Ekkert vanmat í gangi hjá Chelsea gegn Nordsjælland
Öll spjót standa að Rafael Benítez og Evrópumeistaraliði Chelsea fyrir lokaumferðina í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Enska liðið er með bakið upp við vegg fyrir leikinn gegn danska liðinu Nordsjælland í E-riðli keppninnar. Chelsea þarf á sigri að halda til að komast áfram og treysta á að Juventus tapi. Benítez sagði á blaðamannafundi fyrir leikinn að Chelsea bæri virðingu fyrir danska liðinu.