Sögðu eigendurna sýna þjóðarmorði stuðning með veggmynd
Eigendur kaffihússins og sætabrauðsverslunarinnar Lava Sweet við Hafnargötu í Keflavík segja fjóra menn hafa ógnað starfsmanni staðarins og valdið tjóni eftir að hafa séð að á veggnum var kort af Palestínu með vinsælu slagorði. Eigendur staðarins eru Palestínumenn.