Óttast að útbreiðslan sé hraðari en áður var talið

Óttast er að útbreiðsla ebólufaraldurs í Austur-Kongó sé mun hraðari en áður var talið. Að minnsta kosti hundrað þrjátíu og einn er látinn og yfirvöld hafa sagt að yfir fimm hundruð hafi smitast. Ný gögn eru hins vegar sögð benda til þess að yfir eitt þúsund manns hafi þegar smitast og að alvarleiki stöðunnar hafi verið vanmetinn.

6
00:47

Vinsælt í flokknum Fréttir