Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Freyja Þórisdóttir skrifar 1. nóvember 2026 07:23 Í athugasemd veðurfræðings segir um morgundaginn: Áfram súld eða rigning með köflum sunnan- og vestanlands, en þurrt að mestu í öðrum landshlutum. Vísir/Vilhelm Víðáttumikil hæð vestur af Írlandi stjórnar veðrinu hjá okkur hér á Íslandi í dag en það hlýnar smám saman og svo gengur úrkomubakki inn yfir vesturhluta landsins í kvöld með samfelldri rigningu. Áttin verður suðlæg eða suðvestlæg og víða 5 til 13 metrar á sekúndu.
Þá verður dálítil væta á köflum yfir daginn en lengst af þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti verður á bilinu 4 til 9 stig seinnipartinn. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands en þar segir einnig að áfram hlýni. Spákort klukkan tíu í kvöld.Veðurstofan Á morgun er von á hlýrri suðlægri átt þegar lægð yfir Suður-Grænlandi og hæðin við Bretlandseyjar beina henni hingað. Útlit fyrir kalda eða strekking víða og allhvasst í vindstrengjum á norðaustanverðu landinu. Áfram súld eða rigning með köflum sunnan- og vestanlands en þurrt að mestu í öðrum landshlutum, hiti 7 til 15 stig og hlýjast fyrir austan. Framan af þriðjudegi er svo útlit fyrir áframhaldandi stífa sunnanátt með vætusömu veðri um landið sunnan- og vestanvert, en eftir hádegi dregur bæði úr vindi og úrkomu. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á mánudag: Sunnan 8 til 15 m/s, en hvassara í vindstrengjum á norðvestanverðu landinu. Súld eða rigning með köflum sunnan- og vestanlands, annars þurrt að mestu. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast á Austurlandi.Á þriðjudag: Sunnan 10 til 18 og rigning eða súld, en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Áfram hlýtt. Snýst í hægari vestanátt vestanlands eftir hádegi, dregur úr vætu og kólnar.Á miðvikudag: Suðvestan 5 til 13, en hægari eftir hádegi. Skýjað með köflum og líkur á smáskúrum, en bjart að mestu um landið austanvert. Hiti 1 til 8 stig að deginum.Á fimmtudag: Suðlæg átt og rigning eða súld með köflum, en þurrt að mestu á Norður- og Austurlandi. Hlýnar í veðri.Á föstudag: Suðvestanátt og skúrir, en þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 2 til 8 stig.Á laugardag: Útlit fyrir suðvestlæga átt með rigningu um landið vestanvert.
Veður Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Sjá meira