Skoðun

Er öryggi barna sökkvandi skip?

Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Öryggisreglur gera lítið gagn um borð í skipi ef björgunarbúnaðurinn er óaðgengilegur, áhöfnin óþjálfuð og enginn veit hver á að bregðast við eða hvernig.

Það sem kemur æ skýrar fram í rannsóknum um ofbeldisforvarnir er að reglur, verklag, fræðsla, stefnur og áætlanir duga ekki einar og sér. Þær eru auðvitað nauðsynlegar, en raunverulegt öryggi barna ræðst af því hvernig fullorðið fólk bregst við í daglegu starfi, hvaða hegðun er liðin og hvort barn sem segir frá ofbeldi upplifir að því sé trúað og að brugðist sé við. Það skiptir líka öllu máli að við séum tilbúin að viðurkenna mikilvægi þess að skoða aðstæðurnar sem geta gert börn berskjölduð fyrir ofbeldi. Aukin hætta á ofbeldi skapast meðal annars þegar valdaójafnvægi er óeðlilegt, mörk í samskiptum eru óskýr og lítið er gert úr áhyggjum barna. Börn standa jafnframt verr að vígi þegar þau skortir traust tengsl og aðgengilegan stuðning, vita ekki hvert þau geta leitað eða óttast afleiðingar þess að segja frá. Það er alltaf ákveðið valdaójafnvægi á milli fullorðinna og barna, sem er tilkomið vegna þess að börn eru að mörgu leyti algjörlega upp á okkur komin varðandi líf sitt, þroska, öryggi og vernd. Það er okkar að gæta þess að valdið sem við höfum yfir aðstæðum barna sé nýtt til að vernda þau og styðja og að við séum reiðubúin að svara fyrir hvernig við beitum því.

Fyrir skipulagt starf með börnum vekur þetta upp mikilvægar spurningar um hvernig farið er með þetta óhjákvæmilega valdamisræmi, hvaða framkoma er liðin og hvort börn geti leitað til trausts fullorðins sem bregst við. Reglur um öryggi barna þurfa að endurspeglast í öllum daglegum aðstæðum og daglegu umhverfi vegna þess að ofbeldi getur þrifist í menningu þar sem niðurlæging, hótanir, þvingun og harkaleg framkoma eru réttlætt með aga, árangri, menningu eða hefðum. Þar skiptir stuðningur starfsfólks, sanngjarnar og skýrar reglur og góð jafningjatengsl barna öllu máli, og ýta líka undir meiri trú barna á eigin getu til að leita sér hjálpar ef þau þurfa á að halda.

Þegar barn leitar svo hjálpar eða segir frá vanlíðan sinni eða ofbeldi geta viðbrögð fullorðinna haft langvarandi áhrif á líðan þess. Að finna að því sé trúað, að frásögn þess sé tekin alvarlega og að það fái viðeigandi vernd og stuðning getur stuðlað að bata og dregið úr sálrænum afleiðingum ofbeldisins. Vantrú, þöggun og óljós eða engin viðbrögð geta hins vegar aukið skaðann stórkostlega. Viðbrögð fullorðinna geta því ráðið úrslitum um það hvort barnið endurheimtir öryggi og traust eða situr eftir með enn meiri skaða. Við þurfum að nota valdið okkar vel.

Þetta hefur beina þýðingu fyrir allt skipulagt starf með börnum og ungmennum, hvort sem það fer fram í skólum, frístundaheimilum, félagsmiðstöðvum, íþróttafélögum eða annars staðar. Þar skiptir öllu máli að öryggi barna sé sýnilegt í daglegri framkvæmd, í öllum samskiptum, í skýrri ábyrgð fullorðinna og viðbrögðum. Það nægir ekki að geta sýnt fram á að til séu stefnur, reglur, verkferlar eða viðbragðsáætlanir, það þarf líka að kanna hvort starfsfólkið þekki ábyrgð sína, hvort börnin viti hvert þau geta leitað, hvort þau treysti því að á þau verði hlustað og hvort frásögn barns eða tilkynning leiði raunverulega til stuðnings og viðeigandi viðbragða.

Við myndum ekki senda börn um borð í skip án þess að ganga úr skugga um að öryggi þeirra væri tryggt, og engu okkar dytti í hug að telja skip öruggt einungis vegna þess að það eru til öryggisreglur um borð. Björgunarvestin þurfa að vera aðgengileg, áhöfnin þarf að þekkja hlutverk sitt og öll þurfa að vita hvert þau eiga að leita og hvað þau eiga að gera þegar hætta steðjar að. Það sama á við um vernd og öryggi barna.

Stefnur, reglur og viðbragðsáætlanir skipta sannarlega máli, en þær vernda ekki barn nema starfsfólk þekki ábyrgð sína, börnin viti hvert þau geta leitað og frásögn eða tilkynning leiði til raunverulegs stuðnings og viðeigandi viðbragða. Það á líka við þegar barn segir frá ofbeldi. Þá þarf að vera alveg skýrt hver tekur við frásögninni, hver tryggir öryggi barnsins og hvernig stuðningi og eftirfylgni verður háttað. Barnið þarf að fá að vita hvað gerist næst og til hvers það getur leitað á meðan. Skráningu og tilkynningu þarf að fylgja markviss eftirfylgni þar sem hugað er að líðan barnsins, stuðningsþörfum þess og því hvort það sé raunverulega öruggara í daglegu umhverfi sínu.

Raunverulegt mat á gæðum og öryggi verður því líka að ná til reynslu barnanna sjálfra. Við þurfum að hlusta á þau og spyrja hvernig þau upplifa samskipti, reglur, aðstöðu og framkomu fullorðinna. Það þarf líka að greina atvik, fylgjast með mynstrum og kanna hvort tilteknir hópar barna standi verr að vígi en aðrir. Þar geta meðal annars kyn, fötlun, kynhneigð, kynvitund, félagsleg staða og aðgengi að traustum fullorðnum skipt öllu máli. Því þegar öllu er á botninn hvolft ræðst öryggi barna ekki af því sem stofnanir segjast gera heldur því sem börn upplifa þegar á reynir, hvort einhver taki eftir, hlusti og bregðist við og hvort viðbrögðin leiði til þess að barnið verði raunverulega öruggara í kjölfarið.

Höfundur er sérfræðingur í ofbeldisforvörnum og réttindum barna.




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×