Tvennum sögum fer af friðarviðræðunum

Tvennum sögum fer af friðarviðræðum milli stjórnvalda í Bandaríkjunum og Íran. Bandaríkjaforseti heldur því fram að ráðamenn ríkjanna hafi átt í uppbyggilegu samtali síðustu daga og því hafi verið ákveðið að fresta fyrirhugaðri stórárás á orkuinnviði í Íran. Á sama tíma er haft eftir utanríkisráðuneyti Íran að engar slíkar viðræður séu í gangi og fullyrt að Bandaríkjamenn séu með þessum yfirlýsingum að reyna að hafa áhrif á olíuverð og róa markaði.

1
01:11

Vinsælt í flokknum Fréttir