Markmiðið að styrkja náin tengsl Íslands og Færeyja

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, komu í dag til Færeyja í þriggja daga opinbera heimsókn í boði lögmanns Færeyja og eiginkonu hans. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja náin tengsl Íslands og Færeyja og vinna að frekara samstarfi, meðal annars á sviði sjávarútvegs, orkumála, nýsköpunar og menningarmála.

215
01:47

Vinsælt í flokknum Fréttir