Fiskeldi – best heppnaða byggðaaðgerð Íslands Daníel Jakobsson skrifar 4. nóvember 2026 16:31 Best heppnaða byggðaaðgerðin Í rúma tvo áratugi var saga Vestfjarða saga fólksfækkunar. Árið 1998 bjuggu 8.556 manns á Vestfjörðum. Árið 2016 voru þeir 6.883. Fimmti hver íbúi var farinn á brott. Á þessum árum var margt reynt. Byggðakvóti, Brothættar byggðir, flutningsjöfnun, sóknaráætlanir og nefndir um framtíð svæðisins. Allt var þetta vel meint en straumurinn lá áfram suður. Svo gerðist eitthvað. Frá 2016 hefur íbúum Vestfjarða fjölgað um nær 9%. Á síðasta ári fjölgaði þeim um 2,3%, næstmest allra landshluta. Það sem breyttist var ekki ný byggðaáætlun. Það var laxeldi. Tölurnar tala sínu máli Árið 2014 nam útflutningur á eldislaxi 2,5 milljörðum króna. Í ár stefnir hann í 59 milljarða. Á sama tíma snerist íbúaþróunin við. Ferlarnir haldast í hendur. Þegar framleiðslan tók kipp eftir 2016 tók íbúafjöldinn að vaxa, og hann hefur vaxið síðan. Þetta sést líka á fasteignamarkaðnum. Fyrir áratug var vart hægt að byggja hús á Vestfjörðum því húsið var minna virði en byggingarkostnaðurinn. Nú hækkar fasteignamat íbúðarhúsnæðis mest á Vestfjörðum af öllum landshlutum um 4,6% milli ára á meðan það hækkar um 1% á höfuðborgarsvæðinu. Fólk fjárfestir þar sem það sér framtíð. Auðvitað sannar fylgni ekki orsök. En þegar ein atvinnugrein skapar 400–500 störf í landshluta sem misst hafði fimmta hvern íbúa, þarf ekki að leita lengi að skýringunni. Engin önnur aðgerð státar af slíku Ég var bæjarstjóri á Vestfjörðum og þekki byggðaaðgerðir ríkisins vel. Margar þeirra hafa skipt máli fyrir einstök byggðarlög. En árangur af þessari stærðargráðu, heilum landshluta sem snýr við áratugalangri fólksfækkun, þekki ég engin dæmi. Munurinn er einfaldur. Flestar byggðaaðgerðir dreifa fjármunum ríkisins. Fiskeldið skapar verðmæti sem ekki voru til áður. Greinin hefur skapað yfir 900 bein og óbein störf um allt land og ætla má að 400–500 þeirra séu á Vestfjörðum. Launagreiðslur beinar og óbeinar nema nú um 14 milljörðum króna á ári. Fyrirtækin hafa fjárfest fyrir um 50 milljarða króna á síðustu árum, og þá fjármuni lögðu hluthafar fram, ekki skattgreiðendur. Starfsfólkið eru dýralæknar, líffræðingar, verkfræðingar, skipstjórar, verka- og tæknifólk. Þetta eru störf sem ungt fólk gat ekki fundið fyrir vestan fyrir tíu árum. Nú flytur það heim og nýir bætast við. Þrátt fyrir skattana, ekki vegna þeirra Allt þetta hefur gerst þótt ríkið hafi lagt þunga skatta á greinina. Fiskeldisgjald og umhverfisgjald nema í ár hátt í 3 milljörðum króna. Á sama tíma hefur greinin í heild verið rekin með tapi. Frá 2021 hefur uppsafnað tap hennar numið um 19 milljörðum króna en sértæk gjöld á sama tíma voru um 11 milljarðar. Þetta er ekki það sem lagt var upp með árið 2019 þegar breytt lög um lagareldi voru samþykkt. Þá var lagt upp með að gjaldið tæki mið af afkomu greinarinnar, í þrepum. Lágt afurðaverð átti að þýða lágt gjald, 0,5% af viðmiðunar verði. Hátt verð og góð framlegð áttu að þýða hærra gjald. Vandinn er sá að viðmiðin sem ráða þrepunum voru fest í evrum árið 2019 og hafa ekki fylgt framleiðslukostnaði. Síðan hefur