Viðskipti innlent

Frá Ís­lands­banka til Íslandssjóða

Atli Ísleifsson skrifar
Orri Heiðarsson.
Orri Heiðarsson.

Íslandssjóðir hafa ráðið Orra Heiðarsson sem sjóðstjóra í hlutabréfastýringu.

Í tilkynningu segir að Orri komi til Íslandssjóða frá verðbréfamiðlun Íslandsbanka en áður hafi hann starfað hjá Fossum fjárfestingarbanka og Kviku banka. 

„Hann hefur góða þekkingu á íslenskum fjármálamarkaði og reynslu af greiningu og miðlun bæði hlutabréfa og skuldabréfa. Öguð vinnubrögð hans og fagleg nálgun falla vel að áherslum Íslandssjóða.

Orri er með B.Sc.-gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur auk þess lokið prófi í verðbréfaviðskiptum,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×