Eldur í Toppstöðinni

Eldur kviknaði í Toppstöðinni í Elliðaárdal skömmu eftir klukkan eitt í dag. Töluverður viðbúnaður var á svæðinu en eldurinn kviknaði út frá einhverskonar raftæki inni í húsinu. Að sögn varðstjóra barst tilkynning um málið skömmu eftir að eldurinn hafði kviknað og því tókst að slökkva eldinn áður en hann breiddi frekar úr sér. Einungis þrjár mínútur hafi liðið frá því að slökkviliðið mætti á svæðið og þar til búið var að slökkva eldinn.

10
01:11

Vinsælt í flokknum Fréttir