrafhlöðu. Hann er rétt rúmlega fjórar sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/klst. Bíllinn fór frá kyrrstöðu í 200 km/klst á tæpum 13 sekúndum.
Kia EV6 rafbíll mun hafa allt að 528 km drægni samkvæmt WLTP staðli. Þetta er enn meiri drægni en búist var við en upphaflega átti rafbíllinn að draga 510 km á rafhlöðunni. Nú er ljóst að það bætist við drægnina sem eru sannarlega góðar fréttir fyrir væntanlega kaupendur sem búast má við að verði margir enda er mikil eftirvænting eftir bílnum sem er þegar kominn í forsölu hjá Bílaumboðinu Öskju.
Hyundai á Íslandi frumsýnir á morgun, laugardag milli kl. 12 og 16 fólksbílinn Bayon sem er nýjasta viðbót framleiðandans hér á landi. Bayon er ríkulega búinn bíll með góðri veghæð og hárri yfirbyggingu í ætt við jepplinga, þar sem sest er beint inn og setið hátt.
Joe Biden, Bandaríkjaforseti hélt nýverið ræðu fyrir utan Hvíta húsið þar sem hann talaði um að helmingur sölu á nýjum bílum í Bandaríkjunum muni vera rafbílar fyrir lok ársins 2030. Viðstaddir ræðuna voru helstu yfirmenn Ford, General Motors og Stellantis. Þar á meðal framkvæmdastjóri GM, Mary Barra. Biden sagði við tilefnið að hann hefði samið við Barra um að fá að vera fyrstur til að keyra rafdrifna Corvette C8.
Lokaumferð Íslandsmótsins í torfæru fór fram á Akureyri á laugardag. Í götubíla flokki varð Steingrímur Bjarnason á Strumpnum hlutskarpastur, hann tryggði sér einnig Íslandsmeistaratitilinn í götubílaflokki, auk þess sem hann hlaut tilþrifaverðlaun. Atli Jamil Ásgeirsson á Raptor varð efstur í sérútbúna flokknum á Akureyri. Skúli Kristjánsson á Simba var þegar búinn að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í flokki sérútbúinna bíla.
Team Spark, kappaksturs- og hönnunarlið Háskóla Íslands, afhjúpaði í dag nýjan rafknúinn kappakstursbíl sem liðið hefur unnið að undanfarin tvö ár í krefjandi aðstæðum kórónuveirufaraldursins.
Bugatti hefur staðfest að það muni framleiða hinn ægilega Bolide, það er næstum ár síðan stafræn útgáfa af hugmyndabílnum var kynnt.
Tæplega fjórum sinnum dýrara verður fyrir íbúa miðbæjarins að leggja bíl í grennd við heimili sín en áður, eftir að gjöld hækka fyrir íbúakort. Íbúar eru ekki á eitt sáttir við hækkunina.
Jean Todt, forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) fékk einstakt tækifæri í Íslandsheimsókn sinni. Hann fékk að skoða torfærubílinn Heklu sem Haukur Viðar Einarsson tók til kostanna fyrir augum Todt í Hafnarfirði.
Kærunefnd útboðsmála hefur hafnað því að fresta áhrifum úrskurðar síns um ólögmæti útboðs Reykjavíkurborgar á götuhleðslum fyrir rafbíla. Þá hefur nefndin hafnað því að taka málið upp að nýju.
Audi tilkynnti nýlega að þýski framleiðandinn ætlaði sér að keppa í Dakar rallinu á næsta ári. Bíllinn sem Audi ætlar að nota er Audi RS Q e-tron, rafbíll með tvo mótora úr Formúlu E bíl Audi.