kostnaður við að framleiða hvert kíló af laxi hækkað verulega. Því er greinin nú í hæsta þrepi, sem hækkað var í 4,3% af reiknuðum tekjum árið 2023, þótt framlegðin sé í raun sú lægsta sem lögin gerðu ráð fyrir. Afleiðingin er sú að við greiðum 42 krónur af hverju kílói í ár. Hefði hugmyndafræði laganna frá 2019 verið fylgt væri gjaldið um 5 krónur, eða einn áttundi af því sem það er nú. Fyrir vestfirsku fyrirtækin skiptir munurinn milljörðum. Stórt mál fyrir allt landið Sjóeldi stendur nú undir um 7% af vöruútflutningi Íslands. Ísland er orðið sjötta stærsta laxeldisþjóð heims. Framleiðslan jókst um 30% milli ára. Við erum í takt við heiminn. Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) hvetur til aukins fiskeldis til að fæða vaxandi mannfjölda með sjálfbærum hætti. Árið 2022 kom í fyrsta sinn meira af fiski og skeldýrum úr eldi en úr veiðum á heimsvísu. Fáar þjóðir eru í betri stöðu til að nýta þetta tækifæri en Íslendingar. Við kunnum að vinna með hafið, við kunnum að selja fisk og við kunnum að byggja upp tækni í kringum hann. Áhrifin ná langt út fyrir firðina. Íslensk tæknifyrirtæki, verktakar, flutningsaðilar og þjónustufyrirtæki um allt land selja greininni vörur og þjónustu fyrir milljarðatugi á ári. Skattaspor greinarinnar, þar með talið útsvar, greiðslur í lífeyrissjóð og skattar af launum, er áætlað um 11 milljarðar króna á ári. Klárum löggjöfina Frumvarp um lagareldi var lagt fram á Alþingi í mars. Atvinnuveganefnd afgreiddi það með meirihlutaáliti í júní, en það komst ekki til annarrar umræðu fyrir þinglok. Nú hefur ekki verið ákveðið hvort það verði endurflutt. Ég hvet atvinnuvegaráðherra til að leggja málið fram aftur sem fyrst og klára það. Það er rétt að ekki voru allir á einu máli um öll atriði á lokametrunum í Þinginu í vor. En um meginefnið ríkir breiðari sátt en í flestum stórum málum. Greinin og umhverfisverndarsamtök geta bæði unnið með því. Sveitarfélögin hafa hvatt til að frumvarpið verði afgreitt. Bæði meiri- og minnihluti á þingi virðast styðja það í megindráttum. Andstæðan kemur fyrst og fremst frá þeim sem vilja banna sjókvíaeldi alfarið. Tvennt skiptir mestu máli. Í fyrsta lagi þarf greinin fyrirsjáanleika. Enginn fjárfestir milljarðatugi án þess að vita hvaða reglur gilda eftir fimm ár. Í öðru lagi þarf að leiðrétta gjaldtökuna þannig að hún hamli ekki uppbyggingu og sé sjálfbær. Sem sagt gjald sem tekur mið af afkomu, ekki af gamalli evrutölu. Við höfum sýnt að fiskeldi getur snúið við þróun heils landshluta. Með skynsamlegri umgjörð getur greinin skapað aðra 50 milljarða króna í útflutningstekjur og önnur 1.000 störf á næstu árum. Það er byggðaaðgerð sem kostar ríkið ekki krónu, aðeins pennastrik. Nú er lag. Höfundur er forstjóri Arctic Fish Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fiskeldi Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Fiskeldi – best heppnaða byggðaaðgerð Íslands Daníel Jakobsson skrifar Skoðun Haltu bara í þér Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Íslenskukunnátta er sameiginleg ábyrgð Helga Rósa Másdóttir,Wendill Galan Viejo skrifar Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun