Skýrt brot á vopnahléssamkomulagi
Stjórnvöld í Íran segja árásir Ísraelshers í Líbanon skýrt brot á vopnahléssamkomulagi þeirra og Bandaríkjanna. Um tvö hundruð manns féllu í árásum gærdagsins. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sagði í færslu á samfélagsmiðlum í dag að hann hefði þó beðið ríkisstjórn sína um að hefja viðræður við stjórnvöld í Líbanon sem fyrst - sem eigi meðal annars að lúta að afvopnun Hesbollah-samtakanna og friðaráætlun.