Sláandi hljóðupptökur

Aðalmeðferð frelsissviptingarmáls sem oftast er kennt við Reykholt hófst við Héraðsdóm Suðurlands í dag. Sex eru ákærð fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti í apríl 2024. Einn hinna ákærðu mætti fyrir dóm í dag og spilaðar voru hljóðupptökur úr farsíma hans. Í þeim mátti heyra hann ræða við ýmsa um meinta frelsissviptingu og leggja á ráðin með unnustu sinni og yngri bróður. Hann vildi hvorki gefa skýrslu fyrir dómi né láta bera neitt undir sig. Allir hinna ákærðu neituðu við þingfestingu málsins í mars. Reiknað er með því að aðalmeðferð taki sjö daga.

0
00:44

Vinsælt í flokknum Fréttir