Jökull óvænt kominn aftur heim: „Elska pressuna“
Það eru margir sem ráku upp stór augu þegar að Afturelding greindi frá því að markvörðurinn Jökull Andrésson kæmi á láni til félagsins frá enska liðinu Reading. Þar með tekur hann slaginn með liðinu í Lengjudeildinni út tímabilið. Það eru margir á því að Jökull gæti spilað á hærra getustigi. Hann elskar hins vegar pressuna sem fylgir því að vera kominn aftur í uppeldisfélagið hér í Mosfellsbæ.